09.11.1978
Sameinað þing: 17. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í B-deild Alþingistíðinda. (434)

33. mál, niðurfelling aðflutningsgjalda á vélum til fiskiðnaðar

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ríkisstj. og þá sérstaklega hæstv. sjútvrh. fyrir framgöngu hennar í þessu máli, eins og kom fram í ummælum hæstv. sjútvrh. hér áðan. Þarna hefur unnist mikill sigur í miklu hagsmunamáli sjávarútvegsins.

Mig langar að ræða hér lítillega greinilega hugarfarsbreytingu sjálfstæðismanna í þessu máli. Þessi þáltill. var eitt af fyrstu málum þingsins, borin fram af tveimur hv. þm. Sjálfstfl. Mér finnst það skjóta heldur skökku við fyrir Sjálfstfl. að hafa haft tækifæri til í fjögur ár, með bæði sjútvrh. og fjmrh. í síðustu ríkisstj., að hrinda þessu réttlætismáli í framkvæmd, en gera ekkert í málinu, heldur leggja nú fram ályktun um þetta mál. Það er bersýnilega sitthvað að vera í stjórn og stjórnarandstöðu.

Niðurfelling söluskatts af vélum og tækjum til fiskiðnaðar var eitt af meginatriðunum við ákvörðun fiskverðs síðast, eins og hæstv. sjútvrh. drap á áðan. Það hefur varla verið haldinn fundur íslenskra sjávarútvegsmanna um áraraðir, þar sem þessi mál hafa ekki verið rædd og þar sem gerðar hafa verið ályktanir um að fella niður þessi gjöld.

Ég fagna því innilega, að núv. ríkisstj. hefur leyst þetta eitt af brýnustu hagsmunamálum íslensks fiskiðnaðar.