22.05.1979
Efri deild: 114. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5264 í B-deild Alþingistíðinda. (4650)
251. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Meiri hl. n. leggur til á þskj. 847 að frv. verði samþ. Minni hl. n. hefur á öðru þskj. skilað till. að rökstuddri dagskrá þess efnis, að þar sem Alþ. hafi þegar samþ. þál. um að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf um iðngarða í samráði við ýmsa aðila og í trausti þess, að frv. til slíkrar löggjafar verði lagt fyrir næsta Alþ., taki deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Við sjáum ekki ástæðu til þess að samþykkja þessa rökstuddu dagskrá. Við teljum þvert á móti að í því frv., sem hér er verið að leggja til að samþ. verði, hafi þegar náðst í reynd verulegur hluti af því, sem kveðið er á um í þeirri þáltill. sem minni hl. n. vísar til í sinni rökstuddu dagskrá, og beri frekar að fagna því, að málið hafi gengið svo greitt fyrir sig sem fram kemur í því frv. sem við erum hér að fjalla um. Mælir því meiri hl. n. eindregið með því að till. til rökstuddrar dagskrár verði felld og frv. samþ. óbreytt.