18.05.1979
Sameinað þing: 98. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5025 í B-deild Alþingistíðinda. (4348)
193. mál, endurskoðun laga um almannatryggingar
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Allshn. barst till. til þál. um endurskoðun laga um almannatryggingar og undirbúning löggjafar um verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, á þskj. 371, flm. Alexander Stefánsson o. fl. N, athugaði till. þessa. Hún er um viðamikið mál. Þetta mál er til meðferðar hjá ríkisstj., þar er nefnd að störfum sem vinnur að hluta þessa verks. En þarna eru talin upp fleiri atriði en við höfum vissu fyrir að nefndin væri að vinna að, og þess vegna þótti okkur mikilvægt að afgreiða þessa till. og koma henni á framfæri við nefndina. Þess vegna hljóðar texti nál. þannig:
„N. hefur athugað till. og telur rétt að vísa henni til ríkisstj. með jákvæðri umsögn.
Alþingi, 16. maí 1979.
Páll Pétursson, Ellert B. Schram, Vilmundur Gylfason, Lárus Jónsson, Bjarnfríður Leósdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson,
Gunnlaugur Stefánsson.“