18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5016 í B-deild Alþingistíðinda. (4331)
151. mál, framhaldsskólar
Frsm. minni hl. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Eins og þingheimi er kunnugt, hefur við 2. umr. þessa máls komið fram nál. frá minni hl. menntmn. flutt af okkur hv. þm. Ólafi G. Einarssyni, þar sem lagt var til að frv. yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá. Þessi till. var felld í lok 2. umr. Þingheimi er jafnframt kunnugt um að þingflokkur Sjálfstfl. hefur eindregið óskað eftir því, að þetta frv. yrði ekki afgreitt á þessu þingi. Þrátt fyrir miklar annir hér í þinglok og þrátt fyrir að ríkisstj. leggur mikla áherslu á ýmis önnur mál hefur ekki verið orðið við þessari beiðni og svo mikið kapp er lagt á að þetta mál nái fram að ganga, að hér eru haldnir í þinginu kvöldfundir dag eftir dag. Nú er langt liðið á nóttu, og eftir því sem mér skilst er ætlunin að halda þessari umr. áfram eitthvað fram eftir nóttu. Okkur sjálfstæðismönnum er að sjálfsögðu ekkert að vanbúnaði að ræða þetta frv., og ég held að öllum sé ljóst, sem hér hafa verið í kvöld, að við erum tilbúnir að ræða ýmis önnur mál nú í þinglokin, þannig að þetta frv. og ýmis önnur fái fyrir vikið ítarlegri meðferð og um þau verði fjallað í löngum og góðum ræðum. Ég mun fyrir mitt leyti gera það hvað varðar frv. til l. um framhaldsskóla. En áður en ég vík ítarlega að þessu máli og einstökum ákvæðum þess og einstökum atriðum í frv. hef ég hugsað mér að leggja fram brtt. við frv. Sú brtt. er við 4. gr. frv., 2. mgr., og er lagt til að greinin orðist svo:
„Heimilt er að setja í reglugerð ákvæði um lágmarkskröfur í einstökum greinum til inngöngu í tiltekna námsáfanga, enda gerir skólinn nemendum kleift að uppfylla slíkar lágmarkskröfur. Öll slík skilyrði skulu reist á raunhæfu mati á kröfum viðkomandi greinar.“
Þessi till. er samhljóða till. sem menntmn. hefur borist frá Hinu íslenska kennarafélagi, og breytingin er fólgin í því, að inn í greinina er bætt orðunum: „enda geri skólinn nemendum kleift að uppfylla slíkar tágmarkskröfur“. Með þessu er gert ráð fyrir að koma megi í veg fyrir að nemendur séu útilokaðir frá námi í tilteknum skólum. Ég held að þessi ábending frá Hinu íslenska kennarafélagi eigi rétt á sér, og ég legg til að þessi breyting verði gerð á frv. Áður en ég held lengra áfram nú eða þá á morgun, þá óska ég eftir að afbrigði fáist fyrir þessari brtt.