21.05.1979
Sameinað þing: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5098 í B-deild Alþingistíðinda. (4460)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„17. maí 1979.

Svavar Gestsson, 2. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.“

Samkv. þessu bréfi tekur Guðmundur J. Guðmundsson sæti á Alþingi í dag sem 2. þm. Reykv.