19.05.1979
Neðri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5053 í B-deild Alþingistíðinda. (4408)
151. mál, framhaldsskólar
Frsm. minni hl. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Eins og ég gat um í gærkvöldi, þegar ég ræddi um þetta mál, eru miklar annir nú í þinglokin og ljóst að ýmis mál þurfa að ná fram að ganga og ekki síst samkv. ákvörðunum og óskum hæstv. ríkisstj. Þá hefur sú venja skapast í gegnum árin, að haft er samráð við stjórnarandstöðuna um að greiða fyrir því að ákveðin mál fái hér afgreiðslu án mikilla tafa og án mikilla umr. Þetta hefur verið gert þessa dagana einnig og í þeim viðræðum kom það fram, að þingflokkur Sjálfstfl. hefur eindregið óskað eftir því að frv. til laga um framhaldsskóla yrði ekki afgreitt á þessu þingi. Þrátt fyrir þessa eindregnu ósk virðist það vera ákvörðun hæstv. ríkisstj. og hæstv. menntmrh. að knýja á um afgreiðslu þessa máls.
Þessum málalokum höfum við sjálfstæðismenn ekki unað og munum fyrir vikið væntanlega fara allítarlegum orðum um þetta frv. og um þau sjónarmið sem liggja að baki því. Hins vegar vil ég taka fram með hliðsjón af þeim umr, sem fram hafa farið manna á meðal í þingsölum og í þinggöngum í gær og í dag, að það er mikill misskilningur að við höfum fram að þessu haldið uppi einhverju málþófi eða tafið sérstaklega fyrir þessu máli fram að þessu. Nú er málið til 3. umr. en í gær komst þetta mál alls ekki að vegna málþófs stjórnarsinna sjálfra í ýmsum öðrum málum. Vil ég í því sambandi nefna að hér voru haldnar maraþonræður af hálfu stjórnarsinna um t. d. ríkisreikninginn og um frv. til l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Meðan stjórnarsinnar sjálfir eru að tefja hér fyrir margvíslegum málum er ekki við stjórnarandstöðuna að sakast, enda þótt hún hafi skoðanir á einu máli eins og þessu og vilji tjá sig um það.
Ég vil líka láta þá skoðun koma fram, að afstaða þingflokks Sjálfstfl. þess efnis, að þetta mál nái ekki fram að ganga, byggist á mörgum rökum. Það liggur fyrir að fjölmargir aðilar, sem þetta frv. hafa fengið til umsagnar, hafa haft ýmsar athugasemdir fram að færa og óska eftir að málið verði athugað betur. Á það bæði við um kostnaðarhlið málsins svo og hina kennslufræðilegu.
Það hefur jafnframt komið fram, að innan stjórnarliðsins sjálfs eru miklar efasemdir um það, hvort rétt sé að málið fái afgreiðslu nú. Í því sambandi vil ég leyfa mér að vitna til bókunar sem gerð var á fundi menntmn. Nd. 3. maí s. l., en þar segir svo í bókun nefndarinnar:
„Sighvatur Björgvinsson skýrði frá þingflokksfundi Alþfl. í gær. Þar skiptar skoðanir. Meiri hl. taldi afgreiðslu ekki tímabæra af ýmsum ástæðum. M. a. fyrirmæli í efnahagslögum um að fram skuli leggja kostnaðarlega úttekt frá fjárlaga- og hagsýslustofnun, og gat jafnframt fleiri sjónarmiða, m. a. að málið yrði frekar skoðað í umr. Ágreiningur um þetta verður nú ræddur í ríkisstj. og munu fulltrúar Alþfl. ekki undirrita nál. fyrr en að því loknu, ef samkomulag þá næst.“
Ég held að það fari ekki á milli mála, þegar þessi bókun er lesin, að a. m. k. 3. maí var meiri hl. þingflokks Alþfl. andvigur því að þetta mál fengi afgreiðslu á þessu þingi. Það eru því fleiri en við í þingflokki sjálfstæðismanna sem hafa sett fram þessar óskir. Og það eru fjölmargir aðilar utan þings: skólamenn, sveitarstjórnir o. s. frv., sem leggjast eindregið gegn því að málið nái fram að ganga núna.
Hér er um gríðarlega stórt og viðkvæmt mál að ræða, — mál sem felur það í sér að breyta fræðslukerfinu, breyta skólakerfinu í grundvallaratriðum á framhaldsskólastiginu, og vitaskuld þarf þingið að gera sér fullkomlega ljóst hvaða skref það er að stíga og hvaða áhrif og afleiðingar það muni hafa að ný lög taki gildi.
Ég er ekki viss um að einstakir þm. séu búnir að kynna sér þetta mál til hlítar. Ég held því að það sé nauðsynlegt nú við 3. umr. málsins að rifjuð séu upp nokkur meginatriði sem m. a. koma fram í grg. frv., þar sem gerð er grein fyrir þeim breytingum og þeim rökum, sem frv. felur í sér.
Á bls. 9 í grg. með frv. segir svo, með leyfi forseta: „Frv. hefur verið endurskoðað að nýju“ — en óþarfi er að geta þess, að þetta frv. hefur verið lagt fram áður hér á þingi og þá ekki fengið afgreiðslu. — „Frv. hefur verið endurskoðað að nýju og gerðar á því nokkrar breyt. Eru þessar helstar:
1. Tekin eru inn ákvæði um hlutdeild framhaldsskóla í fullorðinsfræðslu. Er m. a. kveðið á um aðgang fullorðinna að reglulegum námsáföngum skólanna auk stefnumarkandi ákvæðis um nýtingu kennsluaðstöðu í framhaldsskólum fyrir almenna fræðslustarfsemi.
2. Kaflanum um fjármál er breytt á þann veg að gert er ráð fyrir að tvö fyrstu ár framhaldsskólans séu kostuð sameiginlega af ríki og sveitarfélögum eftir hliðstæðum meginreglum og gilda um grunnskóla, en kostnaður af námi umfram tvö fyrstu árin greiðist af ríkissjóði.
Þá er tekið inn ákvæði um námsvistargjald, sem lögheimilissveitarfélag greiðir vegna þeirra nemenda sem tvö fyrstu skólaárin sækja skóla sem reknir eru af öðrum sveitarfélögum eða skóla fyrir mjög sérhæft nám sem reknir eru af ríkinu.
3. Tekin hafa verið inn fyllri ákvæði um setningu reglugerða, þar sem kveðið er á um aðila sem skulu vera rn. til aðstoðar við samræmingu þeirra.
Ákvæði um gildistöku laganna hefur verið breytt í því skyni að ljósara verði hvenær eldri lagaákvæði falla úr gildi.
Gert er ráð fyrir að menntmrh. flytji Alþ. ár hvert skýrslu um undirbúningsstarfið og kynni þinginu drög að reglugerðum sem eru á döfinni hverju sinni.“
Á bls. 11 í grg. er fjallað nokkuð um megintillögur frv., og þar segir, með leyfi forseta:
„N. leggur til að komið verði á samræmdum framhaldsskóla sem felur m. a. í sér eftirfarandi:
1. Öllum, sem lokið hafa grunnskólanámi, skal standa til boða eins til fjögurra ára nám, hvort sem stefnt er að sérhæfingu til starfs, almennu námi eða undirbúningi til náms á háskólastigi. Leitast skal við að hafa góða menntunaraðstöðu fyrir alla, hvar sem þeir eru búsettir á landinu.
2. Framhaldsskólinn skal skipulagður sem ein samræmd heild, en er hér greindur í 8 meginnámssvið til hagræðingar, sem hvert um sig greinist í námsbrautir. Nám á hverri námsbraut miðar að almennri menntun og undirbúningi til framhaldsnáms eða sérhæfingu til starfs eftir því hvernig námsáföngum er raðað saman. Námslok geta orðið í námi eftir eitt, tvö, þrjú eða fjögur ár eftir því að hvaða marki er stefnt. Þótt gert sé ráð fyrir skilgreindum námslokum eftir eitt ár eða fleiri, getur hver einstaklingur, sem hættir námi, haldið áfram síðar á sömu námsbraut eða annarri og fengið að fullu viðurkenndar þær einingar, sem hann hefur áður aflað sér.
Markaðar skulu leiðir til framhaldsnáms af öllum brautum.
3. Nám í framhaldsskóla skal skipulagt í námsáföngum og hver áfangi metinn til eininga sem miðast við eina kennslustund á viku í eitt skólaár, eða tvær á einni önn.
Með námseiningu er átt við það magn námsefnis sem telst hæfilegt fyrir meðalnemanda á fyrrgreindum tíma. Er þá einnig meðtalin nauðsynleg heimavinna og gildir þetta bæði um verklegt og bóklegt nám. Sömu námseiningu má kenna á mislöngum tíma allt eftir getu og hæfileikum þeirra nemenda sem hlut eiga að máli. Hver námsáfangi skal hafa fullt gildi þótt nemandinn flytjist milli námsbrauta, ef námsáfanginn heyrir til þeirri námsbraut sem skipt er yfir á. Í þessu tilliti geta tveir eða fleiri áfangar verið jafngildir enda þótt innihald þeirra sé ekki nákvæmlega það sama.
4. Lagt er til, að framhaldsskólar eigi hlut að fullorðinsfræðslu. Skulu fullorðnir eiga aðgang að reglulegum námsáföngum skólanna og auk þess er gert ráð fyrir að kennsluaðstaða í framhaldsdeildum verði nýtt fyrir almenna fræðslustarfsemi.
5. Gefnar skulu út námsskrár og skulu þær marka meginstefnu í námi og þjálfun nemenda hvort heldur námið fer fram í skóla eða á vinnustað. Við gerð námsskrár skal taka mið af nauðsynlegri þekkingu, þjálfun í starfi og/eða undirbúningi til áframhaldandi náms svo og mismunandi námshæfni nemenda. Leitast skal við að tryggja samræmingu náms í sömu námsgrein á mismunandi námsbrautum eftir því sem unnt er, en jafnframt nauðsynlega sérhæfingu eftir námsmarkmiðum.
6. Skipan námsbrauta á skólastofnanir skal haga með tilliti til aðstæðna og koma eftirtaldir kostir til greina: Mismunandi brautir innan sömu stofnunar, stjórnunarlega tengdar brautir í aðskildum stofnunum eða stakar brautir í sérgreindum stofnunum. Þar sem nemendafjöldi og önnur skilyrði leyfa skal leitast við að sameina mismunandi námssvið eða brautir í einni skólastofnun. Stefnt skal að því að í hverjum landshluta verði eins fjölbreytilegt val námsbrauta og við verður komið. Nýtt verði sem best það skólahúsnæði sem nú er fyrir hendi í landinu.
7. Námsstaður er hver sú stofnun sem sett hefur verið á fót til að annast ákveðna námsþætti innan heildarskipulagsins eða hefur hlotið opinbera viðurkenningu til þess. Auk skóla getur skólaverkstæði og fyrirtæki eða stofnanir verið námsstaður.
Skólinn skal vera þungamiðja hverrar námsbrautar og annast fræðilegan undirbúning og menntun, faglega og almenna. Enn fremur skal skólinn hafa umsjón með þeim þáttum námsins sem fara fram utan hans. Skólaverkstæði annast verklega undirbúningsmenntun og þjálfun. Fyrirtæki og stofnun annast þá verklega þætti námsins sem nátengdastir eru því starfi sem menntunin miðast við og verða ekki aðskildir frá því.
8. Miðað er við að tvö fyrstu ár framhaldsskólans verði kostuð sameiginlega af ríki og sveitarfélögum eftir hliðstæðum meginreglum og gilda um grunnskóla, en kostnaður af námi umfram tvö fyrstu árin greiðist af ríkissjóði. Lagt er til að tekið verði upp námsvistargjald sem lögheimilissveitarfélag greiðir vegna þeirra nemenda sem tvö fyrstu skólaárin sækja skóla sem reknir eru af öðrum sveitarfélögum eða skóla fyrir mjög sérhæft nám sem reknir eru af ríkinu.
9. Sett verði heildarlöggjöf um samræmdan framhaldsskóla og reglugerðir um einstakar námsbrautir og stofnanir eftir því sem nauðsynlegt kann að reynast.“
Síðan vil ég að lokum vitna til grg., varðandi þann þátt máls míns sem varðar beint tilvísun í grg., en það er tilvísun á bls. 13 um markmið framhaldsskóla. Þar segir:
„N. telur að markmið framhaldsskóla megi skilgreina efnislega sem hér segir:
1. að veita nemandanum almenna þekkingu og sjá honum fyrir viðfangsefnum sem auka alhliða þroska hans, auðvelda honum skilning á mannlegu samfélagi og virka þátttöku í því,
2. að veita nemandanum nauðsynlegan undirbúning undir störf og/eða áframhaldandi nám.
Þessi grundvallarmarkmið telur n. svara til þeirra viðhorfa til framhaldsskólans sem nú virðast ríkjandi og birtast m. a. í kröfum um að skólinn skuli:
1. veita nemendum nauðsynlega þekkingu og þjálfun til starfa í atvinnulífinu,
2. veita nemendum nauðsynlega undirbúningsþekkingu til áframhaldandi náms,
3. veita nemendum almenna þekkingu sem gerir þeim kleift að njóta þeirra menningarverðmæta sem við eigum, bæði í starfi og tómstundum,
4. efla siðgæðisvitund nemenda og kenna þeim tillitssemi í samskiptum við aðra,
5. gera nemendur færa um að taka sjálfstæða afstöðu til þeirra mála, sem eru efst á baugi á hverjum tíma, og afla sér nauðsynlegra gagna og upplýsinga sem til þess þarf.
Að áliti n. eru framangreind markmið framhaldsskólans, þ. e. hin almennu og faglegu, óaðskiljanleg. Þjóðfélag nútímans einkennist af fjölbreytileika og margvíslegum tengslum félagslegra þátta sem mótast af mismunandi hagsmunum og lífsviðhorfum. Aukin þekking á öllum sviðum svo og greiðari aðgangur að margvíslegum upplýsingum hefur áhrif á þróunina, en jafnframt eykst vandi einstaklingsins þegar að því kemur að velja og hafna. Í slíku þjóðfélagi skiptir miklu fyrir einstaklinginn að hann hafi góðan skilning á sem flestum þáttum þess og samspili þeirra og geti á hverjum tíma metið þarfir sínar, hagsmuni og stöðu með tilliti til heildarinnar.
Fagleg þekking er mikilvæg forsenda fyrir árangri í starfi, en tryggir hann ekki ein, hætt er við, að sá standi höllum fæti sem skortir þekkingu á hinu félagslega sviði. Framhaldsskólanum ber því að stuðla að auknu sjálfræði einstaklinganna í faglegu, menningarlegu og félagslegu tilliti.
Það er almennt viðurkennt að forðast beri mismun í aðstöðu á hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Í þessu efni hlýtur skólinn að leggja sitt af mörkum með því að skapa þau skilyrði fyrir einstaklinginn, að hann geti áttað sig á og metið þá möguleika sem honum standa til boða á sviði menntunar og starfs.
Nú á tímum breytist nauðsynleg þekking til ákveðinna starfa tíðum á skemmri tíma en einni starfsævi og það er algengt að menn skipti um starf, jafnvel oftar en einu sinni. Það er því nauðsynlegt að móta markmið fagmenntunar með þeim hætti, að auk tíma- og starfsbundinnar hæfni verði einnig lögð rækt við hina almennu menntun sem auðveldar aðlögun að breyttum aðstæðum og nýjum störfum síðar á ævinni.
Eitt af því, sem miklu máli skiptir fyrir æskilega þróun íslensks samfélags, er, að menntun sé skipulögð á þann veg, að nemandinn hafi jöfn tækifæri til að öðlast hæfni til starfa og fullnægja almennum menntunarþörfum sínum. Hér á landi hafa ríkt mismunandi viðhorf til verklegrar menntunar og bóklegrar og þessar tegundir náms búa við ójafna aðstöðu. Þeim sem farið hafa bóknámsleiðina hafa staðið flestar leiðir opnar til áframhaldandi náms og starfa. Hins vegar hafa verknámsbrautir í flestum tilvikum verið lokaðar og nemendur haft takmarkaða möguleiká til að skipta um námsbraut eða til framhalds. Á þessu hefur þó orðið nokkur breyting hin síðari ár og þarf að stuðla að því, að sú þróun haldi áfram. Þá hefur þróun byggðar í landinu m. a. leitt til þess, að búseta nemenda hefur veruleg áhrif á það hvaða framhaldsnám þeir velja eða hvort þeir yfirleitt halda áfram námi að loknum grunnskóla.
Það hlýtur því að vera höfuðnauðsyn að jafna möguleika nemenda til náms hvar svo sem þeir eru búsettir á landinu og enn fremur að tryggja, að möguleikar til áframhaldandi náms fylgi jafnt öllum námsbrautum. Til þess að unnt verði að ná þeim markmiðum, sem hér hafa verið nefnd, þarf framhaldsskólinn að veita margvísleg tækifæri til náms bæði á bóklegu og verklegu sviði. Kennsluskipan þarf að vera með þeim hætti, að tekið sé tillit til hæfni og áhugamála nemenda jafnframt því sem fullnægt er öllum markmiðum sérhæfðra námsbrauta.
Í þessu skyni verður nauðsynlegt að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi framhaldsnáms frá því sem nú er og telur n., að þessu verði best náð með námskipan sem hér eftir verður nefnd samræmdur framhaldsskóli.“
Ég hef leyft mér, herra forseti, að lesa hér upp nokkra kafla úr þessari grg., sem mér sýnast vera hinir veigamestu að því er varðar forsendur fyrir framlagningu þessa frv. Þeir lýsa sjónarmiðum n. sem undirbjó þetta frv., og ég fyrir mitt leyti er sammála flestum þessum röksemdum. Ég hygg að allt það, sem þarna kemur fram, séu æskileg markmið og þetta hljóti að vera þau markmið sem við setjum okkur þegar ný löggjöf er sett um framhaldsskólanám. Ég er líka sammála því, að kerfið, sem sett verði upp, sé fólgið í samræmdum framhaldsskóla þar sem komið er í veg fyrir blindgötur, þar sem komið er í veg fyrir að nemendur verið stöðvaðir af á námsleið sinni og þeir hafi möguleika á að skipta um námsbrautir á hinum ýmsu stigum skólanámsins. Hins vegar hef ég efast um að það frv., sem hér er lagt fram, sé rétta leiðin, frv. sé nægilega aðgengilegt, sé nægilega vel úr garði gert, og á ég þá bæði við skólann sjálfan, innra starf hans, hina kennslufræðilegu hlið málsins, og ekki síður það, hvernig að stjórnun, rekstri og fjármögnun er staðið. Mun ég koma að því síðar.
Athugasemdir þær, sem fram hafa verið settar, snúa m. a. að kostnaðarskiptingunni, að reglugerðarákvæðum, sem eru mýmörg í þessu frv. Þessar athugasemdir byggjast á afstöðu margra reyndra skólamanna sem hafa lýst annaðhvort beinni andstöðu sinni við frv. eða látið í ljós margþættar athugasemdir. Þær byggjast á því, að enn er óljóst um stöðu sérskólanna. Og auðvitað er andstaðan enn fremur byggð á því, að mörg ákvæði frv. eru ekki aðgengileg. Við í minni hl. menntmn., ég og hv. þm. Ólafur G. Einarsson, höfum tekið þessar athugasemdir saman í nál. sem við höfum leyft okkur að láta útbýta hér í deildinni, en þetta nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Við undirritaðir nm. í menntmn. Nd. erum ekki sammála meiri hl. n. um afstöðu til frv. til laga um framhaldsskóla. Meiri hl. mælir með samþykkt frv. með þeim breytingum, sem lagðar eru til á þskj. 619. Við erum hins vegar ekki reiðubúnir til að mæla með samþykkt frv. að svo stöddu. Ástæðurnar eru einkum eftirfarandi:
1) Fyrir hefur legið, að kostnaður sveitarfélaga mun aukast mjög verulega vegna þeirrar kostnaðarskiptinga, sem frv. gerir ráð fyrir og felst í því, að kostnaður af tveimur fyrstu skólaárum framhaldsskólans skiptist milli ríkis og sveitarfélaga eftir sömu meginreglum og kostnaður við grunnskóla.
Eftir kröftug mótmæli Sambands ísl. sveitarfélaga er sú breyting lögð til, að komið verði til móts við sveitarfélögin með því að viðhaldskostnaður grunnskóla leggist jafnt á ríki og sveitarfélög, í stað þess að hann sé að öllu leyti greiddur af sveitarfélögunum eins og nú er. Þessari breytingu erum við algerlega andvígir, enda gengur það þvert á stefnu Sambands ísl. sveitarfélaga og Sjálfstfl. um kostnaðar- og verkaskiptingu á þessum vettvangi.
Jafnframt stendur eftir það samkrull á kostnaðarskiptingu á framhaldsskólastiginu, sem við teljum afar óæskilegt og erfitt.
2) Engar raunhæfar upplýsingar liggja fyrir um það, hvaða útgjaldaauka samþykkt frv. hefur í för með sér. Að vísu fylgir kostnaðaráætlun með frv., og í nál. meiri hlutans er gerð tilraun til að meta áhrif frv. á heildarkostnað framhaldsskóla. En í báðum tilfellum er rennt blint í sjóinn eins og raunar er viðurkennt í nál.
Óskað hefur verið álits sveitarfélaga og þá sérstaklega Reykjavíkurborgar á kostnaðarákvæðum frv., eins og þau munu verða ef brtt. verða samþ., en þær upplýsingar hafa ekki verið lagðar fram í n. Ekki hefur heldur verið lagt fram kostnaðarmat fjárlaga- og hagsýslustofnunar né Þjóðhagsstofnunar þrátt fyrir ítrekaða beiðni þar um.
Ljóst er þó að full óvissa ríkir um kostnaðarauka ríkis og sveitarfélaga, en slíkt er auðvitað óviðunandi þegar svo stórt og umfangsmikið mál er á ferðinni.
3) Miðað við það, sem að framan er sagt, og með hliðsjón af ástandi í skólamálum, sérstaklega er varðar verkmenntun, er veruleg hætta á því, að hér sé verið að samþ. löggjöf, sem í sjálfu sér kann að vera góðra gjalda verð, en hefur það eitt í för með sér að raska stórlega núverandi kerfi, án þess að ríki, sveitarfélög eða fræðsluyfirvöld hafi nokkur tök á að framkvæma þau svo viðhlítandi sé.
4) Ágreiningur hefur verið um framtíð sérskólanna. Samkv. frv. og brtt. meiri hluta n. er ekki skorið á þann hnút.
Þessi þáttur málsins er þó svo veigamikill, að ótækt er að afgreiða þetta frv. án þess að tekinn sé ljós og skýr afstaða til hans og staða sérskólanna ákveðin í tengslum við stefnumótun í framhaldsskólanámi.
5) Framkvæmd laganna mun verða mjög undir því komin, hvernig reglugerðir verða úr garði gerðar. Heimildir um setningu reglugerða eru svo rúmar og vald ráðuneytis þar með svo víðtækt, að þar getur brugðið til beggja átta. Það er skoðun undirritaðra, að þessar heimildir eigi að þrengja og setja nánari lágaákvæði þar að lútandi.
6) Mjög miklar efasemdir hafa komið fram hjá reyndum skólamönnum um ágæti þeirrar stefnu að breyta menntaskólum í núverandi mynd í samræmda framhaldsskóla eða fjölbrautaskóla.
Þá er ekki dregið úr mikilvægi verkmenntunar og því að auka veg hennar, en bent á að þar með megi ekki draga úr gæðum hins klassíska bóknáms, eins og líkur verða til með þessari kerfisbreytingu.
Vakin hefur verið athygli á því, að sambærilegt framhaldsskólakerfi, m. a. í Svíþjóð, hefur leitt til þess, að nemendur séu mun verr undir háskólanám búnir, og hefur raunar dregið mjög úr möguleikum þeirra til að fá aðgang að viðurkenndum háskólum.
Af þeim ástæðum, sem að framan eru raktar, og ýmsum öðrum erum við undirritaðir ekki reiðubúnir til að mæla nú með samþykkt frv. á þessu þingi, en leggjum til að frv. fái frekari athugun.
Sú stefna, sem fram kemur í frv. um samræmt nám, þar sem fleiri leiðir verða opnaðar og forðast blindgötur og þar sem hlutur verknáms er aukinn, er í rétta átt. Að því leyti erum við samþykkir frv. og við erum sammála því, að nauðsyn ber til að setja nýja löggjöf um framhaldsskólanám hér á landi.
En hér er svo veigamikið og viðkvæmt mál á ferðinni, sem úrslitum ræður um gæði náms og hæfni nemenda til að takast á hendur frekara nám eða almenn störf, að ekki má rasa um ráð fram. Fræðsluyfirvöld og almenningur allur verða að vera samstiga í ákvörðunum, sem hafa í för með sér róttækar breytingar, sem þetta frv. kann að leiða til.“
Síðan er gerð till. um örstutta dagskrá:
Í þessu nál. kemur glöggt fram, að við fulltrúar Sjálfstfl. í n. erum hlynntir því að ný löggjöf verði sett um framhaldsskólastigið. Við teljum að það frv., sem hér hefur verið lagt fram, geti verið a. m. k. góðra gjalda vert, en það sé enn þá of hrátt og of mörgum spurningum enn þá ósvarað til að það sé skynsamlegt og rétt að afgreiða þetta frv. og gera það að lögum nú á þessu þingi.
Eins og fram kemur í nál. bárum við fram rökstudda frávísunartillögu. Ég hef nefnt og vitnað í gerðabók í því sambandi, að mjög miklar efasemdir eru í röðum ýmissa stjórnarflokkanna um ágæti þessa frv., og beinlínis hafa verið gerðar samþykktir þar að lútandi í a. m. k. einum stjórnarflokkanna. Ég vek athygli á því, að lagðar hafa verið fram brtt. af hálfu stjórnarsinna, en þær brtt. munu, ef samþ. verða, breyta þessu frv. í veigamiklum atriðum. Ég vek athygli á því, að meiri hluti menntmn. og þessi deild lagði til við 2. umr., að ákvæðum um sérskólana yrði breytt þannig að staða þeirra er enn mjög óljós. En þó er ljóst að ákvarðanir um samræmt framhaldsskólanám og nýja löggjöf hljóta að haldast í hendur við afstöðu þingsins og skólayfirvalda til sérskólanna í landinu. Þetta tvennt er algerlega óaðskiljanlegt. Það verður að vera ljóst, þegar ný löggjöf er sett og farið verður að vinna eftir henni, hvað verði um framtíð sérskólanna.
38. gr., sem nú er, var breytt við 2. umr. samkvæmt till. meiri hl. menntmn., og hljóðar greinin nú þannig, með leyfi forseta:
„Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda eins fljótt og við verður komið að dómi menntmrn. og eigi síðar en að liðnum 5 árum frá gildistöku, sbr. og 36. gr. Jafnframt falla úr gildi lagaákvæði er fara í bága við lög þessi. Eftirtalin lög um skóla á framhaldsskólastigi skuli gilda til bráðabirgða þar til settar hafa verið reglugerðir um tilsvarandi námsbrautir, skólagerðir eða skólastofnanir með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 37. gr., enda hafi Alþ. áður gefist kostur á að marka stefnuna með samþykkt þál. um meginefni viðkomandi reglugerða, sbr. lokamálsgr. þessarar greinar. Þetta er sem sagt upphaf 38. gr.
Þarna kemur ljóst fram það, sem ég var að tala um áðan, að afstaðan til sérskólanna er fullkomlega óljós, í raun og veru engin stefna í því mörkuð. Þetta mjög svo sérkennilega ákvæði er sett inn í frv., þar sem gert er ráð fyrir að lög gildi til bráðabirgða þar til settar hafa verið reglugerðir um viðkomandi starf, og síðan segir: „enda hafi Alþ. áður gefist kostur á að marka stefnuna með samþykkt þál. um meginefni viðkomandi reglugerða“. Þarna er þessari ákvörðun algerlega vísað til framtíðarinnar. Það er algerlega undir hælinn lagt hvaða afstöðu Alþ. á hverjum tíma kann að taka til slíkra reglugerða. Það getur jafnvel stangast á við meginstefnuna sem mótuð er með þessu frv. Ég held að þetta séu óhæf vinnubrögð, auk þess sem ég held að þessi setning, sem ég las upp, sé afar óvanaleg, svo ekki sé meira sagt, að lög eigi að gilda til bráðabirgða. Er hægt að setja lög um það, að önnur lög gildi til bráðabirgða þangað til reglugerðir séu settar? Það væri fróðlegt að heyra álit stjórnlagafræðinga á samsetningu þessa ákvæðis. En ég skal ekki fara ítarlega út í það, enda er þetta mál kannske hvað formið snertir ekki aðalatriðið.
Ég hef með upplestri á nál. gert skilmerkilega grein fyrir því, í hverju andstaða okkar minnihlutamanna í menntmn. er fólgin, en hún byggist á þeim meginþáttum, að við höfum athugasemdir fram að færa við kostnaðarskiptinguna og kostnaðaráhrif þessa frv., við höfum athugasemdir vegna reglugerðarákvæða um sérskólana og um meginstefnuna í þessu frv., sérstaklega að því er varðar verkmenntun og framtíð hennar. Vil ég nú víkja nokkrum orðum að þessum einstöku þáttum.
Samkv. þessu frv., 30. gr. þess fyrst og fremst, er gert ráð fyrir að kostnaðarskipting sé mjög flókin milli ríkis og sveitarfélaga og rekstrar- og stofnkostnaður framhaldsskóla sé borinn uppi af ríki og sveitarfélögum sameiginlega. Þessi grein orðast svo, með leyfi forseta:
„Vegna þess skólahalds, sem kostað er sameiginlega af ríki og sveitarfélögum, greiðir ríkissjóður eða endurgreiðir sveitafélögum þann kostnað sem hér greinir:
a) Launakostnað vegna skólastjórnar og kennslu og laun stjórnskipaðra prófdómara, er greiðist að fullu úr ríkissjóði, miðað við að skipulag kennslu hafi verið samþykkt og að uppfylltar séu lágmarkskröfur um fjölda nemenda í kennsluhópum.
b) Framlag vegna starfa við ráðgjöf, skólasöfn og félagsstörf.
c) Viðhald húsa, endurnýjun búnaðar og húsaleigu, er greiðist í sama hlutfalli og stofnkostnaður, sbr. e- lið.
d) Kostnað við heilbrigðisþjónustu að hálfu.
e) Stofnkostnaðarframlag er miðist við ákvæði laga númer 49 1967, um skólakostnað, og skal hluti ríkissjóðs vera 50% af áætluðum stofnkostnaði kennsluhúsnæðis og húsnæðis fyrir almenna þjónustu, en 85% í heimavistarhúsnæði nemenda. Heimilt er að ákveða, að framlag ríkissjóðs verði allt að 75% í byggingarkostnaði og meiri háttar búnaði sérbyggðrar verknámsaðstöðu (skólaverkstæða) sem ætluð er fyrir heil fræðsluumdæmi, eða hluta þeirra ef nemendafjöldi krefst þess, og stuðlar þannig að eðlilegri og hagkvæmri skólaskipan að mati menntmrn.
Annar kostnaður vegna þessa skólahalds greiðist af sveitafélögum. Setja skal í reglugerð nánari ákvæði um framlög ríkissjóðs samkv. framangreindum stafliðum. Skal þar kveðið á um þann stundafjölda, er ríkissjóður greiðir vegna tilgreindra starfa, og skilyrði varðandi nemendafjölda o. fl. Ákvæði þessi skulu og að því leyti sem við getur átt einnig taka til þess skólahalds sem ríkið greiðir að fullu, sbr. 29. gr.“
Nú þarf ég ekki að minna á það, sem margoft hefur verið tekið fram af hálfu okkar sjálfstæðismanna, að við erum andvígir því í grundvallaratriðum að rekstrar- og stofnframlögum sé skipt milli tveggja aðila, eins og ríkis og sveitarfélaga, þannig að mörkin séu óljós, og að svo flóknar reglur þurfi að setja að ekki nema örfáir menn í landinu skilji þær. Við teljum að þarna beri að skilja alveg á milli, það verði að taka ákvarðanir um hvaða verkefni það séu, sem ríkið eigi að standa undir kostnaði af, og hvaða verkefni sveitarfélögin eigi að taka að sér, þarna eigi sem sagt að vera skýr mörk, en ekki um það samkrull að ræða sem m. a. þetta frv. gerir ráð fyrir. Þegar frv. var lagt fram var þar að auki ljóst, að verulegur kostnaðarauki mundi hljótast af fyrir sveitarfélögin, svo verulegur að það er alveg fullkomlega ljóst og allir hafa sjálfsagt gert sér grein fyrir því, að sveitarfélögin gætu ekki staðið undir þeim aukna kostnaði nema með því að nýir tekjustofnar eða aðrar tekjur kæmu til. Vegna þessarar afstöðu, sem mjög mikið tillit var tekið til, var afgreiðslu á þessu frv. frestað fram yfir ráðstefnu sem Samband ísl. sveitarfélaga hélt í marsmánuði. Þessi frestun var með fullu samþykki bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, og ég geri fastlega ráð fyrir að sá frestur hafi verið veittur vegna þess að framgangur frv. stóð og féll með því, hvað sveitarfélögin segðu til um þetta frv. og þá hvað hægt væri að gera til úrbóta ef þau féllust alls ekki á frv. eins og það lá fyrir.
Þessi ráðstefna sendi frá sér ályktun, og að vísu hefur verið vitnað til þessarar ályktunar áður. M. a. hefur verið vitnað til hennar í nál. meiri hl., en þar er tekin út úr áliti ráðstefnunnar setning sem ekki gefur rétta mynd af þeirri meginniðurstöðu sem ráðstefnan komst að. Því held ég að sé nauðsynlegt enn einu sinni að lesa þessa ályktun í heild sinni, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta; „Fundur fulltrúaráðssambands ísl. sveitarfélaga, hinn 33. í röðinni, sem haldinn var á Húsavík dagana 28. og 29. mars, ályktar eftirfarandi varðandi frv. til laga um framhaldsskóla:
1) Þegar unnið er að jafnviðamiklu og mikilvægu verkefni og algerri nýskipan framhaldsnáms í landinu, sem ætlað er til frambúðar, er eðlilegt að fyrst sé stefnt að því að ná fram þeim kennslufræðilegu markmiðum sem best svara til hagsmuna einstaklinga og þjóðarheildar og eru innan viðráðanlegra kostnaðarmarka. Þau ákvæði, er sérstaklega horfa til bóta, eru t. d. 1) samræmt nám á öllu framhaldsskólastigi, 2) bóklegt og verklegt nám verði lagt að jöfnu, 3) ákvæði um þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við fullorðinsfræðslu.
2) Með frv. því til l. um framhaldsskóla, sem nú liggur fyrir Alþ., er stefnt að því að sveitarfélög eigi kostnaðaraðild að tveimur fyrstu bekkjum framhaldsskóla, bæði að því er varðar stofnkostnað og rekstrarkostnað, með sama hætti og að grunnskóla. Í umræðum og tillögum á undanförnum árum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur sú stefna verið ofarlega á baugi, að framhaldsnám að loknum grunnskóla ætti að vera á vegum ríkisins og kostað af því. Fulltrúaráðið er ekki reiðubúið að fallast á að sveitarfélögin verði gerð að rekstraraðila þessa skólastigs ásamt ríkinu með þeim hætti, sem frv. gerir ráð fyrir, og tetur það ekki horfa til betri verkaskila milli þessara aðila.
3) Verði sú niðurstaða löggjafans við samþykkt þessa frv. að aukin verði kostnaðarleg þátttaka sveitarfélaga í rekstri framhaldsskóla, verður að gera þá kröfu, að annað tveggja verði gert, að létta af þeim útgjaldaliðum eða veita þeim nýja tekjustofna til að mæta þeim kostnaði.
4) Að því er varðar hlutdeild sveitarfélaga í stofnkostnaði framhaldsskóla er þess að geta, að ákvæði frv. eru um margt óljós, t. d. að því er varðar sérskóla ríkisins, og telur fulltrúaráðið nauðsyn að lögákveða hvaða skólar skuli haldast áfram sem ríkisskólar. Með frv. er lagður aukinn fjárfestingakostnaður á sveitarfélögin, sem mundi koma mjög misþungt á hin ýmsu þeirra eftir því hvernig húsnæðismál framhaldsskóla eru þar á vegi stödd. Áherslu verður því að leggja á að ríkið kosti allar byggingar framhaldsskóla.
5) Áætlað er skv. könnun, sem Samband ísl. sveitarfélaga hefur látið gera, að útgjöld sveitarfélaga í heild vegna rekstraraðildar að framhaldsskólum skv. frv. mundu aukast a. m. k. um 500 millj. kr. á ári, miðað við meðalverðlag áætlað á árinu 1979. Auk þess eru mörg atriði skv. frv. háð reglugerðarákvörðunum, svo sem um skipulag kennslu og nemendafjölda í kennsluhópum. Fulltrúaráðið telur að slík ákvæði eigi að ákveða í lögunum sjálfum, ef af samþykkt þeirra verður.
6) Ákvæði frv. um námsvistargjöld þurfa að dómi fulltrúaráðsins að athugast nánar. Hætt er við að innheimta þeirra, eins og gert er ráð fyrir í frv., mætti valda margvíslegum erfiðleikum og verða flókin í framkvæmd.
7) Stjórnunarákvæði frv. eru þannig, að mjög eru takmarkaðir möguleikar einstakra sveitarstjórna til að hafa áhrif á útgjöld framhaldsskólans. Sérstaklega á þetta við um sveitarstjórnir í dreifbýli. Þá telur fulltrúaráðið að stjórnunarákvæði í 21. gr. sé allt of viðamikið og þungt í vöfum og muni tæpast í framkvæmd leiða til eins virkra áhrifa framhaldsskólaráðs á framkvæmd og mótun skólastarfsins og að virðist stefnt.
8) Verði niðurstaðan sú, að rekstur framhaldsskólanna verði í höndum sveitarfélaganna, telur fulltrúa ráðið óhjákvæmilegt að ríkissjóður leggi fram rekstrar hluta sinn sem mest jafnóðum, þannig að sveitarfélögin þurfi ekki að binda fjármagn vegna þess hluta rekstrarins sem ríkið á að greiða.
9) Fulltrúaráðið telur að hér sé um svo veigamikið mál að ræða, að rétt sé að það verði athugað frekar, og leggur áherslu á að haft verði samráð við nefnd þá sem nú vinnur við tillögugerð um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.
10) Þrátt fyrir þá ágalla, sem hér hefur verið bent á, leggur fulltrúaráðið áherslu á að það er sammála mörgum atriðum frv.. og telur brýnt að lög um samræmdan framhaldsskóla verði sett.“
Eins og þingheimur heyrir við lestur þessarar ályktunar, sem er í 10 liðum, eru 9 liðir þessarar ályktunar neikvæðir, gera athugasemdir — mjög sterkar athugasemdir við þetta frv. Samt leyfir meiri hl. menntmn. sér að minnast ekkert á 9 liði ályktunarinnar í nál. sínu, en tíundar 10. liðinn, þar sem talað er um að þrátt fyrir þá ágalla, sem hafi verið bent á, leggi fulltrúaráðið áherslu á að það er sammála mörgum atriðum frv. og telur brýnt að lög um samræmdan framhaldsskóla verði sett. Hér er ekki verið að umgangast staðreyndir málsins með mikilli virðingu eða tilliti til hinnar raunverulegu niðurstöðu ráðstefnu Sambands ísl. sveitarfélaga. Það er auðvitað ljóst, að Samband ísl. sveitarfélaga og sveitarfélög í landinu vilja að sett sé löggjöf um samræmdan framhaldsskóla. Ég hef tekið það fram, að t. d. við sjálfstæðismenn, sem erum í andstöðu við þetta mál núna, viljum gjarnan að sett sé löggjöf um samræmdan framhaldsskóla. Við viðurkennum að það er nauðsyn á því að setja nýja löggjöf — heildarlöggjöf — um þetta skólastig, og ég fyrir mitt leyti styð það að sú löggjöf miðist við samræmdan framhaldsskóla í öllum aðalatriðum. En þó að menn vilji taka undir þetta meginsjónarmið, þá er langt frá því að þeir geti endilega fallist á frv. sem hefur verið sett fram núna um það, hvernig þessi löggjöf eigi að líta út. Og þó að þetta frv. liggi fyrir er auðvitað hægt að setja fram annað frv. um samræmdan framhaldsskóla, og það er hægt að laga þetta frv. mikið til, og það er það sem við sjálfstæðismenn höfum lagt mikla áherslu á. Út af fyrir sig má taka þetta frv. og leggja það til grundvallar, því það er margt gott í því, það er góðra gjalda vert, en það þarf mikið að laga það til, og við treystum okkur ekki til að standa að afgreiðslu þess í þeim búningi sem það er núna. Og það sama kemur fram í ályktun Sambands ísl. sveitarfélaga á ráðstefnu þess, að það er ekki tilbúið að samþ. þetta frv. eins og það lítur út núna og tíundar það í 9 liðum af 10.
Ég held að nauðsynlegt sé að hafa það mjög sterkt í huga, að sveitarfélögin hafa sett fram athugasemdir, enda hefur stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga sent frá sér annað bréf, sem dagsett er 11. maí, í tilefni af nál. meiri hl. menntmn. Þar segir, með leyfi forsetans:
„Á stjórnarfundi Sambands ísl. sveitarfélaga í dag var rætt um frv. til l. um framhaldsskóla sem nú er til meðferðar á Alþ. Í framhaldi af þeim umræðum samþ. stjórnin svofellda bókun:
Vegna tilvitnunar í áliti meiri hl. menntmn. Nd. Alþ. um frv. til laga um framhaldsskóla í ályktun fundar fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga 28. og 29. mars s. l. vill stjórn sambandsins árétta, að megininntak ályktunar fulltrúaráðsfundar að því er varðar samaðild ríkis- og sveitarfélaga að framhaldsskólanámi er þess efnis, að fulltrúaráðið er ekki reiðubúið að fallast á, að sveitarfélögin verði gerð að rekstraraðila þess skólastigs ásamt ríkinu með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir, og telur það ekki horfa til gleggri verkaskiptingar milli þessara aðila.
Stjórn sambandsins túlkar afstöðu fulltrúaráðsins ótvírætt á þann veg, að það hafi verið mótfallið fjármálaákvæðum frv., en önnur atriði ályktunarinnar séu mörg sett fram til vara. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga ítrekar tilmæli fulltrúaráðsins í 9. lið ályktunarinnar um að hér sé um svo veigamikið mál að ræða, að það þurfi frekari athugunar við, og mælist eindregið til þess að afgreiðslu þess verði ekki hraðað nú á lokadögum þingsins.“