22.05.1979
Sameinað þing: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5201 í B-deild Alþingistíðinda. (4572)

353. mál, byggingamál kennaraskóla og skóla þroskaheftra

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir bar fram þá spurningu til mín, hvenær vænta megi að byggingu 2. áfanga Öskjuhlíðarskóla verði lokið og hvort líkur séu á að sú áætlun standist, að þeim áfanga verði lokið á árinu 1980. Eins og fram kom í máli hv. þm. og raunar í máli seinasta ræðumanns, fyrrv. menntmrh. Vilhjálms Hjálmarssonar, hefur nú orðið nokkur dráttur á því að unnt væri að hefjast handa við byggingu þessa skóla, m. a. vegna þess að breytingar hafa verið gerðar á teikningum. Ég get sagt það eitt með vissu, að þeir, sem gerst þekkja til mála í menntmrn., telja, að undirbúningsvinnan eigi að vera komin á lokastig síðla sumars, og gera því greinilega ekki ráð fyrir að byggingarframkvæmdir hefjist alveg á næstu vikum. En ég vænti þess eindregið að reynt verði að hraða þessu verki. Hitt finnst mér að heilbrigð skynsemi segi mér eins og öllum öðrum, að harla ólíklegt sé að þessum áfanga verði lokið á árinu 1980, þó að byggingarframkvæmdir hefjist síðla sumars á þessu ári. Auk þess er ég kannske ekki miklu færari en aðrir þm. að segja til um það, hversu mikill hraði verður á byggingarframkvæmdum, vegna þess að auðvitað veltur það á fjárveitingum fyrir árið 1980.

Nýlega hafa verið samþykkt lög um fjármögnun verka af þessu tagi, og þar er gert ráð fyrir að 1000 millj. kr. auk verðbóta verði varið til þeirra mála. Það er sérstök stjórnarnefnd, sem m. a. er skipuð fulltrúum frá þremur rn., sem skiptir þessu fé, og ég þykist sjá fram á að við getum ekki vitað með vissu, hvenær þessum framkvæmdum ljúki, fyrr en þessi n. hefur tekið til starfa og gert tillögur sínar.