17.05.1979
Neðri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4904 í B-deild Alþingistíðinda. (4250)

276. mál, gjaldmiðill Íslands

Frsm. (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til meðferðar þetta frv. en efni þess er að breyta núgildandi l., sem kveða á um að lægsta fjárhæð nemi heilli krónu, verði breytt til samræmis við lagafrv., sem hefur þegar verið samþ. hér um gjaldmiðil Íslands. Það er engin ástæða til þess að fjölyrða um þetta frv. Hér er einungis um það að ræða að samhæfa gildandi löggjöf breytingum, sem nú hafa nýlega verið gerðar að l. og við leggjum til, að frv. verði samþykkt.