22.05.1979
Efri deild: 114. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5259 í B-deild Alþingistíðinda. (4646)
306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Það mál, sem hér er til umr., er búið að fá mikla umfjöllun hér á hv. Alþ., og er það að vonum því að hér er um stórt og þýðingarmikið mál að ræða. Sérstaða málsins í mínum huga er sú, að hér er um áformaða sameiginlega hitaveitu sveitarfélaga að ræða sem hafa yfir 6500 íbúa. Mikilvægi þess, að slík hitaveituframkvæmd verði að veruleika, er því augljóst miðað við núverandi orkuverð sem öllum er kunnugt um og margrætt hefur verið. Einnig er ljóst í sambandi við þetta mál, að framkvæmdir við væntanlega hitaveitu þola ekki bið og lánsfjáráætlun, sem samþykkt hefur verið, gerir ráð fyrir framkvæmdum á árinu 1979. Þess vegna er þetta mál sérstætt að þessu leyti til og nauðsynlegt að það fái afgreiðslu á hv. Alþ. áður en þingi lýkur.
Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri til þess að harma það sérstaklega, að ekki skyldu nást samningar við eiganda Deildartunguhvers. Ég ætla ekki að eyða löngu máli í það, en það er skoðun mín, að eignarnám sé oftast neyðarúrræði. Ákveðin bjartsýni ríkti um það, að samningar um þetta mál mundu nást, og á stofnfundi Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar á s. l. vetri kom það greinilega í ljós, m. a. í yfirlýsingu fulltrúa iðnrh., að hann taldi að samkomulag væri í nánd. Og svo mikið er víst, að fram hafði komið frá eiganda Deildartunguhvers, að það var vissulega áhugi á því að láta af hendi þetta dýrmæta vatn til þess að hita upp híbýli manna á hitaveitusvæðinu. Þess vegna verð ég að harma það að samningar skyldu ekki nást, að það skyldi hafa slitnað upp úr á þann veg sem raun ber vitni og raunar kom mér og fleirum það algjörlega á óvart.
Það, sem ég vildi koma hér á framfæri, er að ég hafði áhuga á því fyrst og fremst að láta skoða málið í því ljósi, hvort ekki væru möguleikar á samkomulagi úr því sem komið er. Þegar frv. kom hér fram á hv. Alþ. var mér ljóst að hagsmunir eins sveitarfélags á svæðinu, þess sveitarfélags sem jarðhitinn er í, Reykholtsdalshrepps, höfðu verið sniðgengnir. Ég er það mikill sveitarstjórnarmaður, að mér fannst það vera augljóst mál að gera yrði tilraun til að koma í veg fyrir að gengið yrði á rétt eins sveitarfélags. Því þyrfti þetta sérstakrar skoðunar við.
Eins og hv. alþm. er kunnugt hafa mörg skjöl borist hingað inn á hv. Alþ. einmitt frá þessu sveitarfélagi. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. með því að fara að lesa þau, enda eru þau sjálfsagt öllum hv. alþm. kunn, þeim sem vilja koma nálægt málinu. En ég vil vekja athygli á samþykkt sem gerð var á fundi stjórnar Búnaðarsambands Borgarfjarðar með oddvitum alls héraðsins 17. apríl s. l. Þó að það hafi ekki áhrif á þetta mál í þessari stöðu, þá finnst mér ástæða til að benda á það, að hér er um að ræða yfirlýsingu sem ég tel að sé mjög mikilvæg og geti e. t. v. markað verulega framtíð þessara mála í því héraði sem um er að ræða ef rétt verður á málum haldið.
Í samþykktinni segir í fyrsta lagi að viðurkenndur verði forgangsnýtingarréttur sveitanna á þeim jarðhita sem í þeim er og þar kann að finnast. Í öðru lagi að komi til djúpdælingar úr borholum og þar með röskun á því jafnvægi sem ríkir í vatnsstöðu héraðsins skuli sá aðili, sem djúpdælinguna framkvæmir, ábyrgjast og bæta að fullu þá minnkun á heitavatnsrennsli hvar sem hún verður í héraðinu. Þá segir í þriðja lagi að fundurinn líti svo á, að sveitarstjórnir eigi að vera samningsaðilar að öllum jarðborunar- og jarðhitaréttindasamningum í héraðinu til tryggingar framangreindum atriðum svo og til þess að tryggja dreifingu á heitu vatni um héraðið. Allir þessir oddvitar samþykktu einnig í framhaldi af þessu að lýsa yfir vilja sínum til að stofna samtök sveitarfélaga í héraðinu um heitavatnsréttindi og hitaveitumálefni, og kosin var þriggja manna nefnd oddvita til athugunar og undirbúnings því máli. Undir þessa ályktun skrifa allir oddvitar sveitarfélaga í Borgarfjarðarhéraði: Sveinn Bjarnason oddviti Borgarhrepps, Jón Blöndal oddviti Andakílshrepps, Eyjólfur Andrésson oddviti Hvítársíðuhrepps, Magnús Kolbeinsson oddviti Hálsahrepps, Jón Þór Jónasson oddviti Stafholtstungnahrepps, Guðmundur Brynjólfsson oddviti Strandarhrepps, Anton Ottesen oddviti Innri-Akraneshrepps, Jón Böðvarsson oddviti Lundarreykjadalshrepps, Guðmundur Þorsteinsson oddviti Skorradalshrepps, Magnús Kristjánsson oddviti Þverárhliðarhrepps, Jón Þórisson oddviti Reykholtsdalshrepps, Þórður Kristjánsson oddviti Norðurárdalshrepps, Kristinn Júlíusson oddviti Leirár- og Melahrepps og Sigurður Sigurðsson oddviti Skilmannahrepps.
Mér finnst nauðsynlegt að þessi ályktun komi hér fram, vegna þess að hún er að mínu mati skynsamleg útfærsla á því, hvernig á að standa að svona málum á héraðsgrundvelli. Það hefur síðan komið fram, sem er mjög jákvætt að mínu mati, að eigendur Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hafa tekið með skilningi á þessari afstöðu og lýst sig reiðubúna til samninga við þessa aðila um framgang þessara mála í héraði, og vil ég sérstaklega undirstrika nauðsyn þess, að það nái fram að ganga.
Í sambandi við mótmæli hreppsnefndar Reykholtsdalshrepps vegna eignarnámsfrv. sem hér liggur fyrir vil ég segja það, að mér fannst nauðsynlegt að finna flöt á því að reyna að tryggja íbúum Reykholtsdalshrepps réttindi til jafns við aðra í sambandi við Deildartunguhver eða það vatn sem úr honum er tekið, og út frá því lagði ég þunga áherslu á að reyna að koma því til leiðar, áður en málið yrði afgreitt, að tekið yrði tillit til þessa. Það hafði þegar komið fram í brtt. iðnn. Nd., að gert var ráð fyrir að það yrði ríkissjóður sem ætti hverinn og framleigði síðan hitaréttindi úr honum til hitaveitunnar. En það, sem vantaði til viðbótar við þetta ákvæði, var á hvern hátt yrði gengið til móts við íbúa Reykholtsdalshrepps í sambandi við þá samninga sem í hönd hlytu að fara varðandi þessi réttindi. Það varð að samkomulagi með þm. Vesturl. að óska eftir því við hæstv. iðnrh., að hann bætti þessu inn í frv. Varð hæstv. ráðh. við þessari ósk og var þessi viðbót við frv. samþ. í Nd.: „verði þá m. a. höfð hliðsjón af hagsmunum íbúa Reykholtsdalshrepps“. Þetta tel ég ákaflega mikilvægt atriði í þessari stöðu málsins og geri ráð fyrir að hæstv. iðnrh. beiti sér fyrir því, að þetta ákvæði verði meira en orðin tóm.
Út af fyrir sig er ekki sjáanlegt að um það verði að ræða í þessari hv. d. að gera neinar breytingar á stöðu málsins eins og það kemur frá Nd. Ég mun ekki gera neina tilraun til þess, þar sem ég tel að miðað við sveitarstjórnarsjónarmiðin hafi náðst fram það sem hægt var í þessu máli til þess að tryggja að öll sveitarfélögin á þessu svæði byggju við nokkurt jafnræði. Ég vil þó koma hér að einu atriði sem ég tel nokkuð stórt mál í sambandi við það eignarnám sem hér á fram að fara. Það er viðvíkjandi þeim kostnaði sem af eignarnáminu hlýtur að verða. Það er náttúrlega öllum ljóst, að slíkur kostnaður hlýtur að verða umtalsverður. Ég tel mikilvægt fyrir væntanlegar framkvæmdir hitaveitunnar á árinu 1979 og að það komi fram í þessum umr., að sá kostnaður bitni ekki á hitaveituframkvæmdunum á árinu 1979. Ég hef ekki séð það eða orðið þess var í þeim umr. sem urðu um málið í Nd., að þetta kæmi greinilega fram, en æskilegt væri að fá upplýsingar um þetta við umr. hér í Ed.
Ég vil einnig taka undir og fagna þeirri yfirlýsingu sem hæstv. iðnrh. gaf hér við þessa umr., að enn sé svigrúm til samkomulags, og ég vænti þess, að hæstv. iðnrh. hafi þetta meira en óskhyggju, að hann muni beita sér fyrir því að reyna að ná slíku samkomulagi, án þess að það tefji hitaveituframkvæmdir sem eru fyrirhugaðar á þessu ári. Við umr. málsins í Nd. lagði einn ræðumaður, hv. þm. Kjartan Ólafsson, sem er formaður iðnn. Nd., nokkuð út af áliti oddvita Reykholtsdalshrepps í sambandi við þetta mál sem hann hafði látið falla á fundi með iðnn. Nd. þegar málið var til umr. Oddviti Reykholtsdalshrepps hefur beðið mig um að koma hér á framfæri aths. til þess að afstaða hans til þessa máls sjáist í þingtíðindum. Um leið vil ég segja það, að mér finnst ekki tilhlýðilegt að þm. séu að tilfæra sem rök í máli sem þessu, svona viðkvæmu máli, ummæli manna sem ekki eru viðstaddir, ummæli sem kannske er hægt að mistúlka á öðrum vettvangi. Þess vegna hef ég fúslega orðið við þeirri ósk oddvita Reykholtsdalshrepps að lesa hér upp aths. við ummæli hv. þm. Kjartans Ólafssonar, sem hann viðhafði í Nd. við umr. málsins. Þessi aths. oddvita Reykholtsdalshrepps hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Kjartan Ólafsson, formaður iðnn. Nd. Alþingis, mun hafa haft eftir mér í umr. á Alþ. í gær að ég væri hlynntari eignarnámi en leigunámi á Deildartunguhver. Það, sem ég sagði, var á þá leið, að ég teldi leigunám vera tilgangslaust því að það leysti ekki vandann til frambúðar. Þetta sagði ég vegna þess, að þær upplýsingar, sem ég hafði um leigunám, voru á þann veg, að það væri ekki framkvæmanlegt nema til eins eða tveggja daga eða nokkurra daga á hættu- eða neyðarstund og ætti ekki stoð í lögum til lengri tíma. Þessar upplýsingar munu vera komnar frá iðnrn.
Þá lýsti ég því einnig yfir, að allir meðnm. mínir í hreppsnefndinni væru á einu máli um það, að leigunám væri það eina sem til mála kæmi ef samningar ekki tækjust. Þegar ég heyrði svo um brtt. Gunnars Thoroddsens sá ég fyrst að ég hafði verið blekktur með slíkum upplýsingum. Hringdi ég þá bæði í dr. Gunnar Thoroddsen og forsrh. Ólaf Jóhannesson og spurði þá hvort leigunám gæti virkilega farið fram til langs tíma, allt að 20–30 ára. Voru þeir báðir sammála um að ekkert væri því til fyrirstöðu samkv. íslenskum lögum. Veit ég að þeir munu báðir staðfesta að þessi símtöl áttu sér stað. Það, sem ég sagði um leigunám, var því eingöngu vegna rangra upplýsinga.
Reykholti, 22. maí 1979.
Jón Þórisson,
oddviti Reykholtsdalshrepps“.
Ég taldi skylt að láta þessa aths. koma hér fram í þingræðu um þetta mál til málsbóta fyrir oddvita Reykholtsdalshrepps, og ég vil undirstrika það sem ég sagði áðan, að það er ákaflega hæpið að vitna í ummæli manna, eins og gert var í þingræðu í Nd. í gær, sem oftast hafa ekki möguleika á að koma fram með leiðréttingar eða aths. í sambandi við slík mál.
Ég vil svo að lokum endurtaka það, að ég tel ekki aðstöðu til að gerðar verði við þessa lokaumr. í Ed. neinar breytingar á þessu frv., eins og það er nú, með þeirri tryggingu sem það gefur íbúum Reykholtsdalshrepps. Mikilvægi málsins er það, að hægt verði að nýta þessi auðæfi, þetta dýrmæta vatn sem Deildartunguhver hefur, til þess að koma á hitaveitu fyrir 6500 íbúa sem búa nú við gífurlegt orkuverð eins og víða annars staðar er á landinu þar sem er að mestu leyti notast við olíukyndingu. Þess vegna mun ég styðja frv. eins og það er nú komið frá Nd., en treysti jafnframt því, að iðnrh. og rn. sjái um það í fyrsta lagi, að athugað verði í alvöru, eins og hæstv. iðnrh. tók fram áðan, hvort ekki eru möguleikar á samkomulagi, og í öðru lagi að þeir samningar, sem gerðir verða um afnot vatnsins, verði á þann hátt, að það verði öllum aðilum í þessum byggðum til heilla.