19.05.1979
Efri deild: 110. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5048 í B-deild Alþingistíðinda. (4381)

19. mál, dómvextir og meðferð einkamála í héraði

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Mér þykir leitt að hv. þm Vilhjálmur Hjálmarsson hefur ekki skilið röksemdafærslu mína um þetta mál. Ég skal reyna að útskýra nokkru nánar hvers vegna ég tel óeðlilegt og við margir fleiri að verið sé að miða við vexti eins og þeir eru á hverjum tíma. Nú skulum við hugsa okkur að mál hafi verið fyrir dómstólum árum saman og margvíslegar vaxtabreytingar hafi átt sér stað upp og niður á þeim tíma, síðan, þegar málið er tekið til dóms á lokastigi, hafi stjórnvöld á þeim tíma, í þeim mánuði eða þeirri viku jafnvel, verið að skipta yfir í lágvaxtastefnu, vegna þess að breyst hafi skilyrði til hagstjórnar eða þá að breyst hafi pólitískir vindar og þeir, sem fylgjandi eru lágvaxtastefnu, séu við völd. Þá væri það bein afleiðing þessa, að fyrir þá tilviljun eina saman, að ráðamenn eru fylgjandi lágvaxtastefnu þegar dómurinn er upp kveðinn, mun krafan að lokum hljóta miklu minni verðtryggingu heldur en ef dómurinn hefði verið kveðinn upp t. d. tveim mánuðum áður, þegar við völd voru fylgjendur hávaxtastefnu.

Ég hefði haldið að það væri svo einfalt atriði að það þyrfti ekki að útskýra það í mörgum orðum hér, hvaða áhrif það getur haft ef það verða pólitískar breytingar, annaðhvort fyrir tilstuðlan stjórnmálabreytinga eða þá að valdhafar fari að aðhyllast aðrar kenningar í hagstjórn en þeir hafa gert áður, að láta það síðan verka á verðtryggingu þeirra mála sem eru fyrir dómstólunum. Það er einmitt þetta atriði sem við erum að mótmæla í grundvallaratriðum, að sú vaxtastefna, sem ríkjandi er á þeirri stundu þegar dómurinn er kveðinn upp, eigi að vera ráðandi um það, hvaða verðtryggingu kröfur hljóti sem hafa e. t. v. verið í meðferð dómstólakerfisins árum saman þegar allt önnur vaxtastefna hefur verið ríkjandi. Þess vegna einmitt er innlánsvaxtagrundvöllurinn ónothæfur í þessu skyni, og það er það sem þeir ágætu lögfræðingar, sem hafa snúið hv. þm. Vilhjálmi Hjálmarssyni, einfaldlega virðast ekki skilja, af því að þeir hafa ekki hugsað út í það, heldur hafa einblínt á einhver furðuleg og þröng sjónarmið þeirra sem starfa við einhvern tiltekinn dómstól hér í borginni. Rökstuðningur þeirra liggur að öðru leyti ekki fyrir, þannig að ég get ekki dæmt um það sérstaklega hvaða hvatir eða kenningar liggja þar að baki.

Ég vil aðeins benda hv. þm. Vilhjálmi Hjálmarssyni á það, að það er fyllilega möguleiki að lögfræðingar misskilji mál eins og hverjir aðrir, og það er ekki trygging fyrir því, þótt þeir hafi látið eitthvert álit í té, að þar með sé endilega rétt með málið farið. Mér finnst einmitt allar þær ábendingar og þær brtt., sem komið hafa frá þessum ágætu mönnum, sýna að þeir hafa ekki skilið kjarna málsins.

Í þessu skyni verðum við að taka upp einhverja þá verðtryggingarmælikvarða sem eru óháðir breytingum á pólitísku mati hvað snertir vaxtastefnu og annað. Byggingarvísitalan eða einhver önnur slík vísitala, gefin út af Hagstofu Íslands, er einmitt slíkur mælikvarði sem er óháður því hvaða pólitíska stefna er ráðandi hverju sinni. En hv. þm. Vilhjálmur Hjálmarsson er einmitt að leggja til að það sé hin pólitíska stefna, en ekki sjálfstæður og óháður verðmælikvarði, sem eigi að ráða því á hvern hátt kröfur eru tryggðar, af því að vaxtastefnan er pólitískt mat á hverjum tíma, hlýtur alltaf að vera það og mun ávallt verða það. Við erum hins vegar með ýmsa aðra mælikvarða í þessu þjóðfélagi, eins og verðlagsvísitölur og byggingarvísitölur af ýmsu tagi, sem eru óháðar sviptivindum í stjórnmálunum.

Þeir, sem hafa samþ. þetta frv. í gegnum Nd. og í gegnum tvær umr. í þessari deild, vilja láta þennan verðtryggingarmælikvarða verða óháðan hinum pólitísku sviptivindum. Hér er verið að leggja til með þessari brtt. að það séu pólitískir sviptivindar sem eigi að ráða stefnunni í vaxtamálum, sem eigi að hafa úrslitaáhrif á það, á hvern hátt þegnarnir í þessu landi fái kröfugerð sína fyrir dómstólum verðtryggða.

Ég verð að segja eins og er, að ég skil ekki hvers vegna verið er að halda þessu til streitu. Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvers vegna hv. þm. Vilhjálmur Hjálmarsson, þrátt fyrir þessar ábendingar sem hann hefur fengið, vill halda þessu máli þannig til streitu, nema það sé þá stefnuatriði hans og annarra að þeir, sem þurfa að sækja mál sín fyrir dómstólum þessa lands, eigi einfaldlega ekki að fá rétta og sanna verðtryggingu. Ef það er afstaðan, að menn eigi ekki að fá fulla og sanna verðtryggingu, þá er rétt að segja það, vegna þess að sú brtt., sem hér er lögð fram, kveður alls ekki á um það.

Það mátti lesa í blaði fyrir nokkrum dögum grein eftir íslenskan hagfræðing sem nýlega hefur lokið við doktorsritgerð við háskóla í Kanada. Það er kenning þessa hagfræðings að einhver réttasta aðgerð í íslenskum efnahagsmálum væri að snarlækka vextina. Nú skulum við segja að einhverjir pólitískir ráðamenn næðu þeim tökum hér í landinu að þeir gerðu þennan hagfræðing að æðsta presti þess páfadóms í peningamálum, sem hér hefur ríkt, og færu eftir hans ráðum. Þá mundu verðtryggingarkerfin fyrir dómstólunum þar með taka stökkbreytingu, og það hlýtur að vera óeðlilegt eins og ég hef sagt margoft í þessum útskýringum mínum.

Ég vil þess vegna eindregið mælast til þess við hv. deild að hún felli þessa brtt. Öll efnisrök og skýr hugsun hlýtur að segja mönnum það, að ef tilgangur þessa frv. á að nást verður að fella þessa brtt. Hitt er svo e. t. v. tilefni til umr. sem ég ætla ekki að fara út í hér, að ýmsir ágætir lögfræðingar þessa lands, með allri virðingu fyrir lögfræði sem fræðigrein, eru að reyna að hafa áhrif á efnisinntak lagasetningar hér á Alþ. í krafti einhverra tæknilegra ráðlegginga, því það er misskilningur að þessi breyting sé bara tæknileg. Hún er í grundvallaratriðum efnisbreyting.