09.11.1978
Sameinað þing: 17. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (425)
55. mál, jöfnun upphitunarkostnaðar í skólum
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir efni þessarar till. sem liggur fyrir til umr. Ég vil segja frá því, að á síðasta landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga voru þessi mál mjög til umræðu og var gerð um þau sérstök samþykkt sem hefur legið hér frammi á lestrarsal Alþingis fyrir hv. þm. Þar á meðal var lögð mikil áhersla á jöfnun raforkukostnaðar, ekki aðeins í þessu tilfelli að því er varðar skólahúsnæði, heldur einnig almennt í landinu. Þetta er stórmál sem þarf vissulega að reyna að finna leið til að leiða til lykta, og ég vænti þess, að hv. alþm. leggi sig fram um það verkefni.
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hefur í framhaldi af samþykktum landsþings rætt við ríkisstj. um vandamál sveitarfélaganna og þ. á m. umrætt mál. Það er hægt að segja frá því hér, að ljóst er að í því verðbólguþjóðfélagi, sem við búum í, er svo komið, að 11% tekjustofn sveitarfélaga, þ.e.a.s. útsvarsálagningarstofninn, er að verðgildi í dag ekki nema 7–8% á gjaldári, og gefur því auga leið hver áhrif þetta hefur á rekstrarlega stöðu sveitarfélaga til að veita þá þjónustu í þjóðfélaginu sem þeim ber skylda til. Þess vegna er ljóst að bæði þetta vandamál og önnur, er varða sveitarfélögin í landinu, eru mikilvæg mál sem þarf vissulega að athuga.
Ég vil einnig láta það koma fram hér, að við þá lagabreytingu, sem gerð var þegar verkefnaflutningur fór fram milli ríkis og sveitarfélaga að því er varðar skólana, var framlag úr Jöfnunarsjóði aukið til sveitarfélaga, þó að það hafi ekki komið að þeim notum að þessu leyti sem til var ætlast. Hins vegar vil ég taka það fram, að í gangi er samstarfsnefnd —búin að vera í mörg ár — um skólamál milli ríkis og sveitarfélaga. Þessi n. hefur m.a. haft það hlutverk að reyna að finna möguleika til að jafna þann mikla aðstöðumun sem hefur myndast ekki hvað síst í sambandi við rekstur heimavistarskólanna í landinu. Og það er rétt að segja frá því hér, að þarna hefur orðið á talsverð leiðrétting, þannig að það hefur nú á síðustu árum verið gengið til móts við sveitarfélögin, bæði að því er varðar þennan þátt, upphitunarkostnaðinn, og eins í sambandi við viðhaldskostnaðinn að því er varðar heimavistarhúsnæði, þó að það sé hvergi nærri fullnægjandi, því að yfirleitt eru þau sveitarfélög, sem eiga aðild að heimavistarskólunum, litlu sveitarfélögin eða þau sveitarfélög sem hafa mjög takmarkaða tekjustofna. Þess vegna er mjög brýnt að þetta mál verði sérstaklega athugað á Alþ. til þess að finna á því frekari lausn en orðin er.
Ég vil endurtaka, að ég tek undir þessa till. til þál. og tel hana gott innlegg til að reyna að leysa þetta vandamál sveitarfélaganna úti um land.