18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4995 í B-deild Alþingistíðinda. (4322)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég heyrði að vísu ekki öll orð hv. 1. þm. Vestf. þegar hann hóf mál sitt, því að ég var þá ekki í forsetastóli, heldur varaforseti. En einhvern ávæning heyrði ég samt af því sem hann hafði fram að færa, og ég tek orð hans ekki mjög alvarlega. Ég hygg reyndar að þau hafi verið sögð í skyndilegum skapofsa og hef enga ástæðu til þess að ætla að vert sé að fara að erfa slík orð í minn garð sem forseta og geri það ekki.

En mig langar til þess að benda hv. þm. og öðrum á, að hér er 21 mál á dagskrá og þegar er nú búið að taka fyrir 14 mál. Þetta eru allt saman meira og minna mikilvæg mál og reyndar öll, trúi ég. Sum þeirra eru deilumál sem tekur langan tíma að ræða, en ég held samt að mín aðferð við fundarstjórnina hafi m. a. ráðið því að búið er þó að taka fyrir þetta mörg mál að tölunni til, sem gerist m. a. með því að fresta umr. af og til um mál, sem langdregnar umr. verða um, og taka inn mál, sem að mínu mati voru þess eðlis að umr. yrðu fremur litlar þó að þau séu allmörg talsins.

Þess vegna held ég að það sé óþörf aðfinnsla hjá hv. 1. þm. Vestf. að halda því fram að hér sé ætt úr einu í annað. Þetta er mjög algeng aðferð við fundarstjórn hér á Alþ., og ég held satt að segja að forseti eigi oft og tíðum ekki aðra leið ef hann vill koma málum skynsamlega fram. Þetta veit ég að hv. þm. Matthías Bjarnason veit og skilur.

Einnig vil ég minna á að hér eru ákaflega mörg mál á dagskrá, og það er ekki óeðlilegt af og til og einkum í þinglok þó að fundir dragist nokkuð, ekki síst þegar svo mörg mál eru á dagskrá sem nú. Ég er orðinn nokkuð þingvanur maður og ég man sjaldan eftir því að svo mörg mál væru á dagskrá í Nd. og verið hefur undanfarna daga. Vissulega er forseti mjög háður þdm. um það, hvernig mál ganga fram, og ég vona að þdm. sýni alla þá viðleitni til samvinnu við mig sem forseta sem þeim er frekast kostur. En því vil ég mótmæla, að ég hafi sýnt hlutdrægni nokkrum manni hér í d. Ég held að það sé alrangt. Þetta hlýtur að vera sagt í einhverju sérstöku bræðikasti míns góða vinar Matthíasar Bjarnasonar. En að öðru leyti skal ég ekki ræða málið.