22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5239 í B-deild Alþingistíðinda. (4620)
93. mál, endurskipulagning á olíuverslun
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Sem 1. flm. þessarar till. á hinu háa Alþingi langaði mig til að koma að nokkrum sjónarmiðum og sér í lagi vegna orða hv. síðasta ræðumanns. Ég vil taka undir þau orð hv. þm. Gunnlaugs Stefánssonar, að ég fagna því frumkvæði sem ríkisstj. hefur haft í þessu máli. Mér finnst að þar hafi verið rétt að málum staðið, rösklega tekið til höndum og málið raunverulega afgreitt áður en þingið sjálft afgreiðir það. Það færi betur að svo væri um fleiri mál sem hér velkjast, ekki eitt ár og ekki tvö ár, heldur kannske allt upp í fimm sex ár.
Ég vil lýsa þeirri skoðun minni, að ég tel brýna nauðsyn bera til að málið verði afgreitt hér á þinginu, og lít svo á að afgreiðsla þingsins á því verði stuðningur við ríkisstj. og þá kannske einkum og sér í lagi hæstv. viðskrh. sem hefur þegar ákveðið að láta þessa athugun fara fram.