19.05.1979
Neðri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5075 í B-deild Alþingistíðinda. (4423)
306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Á fyrstu árum sem ég gegndi embætti iðnrh. komu hitaveitumál Borgarness, Andakílshrepps og Akraness mjög til athugunar og kasta í iðnrn. Á fyrstu tveim árunum ræddu forráðamenn þessara byggðarlaga oft við mig um þau mál. Borgnesingar og nágrannasveitir höfðu hug á því að koma á hitaveitu fyrir sig og höfðu gert samning, eins og hér hefur verið lýst, við eigendur Deildartungu um nýtingu á vatni þaðan ef til kæmi en einnig voru kannaðir möguleikar annars staðar í Borgarfirði, sérstaklega í Bæjarsveit. Akurnesingar höfðu mikinn áhuga á hitaveitu og var í því sambandi borað eftir heitu vatni á Leirá, en því miður fékkst ekki nægur árangur af þeirri borun. Forráðamenn þessara byggðarlaga ræddu við iðnrn. um það að leggja hitaveitu hvorir í sínu lagi.
Borgnesingar og nágrannasveitir komust að þeirri niðurstöðu, að fjarlægðin frá Deildartungu væri svo mikil að ekki mundi unnt fyrir þessi byggðarlög ein að standa undir hitaveitu með svo langri aðveituæð, heldur yrði þá að taka aðrar lindir sem nær væru.
Akurnesingar höfðu í huga, eftir vonbrigðin með boranir við Leirá, að stofna fjarvarmaveitu sem gæti á sínum tíma tekið við heitu vatni ef fyndist í nágrenni Akraness, en fyrst og fremst með því að nýta afgangsraforku og svartolíu.
Á árinu 1976 voru þessi mál rædd mjög rækilega og ég tók þá afstöðu sem rétt er að skýra hér frá. Ég tilkynnti forráðamönnum þessara byggðarlaga að ég legði áherslu á að þeir gengju til samstarfs: Akraneskaupstaður, Borgarnes, Andakílshreppur og önnur nágrannahéruð, í eitt fyrirtæki sem legði hitaveitu sem byggðist á heitu vatni frá Deildartungu. Þetta var auðvitað byggt á því fyrst og fremst, að í Deildartungu er sjálfrennandi vatn um 100 stiga heitt, 180 lítrar á sek., sem nægði um allmargra ára skeið til upphitunar fyrir öll þessi byggðarlög sem um er að ræða, hér væri hægt að nýta vatn án nokkurs tilkostnaðar við boranir, en við boranir er bæði mikill kostnaður og auk þess mikil óvissa hvarvetna eins og kunnugt er. Í öðru lagi var ljóst að hin langa aðveituæð frá þessum mikla hver mundi möguleg kostnaðar vegna þegar öll þessi byggðarlög stæðu saman. Ég tjáði þeim, að ég gæti ekki að svo stöddu veitt afbeina til þess, að hvor um sig stofnaði hitaveitu, fyrr en þetta mál væri fullkannað. Í því sambandi var ungum ágætum verkfræðingi falið að hafa forgöngu um nánari kannanir á þessu og að vinna að því ásamt forráðamönnum þessara byggðarlaga að koma á þessu samstarfi. Þetta tókst. Það tók að sjálfsögðu nokkurn tíma, en það tókst að koma á þessu samstarfi, fyrst með samstarfsnefnd og síðan með stofnun formlegs félags: Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar.
Ég tel að hér hafi verið rétt að málum staðið. Í þessu sambandi var það auðvitað meginatriði og lögð á það áhersla af rn., að leitað yrði samninga við eiganda Deildartunguhvers og að samningar næðust um afnot af vatni.
Ég get þessa hér í upphafi til þess að gera hv. þm. ljós upptök þessa máls.
Eftir stjórnarskiptin í fyrra var þessu máli haldið áfram og þarf ég ekki að rekja þá sögu, enda er gerð grein fyrir henni í aths. með þessu stjfrv.
Ég vil segja það fyrst, að ég harma mjög að ekki skuli hafa tekist samningar um þetta mál. Mér virðist á þeim grg., sem liggja fyrir, að að verulegu leyti hafi ekki borið mjög mikið í milli, sérstaklega að því er varðar fyrstu 10 ár hitaveitunnar. Við sjáum það á bls. 10 í grg. með frv. þar sem samanburður er gerður, en hann er á þá lund, að fyrsta áratuginn var tilboð Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar 12.5 millj., en tilboð eiganda Deildártunguhvers 18 millj., árgreiðsla, hvort tveggja verðtryggt. Ég ætla að hér hefði átt að vera möguleiki til samkomulags, að finna þarna millileið. Erfiðleikarnir og ágreiningurinn spruttu þó fyrst og fremst á tímabilinu sem kom á eftir, þegar kröfur Deildartungumanna tóku töluvert stökk upp á við vegna þess að þeir vildu þá miða við hluta af hagnaði fyrirtækisins.
Út af fyrir sig skal ég ekki ræða þessar samningaviðræður, en að sjálfsögðu hefði verið ákaflega æskilegt að samningar hefðu tekist. Þeir hafa ekki tekist og nú hefur verið lagt fram frv. til l. um eignarnám. Ég vil taka það fram í fyrsta lagi, að þegar um slíka ráðstöfun er að ræða eins og lögnám eða eignarnám tel ég vera grundvallarskilyrði og grundvallaratriði hjá Alþ. að fara ekki lengra í því að taka eign manna en nauðsynlegt er til þess að fullnægja tilganginum. Og ég tel að í þessu efni sé ekki nauðsynlegt að taka eignarréttinn að fullu af eiganda, heldur sé tilgangi og hagsmunum Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar fullnægt með því að semja um afnot af nægilegu vatnsmagni eða taka lögnámi afnotarétt eða það sem við köllum oft með leigunámi.
Það er e. t. v. rétt að geta þess hér, að í riti Ólafs Jóhannessonar fyrrum prófessors og nú forsrh. um stjórnskipun Íslands, þar sem hann ræðir um eignarnám, kemur hann inn á þessi grundvallaratriði sem ég nefndi. Ég vil — með leyfi hæstv. forseta — aðeins rekja hér eina eða tvær setningar úr því riti þar sem rætt er um það, að oftast nær fái eignarnemi beinan eignarrétt yfir hinni lögnumdu eign, en stundum er heimildin þrengri, þ. e. a. s. aðeins heimilað nám afnotaréttar. Það fer eftir eignarnámsheimild og þörfum eignarnema hversu langt eignarnámið gengur hverju sinni. Síðan segir hann: „En aðalreglan sýnist hljóta að vera sú, að ekki sé gengið nær eignarnámsþola heldur en nauðsynlegt er til þess að hagsmunum eignarnema sé fullnægt.“
Það er þetta grundvallaratriði sem ég legg áherslu á, og ég tel að með því að taka afnotarétt eða með leigunámi sé fullnægt þessum þörfum. Nú er það svo, að þó að Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar hafi vafalaust í upphafi og sumir e. t. v. enn óski þess helst að fá eignarrétt að hvernum, þá er staðreynd að allar þær samningaviðræður, sem átt hafa sér stað undanfarna mánuði, hafa ekki byggst á því að hitaveitan fengi eignarrétt að hvernum, heldur á leigu. Ef menn líta t. d. á bls. 7 í frv., þar sem rakin eru tilboð frá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, þá segir varðandi tilboð nr. 1, að Deildartunguhver verði leigður gegn ársleigu og samið verði til 10 ára o. s. frv. Og í tilboði 2: „Deildartunguhver verði leigður til 30 ára gegn ársgreiðslu.“ M. ö. o.: allar samningaviðræður hafa farið fram á þeim grundvelli, a. m. k. nú um langt skeið, að um leigu sé að ræða, en ekki yfirfærslu á eignarrétti. Og Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar hefur talið að þetta væri fullnægjandi. Þetta er enn staðfest nú með því að meiri hl. iðnn. þessarar hv. d. flytur brtt. á þskj. 814 á þá leið, og það er gert til að ganga til móts við sjónarmið Reykholtsdalshrepps, — þar er lagt til að frv. verði breytt á þá lund, að í stað þess að ríkissjóður, eftir að hann tekur hverinn eignarnámi, afhendi hann Hitaveitu Borgarfjarðar hverinn til eignar, þá skuli sá háttur hafður á að ríkissjóður verði áfram eigandi, en afhendi aðeins hin eignarnumdu verðmæti til afnota Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Þetta hefur stjórn hitaveitunnar fallist á, og er það enn ein staðfesting á því, að hún telur að afnotaréttur eða leigunám sé algjörlega fullnægjandi fyrir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar.
M. a. með þetta í huga og þau ummæli sem ég vitnaði í úr ritinu um stjórnskipun Íslands, að aðalreglan skuli vera sú að ekki sé gengið nær eignarnámsþola en nauðsynlegt er til að hagsmunum þeim, sem að er stefnt, sé fullnægt, finnst mér allt benda til þess, að eðlilegra væri að beita hér leigunámi heldur en beinu eignarnámi. Þess vegna gerði ég fyrirvara um þetta atriði í nál. meiri hl. iðnn. og flyt brtt. í samræmi við það.
Ég vil einnig benda á það, að hreppsnefnd og íbúar Reykholtsdalshrepps eru vissulega aðilar sem hefði átt að hafa samráð við. Því miður hefur það verið vanrækt. En eins og kunnugt er, þá er svo samkv. íslenskum lögum að hreppar eiga forkaupsrétt að slíkum verðmætum sem hér er um að ræða. Auðvitað getur löggjafinn breytt því, t. d. með þessum lögum. Samt sem áður á ekki að ganga alveg fram hjá þessari meginreglu sem er í íslenskri löggjöf, og auðvitað hefði átt að hafa samráð við hreppsnefndina. Hreppsnefnd og íbúar hreppsins hafa mótmælt harðlega. En ég vil benda á að í bréfi Jóns Þórissonar, oddvita Reykholtsdalshrepps, segir hann að álit hreppsnefndarinnar sé það, að ef samningar tækjust ekki ætti að taka hverinn leigunámi. Og í þeim mótmælum, sem okkur hafa borist frá íbúum hreppsins, segir: „Lágmarkskrafa okkar er, að í stað eignarnáms komi leigunám.“ Ég tel að með leigunámsaðferðinni sé beitt mildari aðferð, ef svo má segja, sé ekki farið lengra í skerðingu eignarréttarins en nauðsynlegt er, gagnvart eiganda, gagnvart íbúum hreppsins, sveitarfélaginu sjálfu sé þetta eðlilegri og mildari aðferð og fullnægi algerlega þörfum hitaveitunnar.
Varðandi það atriði, að leigunám sé fátítt hér á landi, er það alveg rétt að leigunámi, þeirri aðferð lögnáms eða eigum við að segja einni tegund eignarnáms í víðtækari skilningi hefur ekki oft verið beitt hér á landi, og þau tilvik, þar sem leigunámi hefur verið beitt, hafa, eins og hv. frsm. meiri hl. gat um, aðallega verið í sambandi við skyndiráðstafanir. Þó eru þess dæmi í íslenskri löggjöf að leigunám hefur verið sett í lög miðað við langan tíma eða varanlega. T. d. er í lögum, sem að vísu eru orðin allgömul og eru í sambandi við virkjunarmál í Arnarfirði, talað um leigunám. En þetta skiptir ekki aðalmáli. Aðalmálið er hitt, að það er ekkert því til fyrirstöðu í stjórnskipunarrétti eða samkv. stjórnarskrá okkar að ákveða leigunám til langs tíma.
Í brtt. minni er ekki neitt tímamark og það yrði þá auðvitað að vera á valdi ráðh., þegar þar að kemur, hvort það yrði til langs eða skamms tíma. En ég fullyrði að samkv. stjórnarskránni og stjórnskipunarreglum er ekkert því til fyrirstöðu að beita leigunámi til langs tíma.
Ég vildi láta þessar athugasemdir koma hér fram, herra forseti, en ég legg á það áherslu að löggjöf um lögnám þessara réttinda verður að ganga fram á þessu þingi, því ég tel að ella sé málum stefnt í mikinn háska. Ég tel að Hitaveita Borgarfjarðar og Akraness geti ekki beðið í óvissu langa stund enn, og æskilegast teldi ég að þessi lög væru því afgreidd frá þinginu í leigunámsformi. Í iðnn. lagði ég einnig áherslu á það og óskaði eftir að það kæmi fram í nál. og framsögu, að n. mælti eindregið með því, ef þessi lög yrðu samþ., að þá yrði, áður en til eignarnáms kæmi, gerð enn ein tilraun til samninga. Þess er getið í nál. á þskj. 813 og hv. frsm. gat þess líka sérstaklega í framsöguræðu sinni.