18.05.1979
Efri deild: 108. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4949 í B-deild Alþingistíðinda. (4279)
310. mál, almannatryggingar
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég tel að það frv. til l. á þskj. 732, sem hér er til umr., sé enn ein ástæðan fyrir þeirri nauðsyn að taka lögin um almannatryggingar til heildarendurskoðunar miðað við nútímaaðstæður og breytingar í þjóðfélagi okkar. Mér finnst virðingarverð öll sú viðleitni sem fram kemur á hv. Alþ. til að benda á það sem þyrfti að bæta þeim aðilum í þjóðfélaginu sem hafa verri aðstæður en aðrir, og allt, sem stefnir að því marki, á sannarlega heima í almannatryggingalöggjöf okkar ef við viljum sníða hana eftir því sem þjóðfélag okkar ætti að gera þegnum sínum til tryggingar. Þetta vil ég leggja sérstaka áherslu á um leið og ég tek undir margt af því sem kom fram í framsögu hv. flm. Ég tel að hér sé um að ræða mjög nauðsynlega ábendingu. Ég er ekki tilbúinn að fullyrða hvort þær fjárhæðir, sem hér eru tilteknar, séu endilega það sem á að stefna að, en alla vega er grunntónninn í frv. sá sem ég get fellt mig við, að við eigum einmitt að taka inn í tryggingalöggjöfina sérstaka aðstoð við mæður í vanda staddar.
Ég er hv. flm. að mörgu leyti sammála um þær félagslegu aðstæður, sem hann hefur nefnt í umr. um annað mál og raunar í fjölmiðlum, í sambandi við fóstureyðingarlögin. Ég tel að þjóðfélagið eigi að gera allt sem hægt er til að skapa þær félagslegu aðstæður að til slíkra aðgerða þurfi ekki að grípa. Ég er kannske svona gamaldags, eins og var sagt um hv. flm. og fleiri í sambandi við þessar umr., en ég er eigi að síður á þessari skoðun í grundvallaratriðum.
Hitt get ég vel fellt mig við, sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að auðvitað er ákvörðunarrétturinn dýrmætur og í flestum tilfellum á hann náttúrlega að ráða í svona málum. En þó er það svo, að við verðum að viðurkenna að ekki eru allir færir um að ráða sér sjálfir, því er nú verr, og getur það komið í ljós í svona málum.
Ég ætla ekki að tefja þingstörf í sambandi við þetta mál. Ég vil aðeins undirstrika að þetta er eitt af því sem gerir nauðsynlegt að taka heildarendurskoðunina á almannatryggingakerfinu hér á landi föstum tökum. Það vona ég að verði.