16.05.1979
Neðri deild: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4879 í B-deild Alþingistíðinda. (4200)
283. mál, útvarpslög
Frsm. (Svava Jakobsdóttir):
Herra forseti. Frv. þetta fjallar um að 10% af brúttótekjum Ríkisútvarpsins skuli fara í framkvæmdasjóð þess. Menntmn. mælir með samþykkt þessa frv. Undir nál. skrifa auk mín hv. þm. Ingvar Gíslason, Bjarnfríður Leósdóttir og Ólafur G. Einarsson. Þrír þm. voru fjarstaddir, þeir Eiður Guðnason, Ellert B. Schram og Sighvatur Björgvinsson. Þetta frv. hefur áður verið afgreitt úr Ed.