17.05.1979
Sameinað þing: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4911 í B-deild Alþingistíðinda. (4255)

Almennar stjórnmálaumræður

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Ég mun ekki nota það tímakorn, sem hér er til umráða, til þess að skattyrðast í garð fulltrúa annarra stjórnmálaflokka, eins og oft vill einkenna umr. af þessu tagi, heldur fyrst og fremst fjalla um stöðu þjóðmála í dag.

Velmegun og velfarnaður þjóðarinnar í bráð og lengd og þó einkum þegar til lengri tíma er lítið byggist á fáeinum meginatriðum. Ég vil drepa á þrjú hinna mikilvægustu: Í fyrsta lagi vinnuvilja og verkkunnáttu fólksins í landinu. Í öðru lagi skynsamlega og hagkvæma nýtingu auðlinda á landi og í sjó. Í þriðja lagi skynsamlegan og réttlátan efnahagsbúskap á heilbrigðum grundvelli.

Það er fyrst og fremst undir því komið, hvernig til tekst um þessi þrjú atriði, hvort okkur miðar áleiðis til betra og traustara þjóðfélags ellegar ekki eða jafnvel ber af braut, þannig að lífskjörum og lífsskilyrðum hraki.

Um vinnuvilja og verkkunnáttu íslensku þjóðarinnar hefur enginn efast á undanförnum árum. Þó er það svo að einmitt á því sviði, sviði verkkunnáttunnar, þurfum við ævinlega að vera á verði. Einmitt það að tileinka sér nýja tækni, nýtt verklag og vinnuskipulag nægilega fljótt og ört getur haft úrslitaþýðingu fyrir afkomu heilla starfsstétta og atvinnugreina og þar með þjóðarinnar í heild. Ég hef t. d. löngum verið þeirrar skoðunar, að fyrir úrelt skipulag hafi byggingariðnaðurinn á Íslandi dregist aftur úr í samanburði við grannþjóðir okkar, og fyrir bragðið eru íbúðir dýrari hér á landi en ella og þar með þungbærari fjölskyldunum í landinu. Sama á reyndar við í ýmsum öðrum greinum, þ. á m. í fiskiðnaði þar sem framfarir í skipulagi, stjórnun, tækni og nýtingu eru undirstaða velmegunar í greininni og meðal þjóðarinnar. Vitaskuld verður framvinda ekki tryggð í eitt skipti fyrir öll. Það þarf sífellda framþróun og árvekni, en ekki síst einmitt núna.

Víkjum þá að skynsamlegri og hagkvæmari nýtingu auðlinda okkar. Til lengri tíma lítið er það ekki síst undir stjórnun okkar á þeim málum komið, hvernig þjóðinni farnast í landinu. Ég vil í þessu sambandi gera landbúnað og sjávarútveg sérstaklega að umtalsefni.

Alkunna er hvernig komið er fyrir okkur í landbúnaðarmálum fyrir stjórnleysis sakir eða réttara sagt vegna rangrar stefnumörkunar, þar sem þjóðin verður nú að skattleggja sjálfa sig um marga milljarða á ári hverju til þess að standa undir óarðbærum útflutningi á offramleiðslu landbúnaðarafurða og óarðbærum framkvæmdum sem auka enn framleiðsluna. Og þetta gerist á sama tíma og landið er víða talið ofbeitt og hætta á frekari eyðingu þess. Allt eru þetta fyrirsjáanlegar afleiðingar stjórnleysis eða rangrar stefnu. Hefði verið gripið í taumana fyrir mörgum árum, eins og Alþfl. lagði til, stæðum við nú ekki frammi fyrir svo hrikalegum vandamálum sem raun ber vitni.

Hliðstætt vandamál er við að glíma í sjávarútvegi. Það liggur fyrir að mikilvægustu fiskstofnar okkar, þorskurinn og loðnan, eru ofnýttir. Vandamálið er þeim mun alvarlegra að ekki hefur verið gripið til raunhæfra takmörkunaraðgerða á fyrri árum sem skiluðu nauðsynlegum uppbyggingarárangri að því er þorskstofninn varðar. Alveg eins og í landbúnaðinum hefur sérhver dráttur á markvissum aðgerðum gert vandann erfiðari ár frá ári. Ef fyrr hefði verið gripið fast í taumana væri viðfangsefnið léttbærara nú.

Á sama hátt hefur það verið skoðun mín, að ekki mætti dragast lengur að taka allfast á þessu máli, eins fast og ég hef talið kleift án þess að stefna atvinnu í hættu eða raska meginforsendum í þjóðarbúskapnum. Ég hef talið og ég tel þessar aðgerðir nauðsynlegar til þess að afstýra vá síðar, til þess að tryggja öryggi og afkomu sjómanna í framtíðinni og til þess að tryggja öryggi og afkomu þjóðarinnar allrar til lengri tíma lítið, til þess að treysta undirstöðuna undir lífi okkar hér í þessu landi. Það skulu menn líka muna, að takmarkanirnar eru í reyndinni sparnaður sem skilar raunvöxtum. Vitaskuld hefur það verið stefna mín og rn., að þessar stjórnunaraðgerðir kæmu sem réttlátast niður þótt fullkomið réttlæti verði sjálfsagt ævinlega vandfundið. Aðferðirnar er líka sjálfsagt að taka til endurmats frá ári til árs, enda tel ég nauðsynlegt að hefja þegar í sumar vinnu að stefnumörkun í stjórnun á fiskveiðum, ekki bara fyrir næsta ár, heldur einnig í megindráttum til langs tíma. Hitt er svo annað mál, að að þessum aðgerðum hefur verið gerð hörð hríð úr mörgum áttum. Þau mótmæli einkenndust af því að hver benti á annan. Flestir viðurkenndu, a. m. k. í orði, takmörkunarþörf, en hún átti bara ekki að gerast hjá honum sjálfum, heldur hjá hinum: Sú undanlátsaðferð gengur auðvitað ekki upp. Í þessum málum eins og mörgum öðrum má öfundin og græðgin ekki ráða ferðinni. Það er ótvíræð nauðsyn á stjórnunaraðgerðum í sjávarútvegi og þær verða að standa hvað sem öllum mótmælum liður. Hitt er ljóst, að á þessu sviði eins og mörgum öðrum verður ekki gripið til aðhalds án þess að fyrir því finnist.

Víkjum þá að þriðja undirstöðuþættinum sem ég gat um í upphafi, sem er skynsamlegur efnahagsbúskapur á heilbrigðum grundvelli. Umræður undanfarinna missira og ára hafa ekki snúist um annað frekar en efnahagsmálin. Í sölum þessa húss er háð þrotlaust orðaskak um margvíslega þætti efnahagsmála. Árangurinn virðist þó ekki standa í réttu hlutfalli við orðaflauminn. Verðbólguelfurin veður fram. Á undanförnum árum hefur þjóðin velkst í 30–50% verðbólgu. Hver tilraunin á fætur annarri til þess að komast af þessari vítum stráðu braut hefur runnið út í sandinn. Enginn þarf að efast um þrotlausa viðleitni Alþfl. á undangengnum mánuðum við að ná fram heildstæðum aðgerðum sem skiluðu efnahagslífinu á heilbrigðari grundvöll og drægju úr verðbólgu.

Í grg. með frv. um efnahagsráðstafanir um mánaðamótin nóv.–des. s. l. knúði Alþfl. fram ákveðnar markmiðssetningar í heildstæðari efnahagsstefnu. Í desembermánuði kynnti flokkurinn hugmyndir sínar um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum. Og þegar forsrh. tók saman frv. um stjórn efnahagsmála, sem byggt var á sömu hugmyndum og frv. Alþfl.-manna um jafnvægisstefnu, lýsti Alþfl. strax stuðningi við það frv. Sannleikurinn er hins vegar sá, að í meðförunum var það frv. slævt svo mjög að sjáanlegt var að verulega mundi draga úr líklegum árangri. Afleiðingarnar eru nú sem óðast að koma fram. Ofan á þær bætist vandi vegna mikillar olíuhækkunar og á ég þá einkum við vanda útgerðar í því sambandi.

Nú verður ekki annað séð en miklar horfur séu á að ný verðbólguskriða bætist ofan á þann verðbólguflaum sem fyrir er. Sú þróun yrði vitaskuld mikið áfall fyrir þjóðina, svo atvarlegt að hver ábyrgur stjórnmálamaður, hvar í flokki sem hann stendur, og sérhver þjóðfélagsþegn verður að hyggja vel að og átta sig á því, í hvert óefni kunni að vera stefnt. Þetta ástand, þessar horfur gefa líka fullt tilefni til þess að menn hyggi að því, hvort skýringanna kunni að einhverju leyti að vera að leita í þjóðfélagskerfinu og stjórnkerfinu.

Í starfi sínu og stefnumörkun í efnahagsmálum hefur Alþfl. ævinlega lagt áherslu á samhæfðar aðgerðir á öllum sviðum efnahagsmála, þ. e. a. s. peningamála, ríkisfjármála, launamála og verðlagsmála. Hann hefur viljað setja efnahagslífinu fastan ramma til þess að skapa öryggi og traust. Hann hefur á þessum grundvelli viljað kjarasáttmála við verkalýðshreyfinguna sem tryggði jöfnum höndum kaupmátt og vinnufrið. Alþfl. hefur á þessum grundvelli talið nauðsynlegt að draga úr verðbólgunni, vitandi að hjöðnun verðbólgu er besta kjarabót láglaunafólks og þeirra sem afskiptir eru. Á sama hátt hefur hann barist fyrir raunvöxtum til þess að koma í veg fyrir auðsöfnun skuldakónga og misrétti og óheilbrigði í þjóðfélaginu jafnframt því að tryggja hag sparifjáreigenda.

Það verður að segjast eins og er, að á engu þessara sviða hefur náðst fram sú festa í framkvæmd sem Alþfl. óskaði og stefndi að. En stefnumörkun Alþfl. stendur óhögguð. Meiri festa og einbeitni í þessum efnum er það sem til þarf að koma.

Nú hefur það gerst, að einstakir hátt launaðir, tiltölulega fámennir hópar hafa ruðst fram og krefjast og hafa sumir reyndar náð fram sérstökum hækkunum sér til handa. Með aðgerðum sínum stefna þeir almannaheill í voða. Þessar deilur verður að sjálfsögðu að leysa af fullri einbeitni, og Alþfl. telur sjálfsagt að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða í því sambandi og vill vinna að því. En umr. um þessi mál hafa snúist upp í umr. um almenna skipan kaupgjaldsmála og t. d. almennt bann við verkföllum. Að því er þetta varðar telur þingflokkur Alþfl. ekki að ríkisvaldið eigi nú að grípa inn í kaupgjaldsmálin ein sér á almennum grundvelli og skipa þeim öllum einum sér með lögum án samhengis við aðra þætti efnahagsmála. Launamálin má taka til meðferðar í samhengi við fasta heildarstefnu í efnahagsmálum. En það er margföld reynsla fyrir því, að lögskipan á almennu kaupgjaldi einu sér og án samhengis við aðra efnahagsþætti skilar ekki árangri og egnir oft til ófriðar. En launamálastefnan, launaramminn er að riðlast og skekkjast. Kaupgjaldskapphlaup, sem engu skilar nema frekari víxlgangi og verðbólgu, virðist vera í uppsiglingu. Þess vegna telur þingflokkur Alþfl. nauðsynlegt að flýta gerð almennra launasamninga milli hinna rétt kjörnu aðila vinnumarkaðarins og það á frjálsum grundvelli. Frekar en að stefnt verði í langdreginn víxlgang eða almennt bann við verkföllum telur Alþfl. rétt að heildaruppgjör og uppstokkun fari fram sem fyrst. Alþfl. vill flýta hinum frjálsu samningum og búa svo um hnútana að allir sitji þar við sama borð á sama tíma og tetur óhæfilegan drátt á því einungis til skaða því að launauppgjör er óhjákvæmilegt. En þá er auðvitað ekki síður nauðsynlegt að ríkisvaldið fylgi fastmótaðri og markvissri stefnu á öðrum sviðum efnahagsmála eins og við Alþfl.-menn höfum lagt ríka áherslu á. Þetta á við um peninga- og vaxtamálin, ríkisfjármálin og verðlagsmálin. Þar þarf föst tök.

Ég vil svo ítreka það sem ég sagði áðan um þá alvöru, sem á ferðum er, og nauðsyn þess, að þjóðin öll skynji það og skilji. Þetta á við jöfnum höndum í efnahagsmálunum og í stjórnun helstu undirstöðugreina atvinnulífsins. Á því byggjast lífskjör okkar til lengri tíma lítið. — Góðar stundir.