18.05.1979
Efri deild: 108. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4952 í B-deild Alþingistíðinda. (4282)

315. mál, barnalög

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Frv. til barnalaga hefur legið fyrir þremur þingum, en kom að vísu ekki til umr. vorið 1976 og aðeins til 1. umr. haustið 1976 og 1977. Ég hefði vissulega kosið að leggja frv. fyrir Alþ. miklu fyrr á þessu þingi og að því var stefnt. Hins vegar taldi nefnd sú, sem samið hefur frv., æskilegt að gera á því nokkrar breytingar, enda hefur ný skipun á löggjöf um réttarstöðu barna verið mjög ofarlega á baugi á síðustu árum víða um lönd. Ný viðhorf hafa því verið að þróast frá ári til árs og má sjá ýmsar bendingar um það efni í grg. sem fylgir frv., en hún hefur að nokkru leyti verið endurnýjuð og við hana aukið. Þótt svo langt sé liðið á þingið hef ég talið rétt að frv. kæmi nú fram, ef verða mætti að umræða skapaðist nú um þau mikilvægu málefni sem þarna er fjallað um.

Það hefur sannast sagna verið furðulega hljótt um þetta efni, þar sem hvort tveggja kemur til, að um mikilsvert löggjafarsvið er að ræða og að um er að ræða ýmis nýmæli sem ætla má að skiptar skoðanir kunni að vera um. Tómlæti gagnvart frv. að heildarlögum um réttarstöðu barna tel ég óverjandi. Ég vil leyfa mér að vona, að svo verði ekkí enn og það á barnaári. Ég tel æskilegt að frv. komist til n. svo að n. geti, þótt ekki komi til efnislegrar umfjöllunar, hugað að því að undirbúa skipulega vinnu að frv. við framlagningu á næsta hausti, t. d. með því að senda það út til umsagnar. Ég tel víst að nefnd sú, sem frv. samdi, svo og aðrir sérfróðir aðilar á þeim fjölmörgu sviðum, sem frv. að barnalögum fer inn á, mundu reiðubúnir til viðræðna við nefndir þingsins um frekari ábendingar og aths.

Svo sem áður er getið hefur tvívegis komið til þess, að mælt væri fyrir frv. til barnalaga í þinginu. Ekki er ástæða til að endurtaka ýmsar upplýsingar sem við þau tækifæri hafa verið gefnar um innihald og markmið frv. Þó er nauðsynlegt að undirstrika enn höfuðsjónarmið og vekja athygli á einstökum atriðum sem ýmist eru ný eða hafa sætt aukinni útlistun í grg. til skilningsauka á nýjum viðhorfum.

Svo sem áður hefur verið lýst og ítarlega er skýrt frá í grg. byggist núgildandi löggjöf um réttarstöðu barna enn að höfuðstofni til á norrænu lagasamstarfi eftir síðustu aldamót. Var gripið til þeirrar nýsmíðar sem fyrirmyndar er samþ. hafði verið þál. á Alþ. 1917 um endurnýjun löggjafar á þessu sviði. Sú lagavinna hafði verið mjög vönduð og markað tímamót á öllum Norðurlöndum. Verður ekki annað sagt en sú löggjöf hafi reynst hin traustasta smíð einnig hér á landi. Hún er mótuð í tvennum lögum, um afstöðu foreldra til skilgetinna barna og afstöðu foreldra til óskilgetinna barna. Engan þarf hins vegar að undra þótt löggjöf sem nálgast að vera 60 ára gömul þarfnist töluverðrar endurnýjunar, svo miklar sem breytingar hafa orðið í þjóðfélagsháttum á áratugunum eftir tvær heimsstyrjaldir, ekki síst í íslensku þjóðfélagi. Má e. t. v. þrátt fyrir allt líta á það sem staðfestingu á stöðugleika hinna íslensku þjóðfélagsgerðar og raunsæi hinnar gömlu löggjafar, að segja má að höfuðsjónarmiði hennar sé ekki raskað með hinu nýja frv.

Ég mun nú geta nokkurra höfuðatriða í nýmælum frv. Það er þá fyrst sú bygging frv. sjálfs að fjalla í einum lagabálki og eftir því sem kostur hefur verið talinn samtímis um óskilgetin börn sem skilgetin. Ekki er hróflað við reglunni um sjálfkrafa löglíkur fyrir faðerni eiginmanns að barni eiginkonu, hinni svokölluðu „pater est reglu“. Hins vegar er í frv. nokkuð slakað á kröfum um andsönnun gegn faðerni eiginmanns að barni, sem samkv. gildandi lögum er hafnað nema heita megi alls útilokað að eiginmaður sé faðir barns. Er þessi breyting gerð að norrænni fyrirmynd. Á hinn bóginn verður samkv. till. um lagareglur í frv. nokkur fjöldi barna skoðaður skilgetin að lögum, sem samkv. núgildandi lagareglum eru óskilgetin. Er þar um að ræða nokkurn hluta þeirra barna sem fædd eru eftir tilteknum greinimörkum í eða fyrir óvígða sambúð foreldra þeirra. Eftir lögum um óskilgetin börn frá 1921 gilti sú regla, að tiltekin óvígð sambúð karls og konu jafngilti faðernisjátningu að barni er konan átti meðan sambúðin stóð.

Líklegt er að ekki verði allir sammála um hina nýju reglu um útvíkkun hugtaksins skilgetið barn. Ég vil vekja athygli á því,.að sú regla kom þó að hluta til inn í löggjöfina við endurnýjun laga um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna frá 1947. Var tekin upp í 2. gr. þeirra laga sem enn eru í gildi, sú regla, að þegar foreldrar óskilgetins barns gengju í hjúskap síðar skyldi barnið talið skilgetið upp frá því. Í því sambandi eru sérstaklega athyglisverðar upplýsingar í endurnýjaðri grg. frv. Er þar skýrt frá tölfræðilegri könnun, sem birt er í Hagtíðindum 1978 og gerð var af Guðna Baldurssyni og veitir m. a. upplýsingar um fjölskyldustöðu barna fæddra 1970 við fæðingu og síðan við upphaf hvers aldursárs til 1. des. 1975. Kemur þar fram, að ferill barnanna breytist að hundraðshluta til á þessum 5 árum þannig að óskilgetin töldust við fæðingu 30%, en að 5 árum liðnum töldust aðeins 13% óskilgetin vegna hjúskaparstofnunar foreldranna á tímabilinu. Felast í þessu hinar athyglisverðustu upplýsingar um hina íslensku fjölskyldugerð. Í þessu sambandi mundi hin nýja víkkun hugtaksins ,skilgetið barn“ ekki valda mikilli breytingu að hundraðshluta til. Vandamál í þessu efni er fyrst og fremst að finna traust greinimörk um hvað sé óvígð sambúð með þeirri lagaverkun sem samkv. frv. er ætlað að færa nokkrum fjölda barna stöðu skilgetins barns.

Það er eitt af einkennum frv. að reynt er að láta í sem flestum efnum reglur um forsjá og framfærslu vera hinar sömu og ákvæði um þær í einu lagi um skilgetin og óskilgetin börn. Þessu fylgir jafnframt að föður óskilgetins barns er ætlaður mun meiri réttur og skyldur bæði um forsjá og umgengni en er eftir gildandi lögum.

Í ýmsum efnum eru í frv. ítarlegri reglur en í gildandi lögum um úrlausn vandamála í sambandi við stöðu barna við samvistaslit foreldra, hvort heldur eftir hjúskap eða óvígða sambúð.

Í sambandi við framfærslu barna er sú breyting, sem ráðgerð er í frv., væntanlega veigamest að hækka framfærslualdur barna í 18 ár úr 17 árum, sem verið hefur frá árslokum 1971, en þar áður 16 ár. Yrðu framfærslualdur og skylda þar með færð að sama aldursmarki og er á öðrum Norðurlöndum, en 18 ára markið hefur tengi verið þar hið sama bæði um sjálfræðis- og framfærslualdur. Ekki er ætlað að hrófla með þessu frv. við hinu hefðbundna aldagamla sjálfræðismarki við 16 ára aldur hér á landi.

Taka verður fram, að ekki er með þessu lagafrv. farið inn á svið almannatrygginga um að ákveða hækkun aldurstakmarks við greiðslu á framfærslueyri vegna barna samkv. almannatryggingalögum. Ætla verður að slík breyting hljóti að koma til umræðu ef lögfest verður hækkun framfærslualdurs.

Ekki er horfið að hækkun aldursmarks eingöngu til samræmis við lagaákvæði í nágrannalöndum. Hér hafa fyrst og fremst ráðið breytingar í okkar þjóðfélagi. Skólaganga barna og unglinga lengist jafnt og þétt og börn dveljast af þeim sökum lengur en áður hjá foreldri, þrátt fyrir gamlar hefðir um að menn fari ungir út á vinnumarkað.

Önnur ákvæði í frv. veita heimild til framlengingar á framfærsluskyldu allt til 24 ára aldurs vegna námsaðstæðna eða starfsþjálfunar.

Geta verður í sambandi við framfærslu barna rýmri heimilda til greiðslu framfærslueyris af almannafé ef ekki hefur fengist feðrun á barni.

Jafnstaða er betur mörkuð en áður um meðlagsskyldu kvenna sem karla vegna barna sem ekki eru á vegum þess aðila sem í hlut á.

Miklu ítarlegri ákvæði eru í frv. en í gildandi lögum um meðferð barnsfaðernismála og mála um vefengingu faðernis. Fer það að vonum vegna mjög bættra möguleika á ætternisákvörðun vegna mikilla framfara í vísindum. á þessu sviði.

Þá má benda á að í VIII. kafla frv., um foreldraskyldur, forsjá barns og umgengnisrétt, eru miklu ítarlegri ákvæði en í gildandi löggjöf og áhersla lögð á rétt barnsins fremur en rétt foreldris og orðafar í samræmi við það — forsjá nefnd í stað foreldravalds.

Ég tel ekki ástæðu til að ræða réttarfarsreglur frv., en tel rétt að vekja athygli á einu mjög mikilvægu atriði í því sambandi sem varðar lögsögu íslenskra dómstóla. Varðar það heimild þeim til handa til að fjalla um slík mál, ef móðir barns eða barnið sjálft á lögheimili hér á landi. Er það mjög mikilsverð réttarbót sem þegar er komin inn í löggjöf annarra Norðurlanda.

Ég vil að endingu vekja athygli á hugleiðingum í tveimur fskj. með grg. frv. Þau varða atriði er ekki hefur þótt tímabært að taka inn í frv.

Í fyrra fskj. má nefna ábendingar um nýjar lagareglur í nokkrum löndum sem heimila sameiginlega forsjá skilinna foreldra fyrir barni þeirra. Í síðara fskj. er gerð grein fyrir hugmynd um að stofna til starfs umboðsmanns barna. Hafa hugmyndir um það efni komið fram í ýmsum löndum og till. um það efni m. a. gerð í nýrri norskri grg. um lagafrv. sem hefur þó ekki enn verið lagt fyrir norska þingið.

Þá vil ég að lokum geta þess sem ég nefndi áðan, er tekið var fyrir frv. til l. um stofnun og slit hjúskapar, að 18. maí það frv. er fylgifrv. með þessu frv. og ber að fylgja því, ef frv. þetta verður að lögum, þótt ekki verði fyrr en á næsta þingi. Þar er um að ræða að tengja ákvæði um stofnun og slit hjúskapar 47. og 48. gr. þessa frv.

Ég vil að lokum endurtaka, að ég vona að mál þetta fái vinsamlegar móttökur í deildinni, og legg til að því verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.