18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4967 í B-deild Alþingistíðinda. (4297)
251. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. minni hl. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Undanfarin ár hefur mjög verið til umræðu í samtökum iðnaðarins og meðal sveitarfélaga að stofna til svokallaðra iðngarða, þ. e. a. s. að koma upp iðnaðarhúsnæði fyrir iðnfyrirtæki með sameiginlegu átaki einstaklinga, félagssamtaka og sveitarfélaga. M. a. gerðist það á iðnkynningarári ekki alls fyrir löngu, að þetta mál kom mjög til umræðu, m. a. — ætla ég — á flestum þeim iðnkynningardögum sem haldnir voru bæði hér í Reykjavík og víðs vegar um land.
Þetta mál þarf auðvitað að undirbúa mjög vel. Flutt var á öndverðu þessu þingi till., flm. þeir Eggert Haukdal og Guðmundur Karlsson, um að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf um þetta mál með samstarfi einstaklinga, félagssamtaka og sveitarstjórna og stuðningi ríkisins. Í þessari till. var einnig tekið fram að hafa skyldi samráð við Samband ísl. sveitarfélaga, Iðnlánasjóð, Iðnþróunarsjóð, Byggðasjóð, Félags ísl. iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna og könnun þessari og undirbúningi skyldi hraðað svo sem unnt væri. Atvmn. Sþ. fékk till. þessa til meðferðar, mælti einróma með samþykkt hennar og fyrir fáum dögum, 15. maí, samþykkti Alþ. hana sem ályktun sína.
Það frv., sem hér liggur fyrir, stjfrv. um breyt. á lögum um Iðnlánasjóð, beinist að því að stofna skuli í Iðnlánasjóði sérstaka lánadeild iðngarða. Nú væri auðvitað eðlilegast að þetta frv. biði þeirrar athugunar sem Alþ. hefur sjálft samþ. að fram skuli fara, og ég vænti þess, ef myndarlega er að staðið og framfylgt ályktun Alþ., að þá ætti ríkisstj. að geta haft á næsta hausti til frv. með tillögum um lausn þessa mikilvæga máls og unnt yrði að leggja það fyrir Alþ. og afgreiða það á næsta þingi. Um þetta mál í heild, iðngarðana, virðist vera mjög víðtæk samstaða.
Ég verð að telja harla óeðlilegt að taka einn þátt þessara mála út úr og ákveða nú að lítt athuguðu máli að stofna lánadeild iðngarða við iðnlánasjóð. En þó verður þetta enn furðulegra þegar þess er gætt, að með frv. er engin lausn þessara mála fundin, vegna þess að það er ekkert nýtt fé, enginn tekjustofn, ekkert nýtt fjármagn ætlað til þessara mála í frv., heldur eingöngu ákveðið að taka af almennu ráðstöfunarfé Iðnlánasjóðs 1 milljarð kr. á fjórum árum, eða 250 millj. á ári, og leggja til þessara hluta. Hið mikilvæga mál, iðngarðarnir, verður ekki leyst með svona vinnubrögðum. Það verður ekki leyst nema með sameiginlegu átaki þeirra aðila, sem hér eiga hlut að máli, og með því að leita samráðs við ýmsa sjóði, m. a. þá sem nefndir eru í þeirri ályktun sem Alþ. hefur nú samþ. Það má vera að stofnun sérstakrar lánadeildar innan Iðnlánasjóðs yrði ein af þeim leiðum sem mönnum þætti rétt að fara, en auðvitað eru það engin vinnubrögð að skoða það ekki í samhengi við öll önnur atriði þessa máls.
Við í minni hl. iðnn., hv. 7. landsk. þm., Jósef H. Þorgeirsson, og ég, höfum skilað sérstöku nál. á þskj. 774, rekjum þar þessi viðhorf, sem ég nú hef rætt, og leggjum því til, og er auðvitað rökrétt afleiðing af samþykkt Alþ. fyrir þrem dögum, að þetta frv. verði afgreitt með rökstuddri dagskrá á þá leið, að þar sem Alþ. hefur þegar samþ. þál. um að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf um iðngarða í samráði við ýmsa aðila og í trausti þess, að frv. til slíkrar löggjafar verði lagt fyrir næsta Alþ., tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Þær brtt., sem meiri hl. n. flytur, eru út af fyrir sig til bóta á frv. og gerðar eftir ábendingu stjórnar Iðnlánasjóðs. En ég vil taka það skýrt fram og láta það koma fram hér, að stjórn Iðnlánasjóðs mælir í umsögn sinni hvergi með því að þetta frv. verði samþ. Hins vegar leggur hún til að gerðar verði breytingar á frv., og er það auðvitað miðað við það, að ef frv. eigi að verða að lögum þurfi að lagfæra það í ýmsum greinum.
Varðandi það fé, sem þannig á að taka af hinu almenna ráðstöfunarfé Iðnlánasjóðs, segir stjórn sjóðsins að hún telji ekki verjandi að skerða fjármagn sjóðsins svo mjög sem hér er lagt til, leggur til að það sé í fyrsta lagi ekki látið ná til ársins í ár, og það hefur meiri hl. n. fallist á, og í öðru lagi að þá verði alls ekki tekið meira en 200 millj. á ári af sjóðnum til þessara þarfa. Á það sjónarmið hefur meiri hl. n. ekki viljað fallast.
Ég tel ekki ástæðu til að ræða hér frekar þetta mikilvæga mál. Ég vænti þess, að sú ályktun, sem Alþ. hefur einróma samþ., verði til þess að unnið verði skynsamlega að málinu og þar verði höfð betri og hyggilegri vinnubrögð en höfð hafa verið um undirbúning þessa frv.