09.11.1978
Sameinað þing: 17. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (432)
33. mál, niðurfelling aðflutningsgjalda á vélum til fiskiðnaðar
Guðmundur Karlsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundi H. Garðarssyni, að flytja svo hljóðandi þáttill., með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta semja frv. til l. um nauðsynlegar lagabreytingar, svo að niðurfalli aðflutningsgjald, vörugjald og söluskattur á vélum, tækjum og öðrum búnaði til fiskiðnaðar, og leggja það fyrir yfirstandandi þing.“
Till. þessi er flutt, eins og segir í meðfylgjandi grg., til þess að bæta rekstrarkjör fiskiðnaðarins, gera hann hæfari til að mæta harðnandi samkeppni á erlendum mörkuðum og til að auka hagræðingu og framleiðni innan atvinnugreinarinnar.
Mikils er um vert, að íslensk fiskiðnaðarfyrirtæki búi við svipuð kjör og sams konar fyrirtæki með öðrum þjóðum sem keppa við okkur á heimsmarkaðinum. Margar þjóðir hafa nú á prjónunum stórfelldar áætlanir um uppbyggingu og eflingu sjávarútvegs í kjölfar útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur. Kanadamenn hyggja t.d. á mikla uppbyggingu fiskveiðiflota síns og fiskiðnaðar og gera nú þegar svo harða hríð að stöðu okkar á síldarmörkuðum í Evrópu, að vart verður séð hvað af hlýst. Tæpast verður þess langt að bíða, að þeir láti sverfa til stáls á Bandaríkjamarkaði, sem er okkur mikilvægastur og dýrmætastur fiskmarkaða.
Í þriðja heiminum er mikil og vaxandi uppbygging í sjávarútvegi, og eðlilega sækja þjóðir hans með auknum þunga inn á dýrustu markaðina. Bjóða nú sumar þjóðir Suður-Ameríku og reyndar Kórea líka ágæta fiskblokk fyrir um helming þess verðs sem við fáum fyrir framleiðslu okkar.
Við höfum átt í tímabundnum erfiðleikum á skreiðamörkuðum okkar í Afríku og á saltfiskmarkaði í Portúgal. Veldur það m.a. því, að meira fer af fiski í frystingu en ella.
Ekki þarf að lýsa fyrir hv. alþm. hinum miklu greiðsluörðugleikum sem stór hluti fiskiðnaðarfyrirtækja hefur átt við að stríða að undanförnu, og hafa þau því ekki getað sinnt eðlilegri og nauðsynlegri endurnýjun, viðhaldi og framþróun.
Í riti Framkvæmdastofnunar ríkisins um þróun atvinnulífsins, 1. hefti, sem út kom í apríl s.l., segir, með leyfi forseta:
„Þjóðhagsleg arðsemi fjárfestingar er hæst í fiskvinnslu.
Framleiðni vinnuafls og nýting fastafjármuna í fiskvinnslu er slík, að öll líkindi eru á miklum þjóðhagslegum ábata af eflingu fiskvinnslunnar með frekari úrvinnslu hráefnis og auknum atvinnutækifærum miðað við hinar framleiðslugreinarnar. Slík efling gæti víða orðið með aukinni hagræðingu í vinnslunni og bættri nýtingu á hráefni og þeim framleiðslutækjum sem fyrir eru“.
Nú er það svo, að aukinni hagræðingu og bættri nýtingu verður oft ekki við komið nema með kaupum á nýjum vélum og öðrum búnaði. Vélar, tæki og búnaður til fiskvinnslu og fiskiðnaðar eru oftast sérsmíðuð og því mjög dýr. Hluta erlenda kostnaðarins má gjarnan fá að láni, en aðflutningsgjöld verður að staðgreiða, og kemur það því heldur óþyrmilega við létta pyngju fyrirtækjanna og gerir þeim oft ókleift að ráðast í nauðsynleg kaup.
Fiskiðnaðarfyrirtækin eru víðast í bæjum og þorpum landsins undirstaða alls atvinnulífs, og velgengni viðkomandi byggðarlaga byggist í einu og öllu á afkomu þeirra og verður byggðastefnusjónarmiðum því ekki á annan hátt betur sinnt en með eflingu fiskvinnslufyrirtækjanna.
Þá ber að hafa í huga að útflutningur sjávarafurða stendur undir um 90% af heildarútflutningsverðmæti þjóðarinnar ef ál er undanskilið, en annars um 75%. Í samþykktum hagsmunasamtaka fiskiðnaðarins hefur oft komið fram að undanförnu, að niðurfelling aðflutningsgjalda væri ein þeirra leiða sem helst kæmi til greina til að bæta afkomu atvinnugreinarinnar.
Í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er fyrirheit um að útflutningsverðmæti verði aukin með betri nýtingu og aukinni fiskvinnslutækni. Engin aðferð er auðveldari og fljótvirkari til að ná þessum markmiðum en að fella niður aðflutningsgjöld, eins og gert er ráð fyrir í till. þessari.
Við flm. teljum samþykkt till. eina hraðvirkustu aðferðina til að bæta meðferð hráefnis í fiskiðnaðinum, til að auka hagræðingu og framleiðni innan hans, til að tryggja batnandi hag fyrirtækja og alls almennings úti á ströndinni og til að fiskiðnaður megi áfram verða sá burðarás atvinnulífs sem hann hefur verið víðast um landið. Flm. treysta því, að ríkisstj. leggi fljótlega fram frv. það, sem þáltill. gerir ráð fyrir, og legg ég til að að lokinni umr. verði till. þessari vísað til hv. atvmn.