21.05.1979
Efri deild: 112. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5110 í B-deild Alþingistíðinda. (4470)
Umræður utan dagskrár
Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Hv. 3. landsk. þm. lýsti atburðarásinni í fjh.- og viðskn. Ed., sem hefur haft þetta mál til meðferðar, réttilega hvað varðar það lán sem hér hefur verið til umr. Það, sem er alvarlegast í þessu máli, er neitun ráðh. hér fyrst í deildinni og síðan synjun embættismanna um að gefa þingnefnd upplýsingar um mál sem varðar fjárreiður ríkisins.
Mig langar til að rifja upp 7. mál Ed., ef menn muna eftir því. Það er það mál um gengismunarsjóð, sem hefur verið hvað lengst hér í þinginu. Það var til umfjöllunar í fjh.- og viðskn. Ed. og nm. gekk illa að fá nauðsynlegar upplýsingar varðandi málið frá embættismönnum. Ég minnist þess, að hv. 3. landsk. þm. kvartaði yfir því og nefndi þessa erfiðleika nefndarinnar við 2. umr. málsins. Hæstv. forsrh. kvaddi sér þá hljóðs — ég man nú ekki orðrétt hvað hann sagði og hef ekki þingtíðindi hér, en skv. mínu minni harmaði hann það, að n. hefði ekki fengið umbeðnar upplýsingar, og kvaðst hæstv. forsrh. beita sér fyrir því, að n. fengi þær upplýsingar.
Ég er einungis að nefnda þetta til þess að leggja áherslu á það, að það er almennur skilningur hér í þinginu, að þingnefndir skuli fá umbeðnar upplýsingar, og það sama gildir í þessu máli. Að þurfa að toga út þessar upplýsingar með töngum er óhæfa hvað varðar þingstörf.
Mín persónulega skoðun á þessu 3 millj. kr. láni með 10 ára lánstítna og 19% vöxtum er sú, að ég er algerlega á móti þessum reglum. En það er ekki það sem skiptir hér máli. Það að neita þm. um upplýsingar um hverjir fá lán úr ríkissjóði er að mínu mati óafsakanlegt, og það er full ástæða til að taka hæstv. fjmrh. á orðinu, að Alþ. álykti eitthvað um þessi samskipti þm. og þingnefnda við embættismenn ríkisins. Enginn, sem hefur tekið þátt í umr., efast um að þessi lán eða lánskjör séu samkv. þeim reglum eða lögum sem gilda, þó að menn geti verið, eins og t. d. ég, á móti þessari ráðherrareglu, en þetta var samþykkt í ríkisstjórn.
Ég get upplýst í framhaldi af því, sem kom fyrir í nefndinni, að ráðuneytisstjóri fjmrn. var með skrá yfir öll lán einkaaðila úr ríkissjóði. Þetta eru nokkuð margir aðilar. Það gilda sérstök lög hvað varðar leigubílstjóra og annað slíkt, það eru ekki peningalán. Einstök peningalán er þó um að ræða. Það var upplýst um tvö slík lán, en sömuleiðis neitað að gefa upp nöfn. Ráðuneytisstjóri kvaðst persónulega telja að þingnefndir ættu að fá svona upplýsingar, en hann vildi kanna hvernig þessi mál hefðu verið hjá forvera sínum. Hann gerir auðvitað eins og hans er skylda, hagar sér eins og góður embættismaður. Hæstv. fjmrh. hefur lýst þessu „prinsippi“, að fjmrn. gefi ekki upplýsingar um menn, einungis um málefni, og þess vegna gefur hann sjálfur persónulega þessar upplýsingar, sem er vitanlega rétt að þakka fyrir að þær fengust þó loksins um þetta fræga mál.
Hvað varðar síðara atriðið sem hv. 3. landsk. þm. nefndi, endurnýjun einkabíla ráðherra sem síðan voru seldir — tveir ráðherrar komu upp á eftir hæstv. fjmrh. og gáfu skýrslu um sín mál, — þá álít ég rétt að það komi fram, að þau mál eru í rannsókn í fjh.- og viðskn. Ed. eins og reyndar hv. 3. landsk. þm. nefndi. Samkv. þeim upplýsingum, sem liggja fyrir nefndinni, er ekkert sem bendir til þess, að atburðarásin hafi orðið sú sem 3. landsk. þm. nefndi, en það útilokar engan veginn að svo geti verið og má vera að það liggi fyrir aðrar upplýsingar, sem n. hafi ekki enn þá fengið, og þessi mál muni skýrast.
Það er, held ég, almennur vilji í fjh.- og viðskn., að þetta mál verði ekki afgreitt frá nefndinni fyrr en hún er búin að fá allar þær upplýsingar sem hún hefur beðið um. Hv. 3. landsk. þm. hefur farið eðlilega leið til að knýja á um þessar upplýsingar með bréfi til yfirskoðunarmanna ríkisreikninga. Hins vegar hef ég séð í síðdegisblöðunum í dag nokkur blaðaskrif um þessi viðhaldsmál, og ég get einungis lýst því yfir, að upplýsingar, sem liggja fyrir í n., réttlæta ekki þær nafnbirtingar, og ég harma þær á þessu stigi málsins. En það breytir ekki því, að þetta mál mun verða upplýst.
Ég vil að lokum einungis hvetja, kannske ekki til frekari umræðna um þetta, heldur til að menn hugsi um þessi samskipti þm. og embættismanna og hvort það sé ekki kominn tími til að þessum samskiptareglum verði breytt í þá veru, að þm., sem eru kjörnir fulltrúar þjóðarinnar, fái allar þær upplýsingar sem þeir biðja um.