21.05.1979
Neðri deild: 96. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5184 í B-deild Alþingistíðinda. (4554)

298. mál, ríkisreikningurinn 1977

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal reyna að lengja ekki þessar umr. mjög mikið, en ég vil aðeins minnast á það sem hæstv. fjmrh. gat um, að mötuneyti, sem eru á vegum opinberra stofnana víðs vegar um borginá, líklega víðs vegar um landið, eru í mjög ósanngjarnri samkeppni við veitingahús, enda hefur rekstur veitingahúsa og matsölustaða, hér í höfuðborginni a. m. k., stórliðið fyrir þá starfsemi. Ég fagna því, að hæstv. ráðh. er þeirrar skoðunar að þarna þurfi að verða breyting á. En ég vildi koma því að úr sæti mínu, á meðan hæstv. ráðh. talaði, að sama gildir líka um pöntunarfélög sem ríkisstofnanir reka víðs vegar um bæinn, t. d. Póstur og sími. Og mér er sagt að bankarnir hafi sína pöntunarstofnun, einhverjir þeirra a. m. k., og fleiri stofnanir. Hér er líka um óeðlilega samkeppni að ræða við verslanir. Þarna eru fyrirtæki að reka niðurgreidda starfsemi. Það má því segja að hér sé um launauppbætur að ræða. Ég held að það væri þarft verk að kanna hvort á þeim fyrirtækjum, sem ríkisstofnanir reka, hvíli sömu skyldur og á eðlilegum rekstri þjónustufyrirtækja sem greiða alla sína skatta og fleira til sameiginlegra þarfa þjóðfélagsins. Ég held að svo sé ekki.

En vegna þeirra orða, sem hér hafa fallið í garð Rafafls svf., vil ég taka það fram til upplýsingar fyrir hv. 7. þm. Reykv., sem hann hefur þó eflaust lesið, að neðst á bls 420 í ríkisreikningnum, sem ég ætla að leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta, stendur:

„Snemma árs 1976 fór fram útboð vegna vinnu við raflagnir í Kröfluvirkjun. Hönnun raflagna var þá ekki að fullu lokið, en ráðgjafarverkfræðingarnir töldu að nauðsynlegt væri að festa rafverktaka í þessu stigi málsins vegna verk- og tímaáætlunarinnar. Gert var ráð fyrir að heildarverkið yrði mun umfangsmeira. Kom það skýrt fram í útboðsgögnum (05.101).“ Þegar fyrsti hluti þessarar vinnu var boðinn út og útboðsupphæðin var 30 millj., þá var gert ráð fyrir að sami verktaki ynni áfram eftir að útboðsgögn væru frá ráðgjafarverkfræðinganna hendi fullunnin. Hér var aðeins um að ræða fyrstu skref í stóru verki sem var að hefjast og ráðgjafaverkfræðingarnir vildu tryggja sér verktaka.

Síðan heldur áfram, með leyfi hæstv. forseta, efst á bls 421: „Útboðsgögn fengu 5 helstu rafvirkjafyrirtæki hérlendis. Svo sem kemur fram í ummælum ráðgjafarverkfræðinganna (05.101) var tilboð frá Rafafli langsamlega lægst eða aðeins 77% af áætlun ráðgjafa. Gerðu þeir því ítarlega könnun á réttmæti tilboðsins og þeim einingarverðum sem lágu því til grundvallar. Reyndist tilboðið vera í alla staði í samræmi við útboðslýsingu og mæltu ráðgjafar með því að því yrði tekið. Var því gerður verksamningur við Rafafl svf.“ — Síðan er talað um aukaverk.

Nú er það svo, að það kemur iðulega fyrir að ráðgjafarverkfræðingar, sem gera kostnaðaráætlanir og hanna verk, gera rangar kostnaðaráætlanir. Það má segja, að sum tilboð t. d. sem hafa borist Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar geti farið allt niður í ég held 56% af áætlaðri kostnaðarupphæð, en viðkomandi verktakar hafa þó staðið við sín tilboð. Við í borgarráði Reykjavíkur höfum oft hikað við að taka svo lágum boðum. Reyndin er sú hjá Reykjavíkurborg núna, og við höfum verið að tala um að láta rannsaka okkar eigin embættismenn, hvernig á því stendur að þeir gera svona rangar kostnaðaráætlanir.

Ég vildi aðeins að þetta kæmi fram, að það þarf ekki endilega að vera tortryggilegt þó fyrirtæki geri lág tilboð. Það getur verið margt sem kemur þar inn í. Það getur líka verið að aðrir verktakar hafi mikið af verkefnum í gangi og þeir leggi ekki eins mikla áherslu á að fá verkið og sá sem er verklítill á því augnabliki. Það staðfestist hér á bls. 426, með leyfi hæstv. forseta: „ Eins og fram kemur í svarinu var hönnun raflagna ekki lokið er útboðsgögn voru send út, en ráðgjafarverkfræðingar á hinn bóginn þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt væri að festa rafverktaka í flýti. Ekki verður séð að hagkvæmni þess að bjóða út verk njóti sín undir slíkum kringumstæðum.“ Þetta getur verið alveg rétt, en það er ekki rafverktókunum að kenna. Það eru ráðgjafarverkfræðingarnir sem eru þarna að tryggja sér verktaka, þar er varnagli til þess að lenda ekki í verkstöðvun á milli þess að þeir eru tilbúnir með hluta af hönnunarverkinu, en ekki allt.

Ég sé ekki út af fyrir sig neitt athugavert við upphæðirnar sem fara úr 30 millj. í 123 millj. þegar þetta liggur ljóst fyrir, að bara hluti af verkinu, sem átti að vinna, var hannaður þegar fyrsti áfangi var boðinn út.

En úr því að verið er að gera þessi aukaverk að umræðuefni, þá er hér á bls. 419 yfirlit yfir þrjú verk. Ég ætla ekki að lesa upp nöfn fyrirtækjanna, það skiptir ekki máli í þessari umr., en framkvæmdahluti samnings hjá fyrstu fyrirtækjasamstæðunni, sem þar er samið við, er 90 millj. 922 þús. Verðbæturnar eru svo 22 millj. rúmar, en aukaverðbætur eru taldar vera 75 millj., þannig að samtals verður vinnan, sem samið er um, 90 millj., en 188 millj. rúmar þegar þeir hafa lokið verki sínu.

Í öðru dæminu á bls. 419 þar er annað fyrirtæki, er framkvæmdasamningur 67 millj. 544 þús. og verðbætur 17 millj., en aukaverk nema hærri tölu en framkvæmdasamningurinn eða 68 millj. 794 þús. Og þegar upp er staðið hafa þeir unnið verk án frekari útboða fyrir 251 millj. Þriðja dæmið er svo Rafafl, og þá skil ég ekki af hverju Rafafl er dregið inn í þessa umræðu eitt og sér.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, herra forseti, en þakka fyrir þá þolinmæði sem forseti hefur sýnt okkur í kvöld.