16.05.1979
Neðri deild: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4861 í B-deild Alþingistíðinda. (4184)

311. mál, tímabundið aðlögunargjald

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það er freistandi að gera atvinnumál yfirleitt og sérstaklega málefni iðnaðarins að umræðuefni í hv. d. þegar frv. sem þetta er til umr. Ég skal ekki gera það að þessu sinni, enda annatími mikill á Alþingi.

Hv. 9. þm. Reykv. kom inn á það, ef ég misskildi hann ekki, að álagning þessa aðlögunargjalds væri eins konar verndaraðgerð fyrir íslenskan iðnað. Það má út af fyrir sig til sanns vegar færa að svo sé í eðli sínu. En ég vil vekja athygli á því, að þegar grannt er skoðað býr iðnaðurinn, bæði útflutningsiðnaðurinn og samkeppnisiðnaðurinn í landinu, við verri kjör en ýmsir aðrir grundvallaratvinnúvegir þjóðarinnar, t. d. að því er varðar skattamál, að því er varðar t. d. álagningu launaskatts og að því er varðar ávöxtunarkjör — eða a. m. k. hefur svo verið fram að þessu. Samtök iðnaðarins hafa reynt að meta þetta og sagt að það jafngilti nokkrum prósentum í gengi. Ef gengið, sem er miðað við þarfir sjávarútvegsins, væri þeim mun hærra en það er á hverjum tíma vegna þeirra kjara sem sjávarútvegurinn nýtur, sem eru betri en iðnaðarins, hefði iðnaður, bæði útflutningsiðnaður og samkeppnisiðnaður, þolanlega samkeppnisaðstöðu. Það má því líka líta á þetta mál sem eins konar jöfnun á aðstöðu bæði útflutningsiðnaðarins og samkeppnisiðnaðarins miðað t. d. við sjávarútveginn, en eins og menn vita gjörla hér í hv. d. er gengisskráning jafnan miðuð við þarfir sjávarútvegsins. Ég vil leyfa mér að líta þannig á, að þetta gjald jafni aðstöðu iðnaðarins gagnvart öðrum undirstöðuatvinnuvegum bæði að því er varðar samkeppni á innanlandsmarkaði og eins að því er varðar útflutning.

Það gefur auga leið að þetta gjald, sem á verður lagt, hefur í sjálfu sér, vegna þess að það hækkar verð á vöru samkeppenda sem flytja vöru inn og ætla hana til sölu á innlendum markaði, — það hefur í sjálfu sér jöfnunaráhrif á samkeppni þessara aðila við innlendan iðnað, en aftur á móti mun gjaldið að sjálfsögðu ekki, nema því verði varið til útflutningsiðnaðar, jafna stöðu hans. Þess vegna legg ég áherslu á það, enda held ég að á það sé minnt bæði í þessu frv. og sjálfsagt hefur hæstv. ráðh. á það minnst, að það sé höfuðmarkmið með þessari tekjuöflun að ætla með þeim fjármunum, sem þannig fást, útflutningshvetjandi aðgerðir og að þessu fé verði fyrst og fremst varið til þess að efla útflutning iðnaðarvara. Ég tek undir orð hæstv. ráðh. um að það er að sjálfsögðu ekki æskilegt að slíku fé sé varið til einhverra vandræðaráðstafana, heldur til þess að gera okkur aðstöðuna betri til frambúðar til þess að keppa á erlendum mörkuðum með hinni útfluttu iðnaðarvöru okkar.

Ég vil að þetta komi fram hér, að ég lít á þetta mál ekki síður sem aðstöðujöfnun fyrir íslenskan iðnað miðað við aðra atvinnuvegi en sérstakt verndunarmál.