21.05.1979
Neðri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5156 í B-deild Alþingistíðinda. (4523)

306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að óska þeim þjóðnýtingarmönnum, sem hafa fengið frv. um Deildartunguhver tekinn eignarnámi samþykkt hér, hjartanlega til hamingju með úrslitin og þó alveg sér í lagi með þann öfluga stuðning sem þeir hafa fengið frá verulegum hluta af Sjálfstfl. Það eru nokkur tíðindi í mínum huga.

Þrátt fyrir það að ég hef reynt að flytja mál eiganda hversins og Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar sameiginlega og ekki orðið meira ágengt en raun ber vitni vil ég við þessa umr. láta þá eindregnu von í ljós, að hæstv. iðnrh. beri gæfu til þess að leysa þetta mál með samningum þannig að ekki þurfi til að koma að þeim ákvæðum — óheillaákvæðum — sem hér voru samþykkt.