21.05.1979
Neðri deild: 94. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5142 í B-deild Alþingistíðinda. (4506)

306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum

Frsm. minni hl. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég gerði býsna rækilega grein fyrir máli mínu á laugardaginn og hef auk þess sent frá mér nál. þar sem fram kemur afstaða mín skýrum orðum og hvað það er sem ég legg til um meðferð þessa máls. Ég hef kannske ekki miklu við að bæta það sem ég sagði þá. Ég held að mitt mál hafi verið það ítarlegt þó að það væri ekki langt, að menn hafi áttað sig á því hver meining mín væri í þessu máli, og ég finn það nú reyndar, að því meira sem líður á umr. verða fleiri mér sammála um þetta mál, að það kann að vera að eitthvað vanti á í málsmeðferð, og gæti ég vitnað til margra ræðna sem hér hafa verið haldnar um þetta efni. Nú síðast var að ganga úr ræðustól einn af þeim sem mér virðist að taki undir margt af því sem ég var að gagnrýna og hef leyft mér að gagnrýna bæði í ræðu minni og einnig í því prentaða nál. sem frá mér hefur komið. Og ég verð að segja það jafnvel hæstv. iðnrh. til hróss, að ég held hann hafi fundið það, að e. t. v. hefði mátt haga þessu máli nokkuð öðruvísi frá upphafi, og e. t. v. má ráða það af síðustu orðum hans í ræðu hans í dag, þegar hann sagði beinum orðum að hann óskaði þess, að frjálsir samningar gætu tekist um afnot af Deildartunguhver. Þannig tók einnig til orða hv. formaður iðnn., 3. þm. Vestf. Við skulum vona það og ég verð að láta þá von í ljós, að hvernig sem þetta mál fer hér í þinginu verði það að lokum niðurstaðan, að þetta mál verði leyst með frjálsum samningum. Þess vegna vil ég taka undir þau orð hæstv. ráðh. og formanns iðnn., að þetta mál megi leysast með frjálsum samningum. En það undarlega er, að mér finnst að umr. hérna hafi í reyndinni hnigið mjög í þá átt að skynsamlegt sé að fara eftir því sem ég hef lagt til, að þessu máli verði vísað frá með rökstuddri dagskrá, eins og fram kemur í nál. mínu, og að teknir verði upp samningar, eðlilegir samningar við fulltrúa eiganda Deildartunguhvers.

Hæstv. ráðh. var að vísu ekki stórorður framar því sem hann temur sér í ræðum sínum, en þó hélt hann því fram, að fram hefðu komið í mínu máli, bæði í ræðu minni, trúi ég, og þá ekki síst í hinu prentaða þskj., fullyrðingar sem væru rangar. En ég get ekki fundið að hæstv. ráðh. hafi afsannað neitt af því sem ég hef haldið fram. Það, sem ég hef lagt höfuðáherslu á og er óhætt að segja að er meginkjarninn í mínu máli og kannske það sem gnæfir þar algerlega upp úr, er þetta, að ég hef lagt á það áherslu, að ekkert hafi komið fram í málinu sem sanni að eigandi eða fulltrúar eiganda Deildartunguhvers hafi ekki viljað semja um þetta mál. Þetta er kjarninn í mínum málflutningi, og ég held að hæstv, ráðh. hafi ekki afsannað þetta sem ég hef haldið fram. Sannleikurinn er sá, að það má ráða það af allri meðferð þessa máls og því, sem fram hefur komið um þetta, að það hefur ekki verið staðið vel, ekki „forsvaranlega“, eins og ég tók til orða í nál. mínu, að því að koma á samningum milli þeirra sem þarna deila um réttinn.

Ég sýndi fram á það, að þetta mál er ekki mjög gamalt, það eru ekki nema um það bil fimm ár síðan byrjað var að tala um að virkja Deildartunguhver. Ég sýndi fram á það, að á fyrstu árunum var þannig að þessu staðið, að það var naumast hægt að segja að nein viðhlítandi boð kæmu frá þeim sem höfðu áhuga á því að nýta hverinn, bæði hvað snertir Borgarnes á sinni tíð og eins Akranes og Borgarnes síðar. Og ég verð að segja það, að það kemur greinilega fram að nú síðasta árið hafa sáralitlar eða engar samningaumleitanir átt sér stað fyrr en nú á allra síðustu vikum. Þetta tel ég ekki forsvaranlega aðferð til að ná samningum. Og því miður verð ég líka að segja það, að af því, sem fram hefur komið í þessu máli — menn hafa verið að lesa hér úr bókunum sem ég hef nú ekki við höndina, en ég hef hlýtt á það sem menn hafa lesið úr bókunum frá fundum svokallaðs viðræðuhóps og hins aðilans — verður ekki annað ráðið en að iðnrn. hafi sett tiltekin mörk um það, hvað teldist vera hæfilegt að greiða fyrir afnotaréttinn. Og ég heyrði ekki betur en það kæmi fram í máli hæstv. ráðh. hér í dag, — ég man ekki nákvæmlega orðalagið á því — að hann teldi að iðnrn. yrði að stýra samningunum að þessu leyti, hafa þarna fingurinn á og koma í veg fyrir að gjaldið fyrir afnotin ryki upp úr öllu valdi. Það má vel vera að það sé rétt, að hæstv. ráðh. eða iðnrn. eigi að hafa þarna fingurinn á, en þó er mér mjög til efs að þetta sé raunverulega rétt aðferð. Ég tel mjög vafasamt að þetta geti talist rétt. Enn þá er það nú svo, að frjálsir samningar eru leyfilegir í þessu landi, og það er ekkert komið fram í þessu máli sem sýnir að ekki hefði mátt koma á frjálsum samningum.

Reyndar held ég fyrir mitt leyti að hæstv. núv. iðnrh. sé ekki einn sekur um það að hafa, ef ég má taka svo til orða, klúðrað þessu máli. Því er nú verr og miður, að það á sér sennilega nokkru lengri sögu. Ég er ákaflega hræddur um að þeir, sem stýrðu iðnrn. á undan honum, hafi ekki staðið nógu vel að þessu máli. Ég er ósköp hræddur um það. Það hefur komið fram í þessum umr., að fráfarandi iðnrh. telur sér það til gildis að hafa reynt að leiða saman sveitarfélögin sem um ræðir, Borgarnes, Akranes og Andakíl og kannske einhver fleiri sveitarfélög sem að þessu standa, — leiða þau saman til þess að koma á hitaveitu. Út af fyrir sig er þetta þakkarvert framtak. En ég álít að sá ráðh., sem þá fór með iðnaðarmálin, hefði gjarnan mátt standa svolítið öðruvísi að þessu, ekki eingöngu að fá þá til samkomulags og vinna að því að þeir kæmu sameiginlegu hitaveitufyrirtæki upp hjá sér, þessi sveitarfélög, heldur finnst mér að hann hefði einnig mátt huga að því, að það var meiningin að virkja orku sem var í öðru sveitarfélagi — og ekki bara það, heldur í eigu annars aðila og sérstaks aðila sem hafði fulla heimild á sinni eign. Ég tel að það hafi verið galli á þessari málsmeðferð frá upphafi. Úr því að iðnrn. taldi sér skylt að hafa hönd í bagga um að koma þessu fyrirtæki á og leiða menn saman um það, þá átti iðnrh. að sjálfsögðu að bjóða eignaraðilanum að orkulindinni til samninga um þessi mál. Þetta tel ég að hafi verið galli á málsmeðferðinni, og því miður verð ég að segja það, að úr þessum ágöllum hefur ekki verið bætt á hinum síðustu vikum, og ég held að það sé rétt sem kom fram í mínu máli, að hæstv. iðnrh. hefur sýnt óþarfa kappsemi í því að knýja fram þá lausn sem hér liggur fyrir eða hann hyggst knýja fram með lögum. Þess vegna held ég að till. mín um það að vísa málinu frá með rökstuddri dagskrá sé rétt. Ég er sannfærður um að það eru möguleikar á því að koma á frjálsum samningum um þennan afnotarétt, og ég held að þeim hefði verið komið á ef skynsamlega hefði verið staðið að þessu máli frá upphafi.

Hæstv. ráðh. minntist á það í dag, hvað ske mundi ef af eignarnámi yrði, hvaða afleiðingar það hefði fjármálalega séð. Hann vildi sem minnst reyna að svara þeirri spurningu, en þó er þetta mjög stór spurning, og það er auðvitað alveg nauðsynlegt að hæstv. ráðh. geti svarað því, hvaða fjármálalegar afleiðingar þetta hefur fyrir ríkið, hvort það sé, þegar allt kemur til alls, hagkvæmt fyrir ríkið að fara þessa leið. Ég held að þetta sé svo stór spurning að hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. ættu að gera sér fyllilega grein fyrir því og reyna að gera Alþ. grein fyrir því, hvernig þetta kæmi út frá fjárhagslegu sjónarmiði. Hæstv. ráðh. sagði sem svo, að það væri ekki hægt að svara þessu, það væri ekki hægt að gefa neitt algilt svar við því, hvaða afleiðingar þetta hefði. En ég vil spyrja hæstv. ráðh. hverjar séu líkurnar fyrir því, að ríkið hafi hagnað af því að fara út í eignarnám með þeim hætti sem hér er lagt til.

Ég hef hér fyrir framan mig grg. frá fulltrúum eiganda Deildartunguhvers, þar sem þeir velta fyrir sér þessari spurningu, hvað mundi ske ef eignarnám eigi sér stað, fjárhagslega séð, og þá segja þeir það sem mér finnst rétt að menn leiði hugann að, og ég ætla — með leyfi hæstv. forseta — að lesa dálítinn kafla úr grg. fulltrúa eiganda Deildartunguhvers, en þeir segja sem svo:

„Fari eignarnám fram, ber ríkissjóði að inna af hendi eignarnámsbætur og er miðað við að um staðgreiðslu sé að ræða. Hins vegar yrði ríkissjóður af umtalsverðum skatttekjum. Væru væntanlegir skattar fyrir næstu 20 árin greiddir fyrir fram nú í dag næmu þeir 69 millj. kr. vegna lokatilboðs HAB en 224 millj. kr. vegna lokatilboðs eiganda. Fé til greiðslu eignarnámsbóta mun ríkissjóður ætla að taka af lánsfé því sem HAB er ætlað í lánsfjáráætlun og kann lítið að verða eftir til framkvæmda á vegum HAB, þegar upp er staðið.“

Og einnig segja fulltrúar eiganda Deildartunguhvers: „Mat á verðmæti hversins með tilliti til notkunar hans á vegum HAB er mjög háð olíuverði og byggingarkostnaði. Byggt á forsendum HAB og starfshóps iðnrn. var mat á sjálfrennsli hversins um 200 millj. kr. á verðlagi 1. jan. 1979, en er í dag um 1560 millj.“

Þeir taka jafnframt fram, fulltrúar eiganda Deildartunguhvers, að þetta sé ekki endilega mat þeirra sjálfra, en þetta er það mat sem ráða má af því sem fram kemur hjá starfshópnum svokallaða. Enn fremur segja þeir, fulltrúar eiganda Deildartunguhvers:

„Sökum taps á væntanlegum skattgreiðslum er ríkissjóði ekki hagur að eignarnámi. Sökum mikillar greiðslubyrði og missis framkvæmdafjár er HAB ekki hagur að eignarnámi. Enn fremur er það gegn vilja og hagsmunum íbúa Reykholtsdalshrepps og fleiri Borgfirðinga, að hverinn verði afhentur HAB til eignar. Hins vegar er eiganda hversins einum hagur að eignarnámsaðgerðinni, þar eð eignarnámsbætur gæfu allmiklu hærri arð en lokatilboð hans.“ — En svo bæta þeir við: „Þrátt fyrir það stendur eigandi staðfastlega gegn eignarnámi og óskar þess, að hverinn megi haldast í eigu ættmenna hans svo sem verið hefur í tvær aldir.“

Þarna reyna þeir, fulltrúar eiganda Deildartunguhvers, að gera sér grein fyrir því, hvaða fjárhagslegar afleiðingar þetta hefur, og ég held að það væri skynsamlegt líka fyrir hæstv, iðnrh., fyrir hæstv. fjmrh. og ríkisstj. í heild og Alþ. að gera sér grein fyrir þessu og fá úr því skorið hvað þarna er verið að leggja út í með eignarnámi og hvort ekki væri möguleiki á því að ná, þegar upp er staðið, jafngóðum árangri með frjálsum samningum. Ég minni því enn á till. mína um það, að þessu máli verði vísað frá með rökstuddri dagskrá, og ég vona að hv. þm. sinni þeirri till. Ef ekki verður af því, þá hygg ég nú að skárri kosturinn sé leigunámið sem hér hefur mjög borið á góma og till. eru um. En ég held þó að á þessu stigi væri best að tala um hvorugt, eignarnám eða leigunám, heldur að vísa málinu frá og vinda sér í það að reyna að ná frjálsum samningum við fulltrúa eiganda hversins.