22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5238 í B-deild Alþingistíðinda. (4618)

93. mál, endurskipulagning á olíuverslun

Frsm. meiri hl. (Gunnlaugur Stefánsson):

Herra forseti. Á þskj. 823 er nál. frá meiri hl. allshn., sem fjallar um till. til þál. um endurskipulagningu á olíuverslun í landinu. Á fundi n. þar sem þetta mál var tekið fyrir, að vísu var það tekið fyrir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, var meiri hl. viðstaddra nm. sammála um að mæla með því við Sþ., að till. verði samþykkt. Undir nál. rita Páll Pétursson, formaður, Bjarnfríður Leósdóttir og Gunnlaugur Stefánsson. Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru Ólafur Ragnar Grímsson, Vilmundur Gylfason og Lárus Jónsson, en minni hl. n., fulltrúi Sjálfstfl. sem viðstaddur var, mun skila séráliti. Till. til þál. hljóðar þannig:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að skipa fimm manna nefnd til að gera till. um endurskipulagningu á innflutningi á olíuvörum og dreifingu þeirra um landið. Nefndin hafi það verkefni að tryggja fyllstu hagkvæmni í innkaupum, sölu og dreifingu á olíuvörum innanlands, svo að þær geti jafnan verið á boðstólum á lægsta verði til notenda. Nefndin hraði störfum sínum eftir mætti og skili till. til ríkisstj. og Alþ. eigi síðar en 1. ágúst 1979. Æskilegt væri, að nefndin beindi athygli sinni einkum að eftirfarandi atriðum: 1. Hugsanlegri einkasölu ríkisins á olíuvörum. 2. Sameiningu olíufélaganna. 3. Aðhaldi í rekstri félaganna og meirafrjálsræði í olíuinnflutningi, er gæti aukið samkeppni í olíukaupum og olíudreifingu.“

Þannig hljóðar till., og það má geta þess í þessu sambandi, að stuttu eftir að meiri hl. n. hafði afgreitt hið jákvæða álit sitt bárust fregnir um það, að viðskrh. hefði ákveðið að skipa nefnd til þess að kanna þetta mál nánast í anda þessarar till. til þál. Þessu ber vissulega að fagna, að svo snögglega og skyndilega skuli vera tekið á málum í íslensku stjórnkerfi, og er ólíku saman að jafna, ef tekið er mið af ýmsum öðrum málum sem velkst hafa í kerfinu á undanförnum árum. Því tel ég að við það starf, sem þessi nefnd kemur til með að vinna nú strax á næstunni, yrði það mikill stuðningur ef slík till. sem þessi yrði samþ. á hinu háa Alþingi.