22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5253 í B-deild Alþingistíðinda. (4641)
264. mál, fiskeldi að Laxalóni
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég ættaði ekki að eyða löngum tíma til þess að ræða það sem hér hefur komið fram viðkomandi þessari till. Það var mjög fróðleg lexía sem hv. 2. þm. Austurl. hélt fyrir okkur, og vafalaust hafa einhverjir haft ánægju af að hlýða á hana. En ég tel hana með öllu óþarfa á þessu stigi. Það hefur aldrei verið farið fram á það af okkur, sem stöndum að þessari till., að hún mætti ekki skoðast af þingnefnd í Sþ. En það sýnir náttúrlega áhuga þeirra mann, sem þá nefnd skipa, og þeirra, sem nú hafa gífurlegan áhuga á því að önnur nefnd fái þetta mál til skoðunar, að enginn þeirra hefur gert tilraun til eða till. um að fá þessa till. til skoðunar í allshn., fjvn. eða hvaða annarri nefnd sem mönnum gæti dottið í hug að væri betur til þess fallin að skoða málin en allshn. Nd.
Það er talað um að við höfum lagt þessa till. seint fram. Hv. 2. þm. Suðurl. lagði á það ríka áherslu, að við hefðum átt að skila þessu fyrr. Það má vel vera. Þetta tók langan tíma hjá okkur, það skal viðurkennt. En ég bendi honum þó á að till. var flutt hér 24, apríl eða fyrir mánuði og eitthvað hefði nú hv. allshn. Sþ. átt að geta aðhafst á þeim tíma til þess að betrumbæta þessa till. sem margir lögspekingar og þingvanir menn hér hafa gagnrýnt að formi til. Ef menn hafa áhuga á þessu máli og ef mönnum finnst þessi till. illa úr garði gerð, sem auðvitað kann að vera álitamál, þá er hægur vandinn að gera brtt. við þau atriði sem svo illa eru samin að ekki fái staðist, eins og menn hafa gert hér mikið úr og breitt sig út yfir, að það væri ekki tekið fram í ályktuninni hver ætti að skipa nefndina. Það má auðvitað vel segja sem svo, eins og hér hefur verið haft í flimtingum, að það yrðu Skúli og tveir synir hans sem skipuðu nefndina. En dettur mönnum í hug að allshn. Nd. hafi haft það í huga? Því hygg ég tæpast að nokkur maður trúi. Ég hefði lítið svo til, að það væri ríkisvaldið sem skipaði þessa þriggja manna nefnd, með því að Alþ. skipar ekki nefndir. En ef menn eru í einhverjum vafa um það, þá er hægast að gera breytingu á því.
Allt þetta er sem sagt fundið upp til þess að drepa þessu máli á dreif, það er augljóst mál. Ég skal ekki fara neitt út í hugleiðingar um hvers vegna það er gert.
Það var talað um það hér af hv. 2. þm. Austurl., að það væri óeðlilegt að málefni einstaklings væru sérstaklega tekin fyrir til skoðunar hjá Alþ. Ég held að það sé æðioft sem það hefur komið fyrir. Ég hygg að t. d, þegar verið er að selja jarðir, þá séu það tilteknir einstaklingar sem jarðirnar eru seldar. Í gær var verið að samþykkja hér í hv. Nd. að taka eignarnámi tiltekna eign af tilteknum einstaklingi. Það er hans mál, það er einstaklingsmál, þó að það snerti fleiri. En laxeldismálið snertir líka fleiri en Skúla Pálsson. Og það hefur verið okkar skoðun og það, sem hefur hvatt mig til þess að taka þátt í þessum athugunum, er það, að ef þessi maður — mér er alveg sama hvað hann heitir og hann er ekki vandabundinn mér á nokkurn hátt og ekki einu sinni kunnugur — en ef það á að verða niðurstaðan, að ævistarf hans verður jafnað þarna við jörðu, þá óttast ég að aðrir einstaklingar verði ragir við að hefja slíkar framkvæmdir og þori ekki að taka þá áhættu sem því fylgir að byggja upp þennan mikilsverða atvinnuveg. Ég veit ekki til þess að Kollafjarðarstöðin hafi beðið hér um fjármagn sem við aðstandendur þessarar till. höfum neitað um, og þess vegna er þar alveg ólíku saman að jafna. Ég held að hún hafi fengið það fjármagn sem hún hefur beðið um, svona nokkurn veginn. Ef það er ekki svo, þá ætti hv. 2. þm. Suðurl. að drífa sig í að bera fram till. um fjárveitingu til Kollafjarðarstöðvarinnar og láta vísa henni til hv. allshn. Sþ. Það væri í fullu samræmi við þá afgreiðslu sem hann leggur til á þessari tillögu.
Ég ætla ekki að fara að eyða hér tíma þingsins að næturþeli í það að ræða þetta frekar. Ég fellst fyllilega á málsmeðferð hæstv. forseta. Auðvitað verður till. hv. þm. Þórarins Sigurjónssonar borin upp, og ef menn vilja fella þessa þáltill., þá samþykkja þeir till. hv. þm., það er ljóst mál. Ef þeir hins vegar sjá ekki ástæðu til þess að vísa málinu til nefndar, þá kemur till. sem slík til atkv., þá kemur vilji Alþ. fram. Og ef einhverjir þeir menn, sem vilja fylgja till. í grundvallaratriðum, eru óánægðir með form hennar, þá gera þeir þær brtt. sem þeir telja að þurfi til að koma til þess að till. geti að þeirra mati verið þingleg, ef hún er það ekki í þessu formi, sem ég held þó að ástæðulaust sé að vefengja.
Ég læt þessum umr. lokið af minni hálfu, herra forseti, og sætti .mig fyllilega við þá málsmeðferð sem hér hefur verið stungið upp á. Þá kemur vilji Alþ. fram, og það er ekki annað sem við getum beðið um.