17.05.1979
Sameinað þing: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4927 í B-deild Alþingistíðinda. (4259)
Almennar stjórnmálaumræður
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Stjórnarandstaðan, sem sofið hefur værum svefni í allan vetur, virðist nú loks vera að rumska ef marka má orð hv. þm. Ellerts B. Schram — og er það vel.
Útvarpsumr. frá Alþ. hafa sjaldnast þótt umtalsvert skemmtiefni, enda lætur nærri að sömu ræðurnar mætti brúka ár eftir ár, þm. gætu skipst á þeim eftir því hvort þeir væru í stjórn eða stjórnarandstöðu. Ár eftir ár er deilt um sama vandann og aðferðir til að leysa hann.
Alþfl. hefur reynt að brjótast úr viðjum þeirrar efnahagskreppu sem hrjáð hefur þjóðina undanfarin ár, skilgreint orsakir og afleiðingar og gert ítrekaðar tilraunir til að fá samstarfsflokka sína til samvinnu í þeirri baráttu sem við verðum að heyja fyrr eða síðar.
Samvinna hefur tekist um nokkur atriði og árangurinn ekki látið á sér standa. Hins vegar hefur samkomulag ekki náðst um mörg veigamikil atriði, og afleiðingarnar eru nú að koma í ljós. Verðbólgudraugurinn hótar öllu illu, mikill órói er á vinnumarkaði, þolinmæði láglaunahópanna er á þrotum. Þeir hafa orðið vitni að því, hvernig hálaunamenn hafa notað eða misnotað aðstöðu sína til að fá launahækkanir er nema mánaðarlaunum verkamanns. Rammi lánsfjáráætlunar virðist að því kominn að bresta. Greiðsluafgangur ríkissjóðs, sem stefnt var að, er nánast uppurinn og þar með eru litlar horfur á að ríkissjóður greiði skuld sína við Seðlabankann.
Margt er á huldu um ríkisútgjöldin, og enn berja menn hausnum við steininn og vilja viðhalda úreltu og ranglátu vísitölukerfi sem stöðugt breikkar bilið á milli láglauna- og hálaunafólks í landinu. Allir almennir launasamningar eru lausir, nema samningar BSRB, BHM, flugmanna, blaðamanna og flugvirkja. Búist er við að senn ákveði gerðardómur laun verslunarmanna og að ígildi launahækkana þeirra verði um það bil 8%. Ég vil taka fram, að ég tel verslunarmenn ekki ofsæla af þeirri hækkun. Þessi upptalning sýnir í hnotskurn þann vanda sem við er að etja.
Nú kann einhver að segja að maðurinn tali eins og stjórnarandstæðingur. Hver getur túlkað það eins og hann vill, en andstaða mín er andstaða gegn stefnuleysi, andstaða gegn mönnum sem hafa pólitíska hagsmuni flokka sinna að leiðarljósi, en ekki þjóðarhag, andstaða gegn mönnum sem neita að horfast í augu við staðreyndir, andstaða gegn ábyrgðar- og kjarkleysi. En þessum orðum beini ég ekki eingöngu til núv. ríkisstj. Henni einni verður ekki kennt um ófarirnar, því þótt fjöldinn segist vera tilbúinn að axla byrðar, taka á sig hluta af erfiðleikunum, reynast þær fullyrðingar oft meiri í orði en á borði.
Láglaunafólkið í landinu, einkum innan Verkamannasambands Íslands, hefur í raun tekið á sig hluta byrðanna, en hópar launahæsta fólksins í landinu hafa skotið sér undan því. Þetta er ekki að gerast bara nú, forsagan er löng. Það grátbroslega við þessa staðreynd er að fólkið, sem skapar verðmætin svo unnt sé að greiða háu launin, ber oft minnst úr býtum.
Hvernig er svo ástatt í þjóðfélagi þar sem kröfugerðin er einkenni daglegrar umræðu? Ísland er í alþjóðlegum skýrslum sett á bekk með mestu velferðarþjóðfélögum heims. Þjóðartekjur á mann eru tiltölulega háar, íbúðarhúsnæði gott, bílaeign mikil og afkoma góð þegar á heildina er litið. Íslendingar búa við gott tryggingakerfi, þótt margt megi þar bæta. Þeir ferðast mikið og fátækt í þess orðs merkingu er ekki vandamál. Enginn á að þurfa að líða skort, en það skal þó játað að skorturinn er fremur afstætt hugtak í velferðarþjóðfélagi. Flestar ytri aðstæður eru þjóðinni hagstæðar. Verð á afurðum er hátt, hærra en nokkru sinni. Með verulegu átaki miðað við óbreyttar forsendur þyrfti ekki að taka langan tíma til að koma á jafnvægi í efnahagsmálum. Vilji er allt sem þarf. En kannske er það rétt sem sumir segja, að þjóðin þurfi að fá ærlegan rassskell svo að hún skilji að hagur hennar er í raun og veru góður. Að óbreyttu er ekki langt í skellinn og líklegt er að í glymji.
Það er öllum ljóst að verðbólgan brjálar allt efnahagslíf og jafnvel mannfólkið með. Henni fylgir spilling, brenglað verðmætamat og hún leiðir af sér efnahagslega glötun. Hún kemur verst við láglaunafólk sem ekki hefur aðstæður eða fjárráð til að spila á verðbólguna. Það er raunalegast að það vísitölukerfi, sem margir launþegaforingjar hafa gert að trúaratriði, veldur meiri verðbólgu en flest annað. Fleiri og fleiri eru þó að gera sér þetta ljóst, og Alþfl. mun hamra á þessari staðreynd þar til breytingar hafa verið gerðar. Þangað til mun núverandi vísitölukerfi halda áfram að skekkja og aflaga launakerfið hálaunafólki í hag, en til tjóns fyrir láglaunafólkið. Á meðan þetta kerfi er í gildi verða óskir manna um jafnlaunastefnu ekkert nema orðin tóm.
Núv. ríkisstj., sem hefur ýmsa möguleika til að bæta úr, verður að taka sjálfri sér tak ef hún ætlar að koma til móts við þær kröfur sem til hennar eru gerðar og rekja má til síðustu kosninga. Launamálin eru hluti af efnahagsvandanum, en ekki efnahagsvandinn alfarið. Ríkisvaldið á ekki að hafa afskipti af launa- og kjaramálum nema við sérstakar aðstæður. Ríkisstjórnir geta haft afskipti af kjaramálum með lagasetningu er snertir félagslegar umbætur og í neyðartilvikum gripið inn í launadeilur þegar verkföll ógna hag þjóðarheildar.
Alþfl. hefur nú gert ákveðnar tillögur um skipan launamála, þ. e. að aðilar vinnumarkaðarins gangi til kjarasamninga án afskipta ríkisvaldsins, en hafnar um leið öllum bakreikningum af slíkum samningum. Varla getur menn greint á um réttmæti þessarar afstöðu. Verkalýðshreyfingin hefur hafnað afskiptum ríkisvalds af kjarasamningum og vinnuveitendur einnig. Væntanlega næst samstaða innan ríkisstj. um þessa stefnu. Hún getur haft óróa í för með sér, en kjarasamningar verða alfarið á ábyrgð viðsemjenda. En á sama tíma verður ríkisvaldið að auka tekjujöfnun með réttlátara skattakerfi, afnámi beinna skatta af almennum launatekjum og með ákveðnu skattþaki á hæstu laun.
Ekki leikur vafi á því, að efla verður í þessu landi hugsjón samábyrgðar, og við gerum okkur grein fyrir því, að vetrarhörkur á sumri eins og nú er minna okkur óþyrmilega á þá staðreynd að stundum er búseta á Ístandi búseta á mörkum hins byggilega heims. Hafískoma og harðindi ógna nú afkomu fjölda fólks á svonefndu hafíssvæði. Áföllum af þessu tagi verður að jafna á þjóðina rétt eins og gerðist í Vestmannaeyjagosinu og í snjóflóðunum í Neskaupstað. Það er þessi samábyrgð sem hefur gert okkur kleift að vinna bug á margvíslegum vanda. Þessi vandi, en með nokkuð öðrum formerkjum, blasir við á sviði kjaramála. Ef Íslendingar ætla sér að búa áfram í velferðarþjóðfélagi verður það ekki gert ef kröfugerðahópar fá ávallt sínu framgengt. Það er eitt af mikilvægustu hlutverkum Alþingis að spyrna á móti, en það verður ekki gert nema með eflingu þingræðisins sem því miður hefur allt of oft verið látið undan síga þegar þrýst hefur verið á.
Enn hefur núv. ríkisstj. tækifæri til að bæta fyrir mistök sín — og henni ber að gera það. Ástand efnahagsmála gerir kröfu til þess að pólitískt hagsmunapot verði lagt til hliðar og hinir 60 þjóðkjörnu þm. fari með umboð sitt eins og ætlast er til af þeim. Þjóðin krefst þess að stjórnað sé af festu, og hún á rétt á því að þær kröfur verði uppfylltar ef marka má ummæli núv. þm. fyrir síðustu kosningar.
Alþfl. hefur barist fyrir gjörbreyttri efnahagsstefnu og hann mun gera það áfram innan þings sem utan, innan stjórnar sem utan. Hann vill starfa í ríkisstj. sem hefur þor og dug til að berjast, en ekki í stjórn sem skortir þessa eiginleika. Menn skyldu hugleiða að vandinn væri ekki sá sem hann er í dag ef samstarfsflokkar okkar í ríkisstj. hefðu fallist á efnahagsmálafrv. sem við lögðum fram í des. s. l. Það var gæfuleysi að fallast ekki á það frv. Vonandi verður gæfan hliðhollari núv. ríkisstj. á næstu dögum.