18.05.1979
Efri deild: 108. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4946 í B-deild Alþingistíðinda. (4276)
310. mál, almannatryggingar
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það er vissulega ágætt að sjá frv. úr þessari átt varðandi breytingar á lögum um almannatryggingar.
Á s. l. þingi áttum við að fjalla ítarlega, það var reyndar ekki gert í þessari hv. deild. a. m. k., um nýliðna endurskoðun á lögum um almannatryggingar. Þá var einmitt að þessu máli sérstaklega vikið, varðandi hin árlegu mæðralaun. Ég þykist vita og heyri það reyndar og veit af fyrri ræðum hv. flm., að hér liggur góður hugur að baki, og ég vona að ástæða þess, að hann er einn flm. þessa frv., sé ekki sú að hann hafi ekki getað fengið aðra flokksbræður sína eða flokkssystur til að flytja frv. með sér, heldur stafi það e. t. v. af nokkurri sérstöðu hans í því máli sem vék að, fóstureyðingunum.
Sannast sagna var það þannig, að hæstv. heilbr.- og trmrh. síðustu stjórnar var samflokksmaður hv. flm. og í heilbr.- og trn. vikum við, sem í stjórnarandstöðunni vorum, alveg sérstaklega að því, hvort ekki væri fært að breyta nokkuð fyrirkomulaginu vaðandi mæðralaunin. Þar vorum við með fyrst og fremst eina breytingu í huga, ekki svo mjög varðandi hækkunina með tveim börnum, þrem börnum eða fleiri, heldur fyrst og fremst með einu barni. Sú breyting fékkst ekki fram. Það var útilokað að fá þar nokkra leiðréttingu. Ég minni á 15. gr. laga um almannatryggingar frá í jan. í vetur. Þar er um þann mismun að ræða sem við í stjórnarandstöðunni þá töldum ekki viðunandi, þ. e. a. s. að með einu barni séu mæðralaun 50 484 árlega, með tveim börnum aftur fyrir nál., sem við þm. stjórnarandstöðunnar stóðum að, rakti ég þá ítarlega — og ætla ekki að gera það neitt frekar nú, hver röskun yrði sérstaklega á högum einstæðrar móður sem væri með fyrsta barn sitt, og gæti verið að það breytti ekki miklu varðandi röskun á högum hennar yfirleitt þó að börnin væru tvö eða þrjú, nema að því leyti til sem snerti framfærslu barnanna sjálfra.
En rétt er að undirstrika nú, að það fékk því miður ekki neinar undirtektir hjá þm. þá að breyta hlutföllunum. Ég veit hins vegar að eitt fremsta málið í þeirri endurskoðunarnefnd, sem hefur þegar hafið störf að endurskoðun almannatrygginganna, er einmitt að fá vissa leiðréttingu á þessum mismun. Þessi mismunur er óeðlilegur og hann á að minnka. Árleg mæðralaun með einu barni eiga að hækka fyrst og fremst, og ég legg áherslu á að það nái sem fyrst fram að ganga.
Ég efast ekki um að varðandi það áhugamál sem að er vikið, þ. e. a. s. spurninguna um fóstureyðingar af félagslegum ástæðum, sé hér stigið spor að réttu marki. Hins vegar er það auðvitað staðreynd, að hvað sem því líður er hér, eins og hv. flm. minnti reyndar á, aðeins um hluta af því vandamáli að ræða sem félagslegar ástæður spanna, þ. e. a. s. aðeins þær fjárhagslegu, þannig að þrátt fyrir breytingu af þessu tagi, sem ég fagnaði svo sannarlega ef hægt væri að koma í framkvæmd, því að ekki mundi af veita að koma einhverjum breytingum í þessa átt í framkvæmd, þá væri ég ekki tilbúinn að standa að niðurfellingu þess sem segir í lögum nú um fóstureyðingar, þ. e. a. s. að félagslegar ástæður falli niður. Liggja margar ástæður til þess, sem ég ætla ekki að fara að rekja nú.
Ég kom upp í ræðustólinn til þess að benda á þann mismun sem þarna er og þarf að leiðrétta alveg án tillits til hins sérstaka máls um breyt. á lögum um fóstureyðingar, og hverjar undirtektir það fékk því miður við síðustu endurskoðun á almannatryggingalögum. Hér er að vísu um stórátak að ræða, en ekki skal ég hafa á móti því þegar fulltrúi einkaframtaksins á þingi leggur til eins stórfelldar félagslegar umbætur og þarna er um að ræða á kostnað skattþegnanna. Ég hef ekki á móti því, hef aldrei haft á móti því og því ber að fagna alveg sérstaklega. En ég vona svo sannarlega að hv. flm. sé ekki einn á báti, þó að maður hafi heyrt ýmislegt úr herbúðum flokks hans að undanförnu um skattpíningu og annað því um líkt sem óhjákvæmilega kæmi í kjölfar þessa.
Erindi mitt í ræðustólinn var sem sagt aðeins þetta: Ég mundi ekki treysta mér til, þrátt fyrir þá breytingu sem hér yrði á, þó hún yrði framkvæmd til fullnustu, að standa að breytingu ákvæðis í lögum um fóstureyðingar um félagslegar ástæður, að þær féllu niður. Ég óttast að menn verði ekki mjög gírugir, hverjir sem við stjórnvölinn standa þegar þetta kæmi í framkvæmd, að taka svona stórt stökk í heildina tekið, en legg á það megináherslu að fyrst og fremst verði miðað við það sem við vorum með í fyrra, við hv. þm. Eggert G. Þorsteinsson, að minnka þann mismun sem nú er á mæðralaunum milli eins, tveggja og þriggja barna. Það er meginmálið sem þarf að leiðrétta. Hitt er svo annað og víðtækara mál sem ég skal ekki fara út í hér, fóstureyðingarmálið sjálft.