16.05.1979
Neðri deild: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4858 í B-deild Alþingistíðinda. (4181)
311. mál, tímabundið aðlögunargjald
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég verð að segja alveg eins og er, að mér fannst ég græða afskaplega lítið á ræðu hæstv. iðnrh., hún var mjög almenns eðlis, nema þá helst að ég hef betur í kollinum þær leiðir sem EFTA-ferðaklúbbur ríkisstj. fór og með árangri. Hann vonar í niðurlagsorðum sínum að sú ferð verði til þess að tryggja hér stöðugri vinnu í iðnaði og iðngreinum og eins að í framtíðinni skapist ný atvinnutækifæri í iðnaði. Allt er þetta gott og blessað. En ég vil benda á — og óska eftir að verða leiðréttur ef ég fer með rangt mál eða misskil frv., að hér er ekki verið að samþykkja 3% aðlögunargjald á þær vörur sem koma frá Efnahagsbandalagslöndunum. Það er verið að samþykkja 3% hækkun á því gjaldi sem fyrir er. Því leggjast 6% ofan á innfluttar vörur, sem frá Efnahagsbandalagslöndum koma, og er þar að sjálfsögðu um nýjan verndartoll að ræða.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta frv. En það er svo með alla skatta, sem einhvern tíma hafa byrjað afskaplega sakleysislega, að þeir hafa stækkað og aukist og orðið að bákni í bákninu ef svo má að orði komast. Tiltölulega nýlega er búið að leggja 3% skatt til að standa undir iðnþróun og vernda íslenskan iðnað. Hér er lagt til að hann verði tvöfaldaður og fari upp í 6%. Með sama áframhaldi gæti nýtt frv. komið fram, ef þessi ríkisstj. situr næsta ár, um að hækka sama skatt upp í 12% o. s. frv. Þá er orðin sama þróun og verið hefur með vörugjald, söluskatt og ýmislegt annað.
En segjum svo að þetta sé allt saman gott og blessað og við getum samþykkt að þessar aðgerir séu nauðsynlegar til iðnþróunar. Eins og kom fram hjá hæstv. ráðh. þarf íslenskur iðnaður sannarlega á myndarlegri aðstoð að halda, það fer ekkert milli mála. En ég vil gjarnan fá upplýst: Hvað gefur 3% aðlögunargjald sem nú er tekið íslenskum iðnaði til verndar af þeim vörum sem fluttar eru frá löndum sem aukaaðlögunargjöld eiga að ná til? Og í öðru lagi: Hvað gefa 6% þegar frv. hefur verið samþykkt? Og í þriðja lagi er sá ótti minn, sem þessu frv. er samfara, að aðlögunargjaldið á að renna í ríkissjóð, og þá vil ég spyrja: Hvað mikið af þessu gjaldi situr eftir í ríkissjóði? Undarlegt er ef ríkissjóður ætlar allt í einu að fara að taka upp á þeim góða sið að skila því sem hann á að skila. Hann skilaði ekki söluskattinum af útfluttum iðnaðarvörum. Þetta gjald var lagt á til að standa í skilum með það sem ríkissjóður var búinn að eyða án heimildar af þeim söluskatti sem hann átti að standa skil á til útflytjenda á íslenskum útflutningsiðnaðarvörum. Svona hefur það verið með fleiri skatta.
Ég bið hæstv. ráðh. að gefa hv. Alþ. ekki ágiskunartölur, heldur nákvæma sundurliðun á því, hvernig þessu fé á að ráðstafa.