21.05.1979
Efri deild: 112. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5116 í B-deild Alþingistíðinda. (4476)
Umræður utan dagskrár
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð. — Mig langar til að lýsa því yfir, að þessar umr. hafa verið athyglisverðar og kannske athyglisverðastar fyrir það, að þær snerta einmitt okkar þjófélagsástand mjög víða á mörgum sviðum. Mér fellur í hug eftir þessar umr., að það væri e. t. v. eðlilegt að fjh.- og viðskn. Ed. beitti sér fyrir því, að áður en næsta Alþingi kemur saman verði búið að skoða þessi mál rækilega niður í kjölinn.
Það er nefnilega þannig að ekki þarf að fara langt út í landsbyggðina til að sjá ýmsar ríkisstofnanir sem eru með ríkismerkta bíla. Við sjáum gjarnan bíla merkta RARIK, póst- og símamálastjórn og fleiri opinberum stofnunum sem eru víðs vegar um landið, sjálfsagt í alls konar erindagjörðum, og það kemur náttúrlega upp í hugann þegar maður sér bifreið merkta ríkinu: Hvað er þessi ríkismerkta bifreiða að gera á þessum stað o. s. frv.? Ég held að það sé búið að ofkeyra þennan þátt í okkar þjóðfélagi, þennan sérstaka fríðindaþátt, bæði hvað varðar opinbera embættismenn af hæstu gráðu og eins út í kerfið allt, og þess vegna tel ég að það væri mikilvægt í framhaldi af þessum umr., að menn kæmu sér saman um að endurskoða þessar reglur, skoða þær alveg til botns. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt, og mér finnst það mál, sem var hér til umræðu í upphafi og leiddi af sér þessar umr., sýni þó ákveðna viðleitni hjá núv. ríkisstj. til að reyna að einfalda þetta mál sem á sér eins langa sögu og jafnvel ráðherrar hafa verið til hér á Íslandi og aðrir embættismenn. En saga málsins er miklu víðtækari en þetta. Við erum búin að strá þessu út um allt okkar þjóðfélagskerfi og það er alls staðar til misnotkun á þessum svokölluðu fríðindum sem þarf vissulega að stokka upp. Ég gæti rakið margar sögur, sem eru jafnvel miklu, miklu verri en hér hafa komið fram, einmitt sem ég og aðrir hafa orðið áhorfendur að, sem gefa til kynna að það þarf vissulega að taka þessi mál til verulegrar og raunhæfrar endurskoðunar.
Ég skora á hv. n. að beita sér fyrir þessu. Það er rétt afleiðing af þessum umræðum.