22.05.1979
Efri deild: 114. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5266 í B-deild Alþingistíðinda. (4654)

311. mál, tímabundið aðlögunargjald

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Eins og tekið er fram í nál. meiri hl. vorum við sjálfstæðismenn í n. í andstöðu við meginefni þessa frv. Hér er um frv. að ræða sem kemur til með að leggja á þjóðina 1200–1500 millj. kr. skatt í viðbót við alla þá miklu skatta sem á þjóðina hafa verið lagðir undanfarið, og hefur maður satt að segja talið að nú væri svo komið, að tími væri kominn til að staldra við áður en haldið yrði áfram þeirri skattpíningarstefnu sem hefur gersamlega ráðið ríkjum síðan hæstv. núv. ríkisstj. tók við völdum.

Við erum öll sammála um það, að ástæða er til að reyna að létta undir með iðnaðinum. En við, sem skipum minni hl., teljum að eðlilegra hefði verið að gera það á þann hátt að reyna að minnka þær álögur, sem á iðnaðinn hafa verið lagðar, í stað þess að bæta við erfiðleika heimilanna með aukinni skattheimtu sem kemur illa við alla, fyrir utan það hvað hún er verðbólguhvetjandi og hefur á öllum sviðum slæm áhrif.

Það er talað um það í þessu frv., að tekjum af þessu svokallaða aðlögunargjaldi á árinu 1979 skuli varið til sérstakra iðnþróunaraðgerða. Það er mikið í tísku nú á tímum að tala um ýmsar hagræðingaraðgerðir iðnþróunaraðgerðir og ég veit ekki hvað og hvað. Ég var með sjálfum mér að athuga það og reyna að telja upp í huganum þær stofnanir og þau ráð sem vinna í þjóðfélaginu að ýmiss konar athugun á málefnum iðnaðarins og þá ekki síst hvað til hagræðingar megi verða. Til upplýsingar fyrir hv. þd. langar mig til að nefna nokkra þessa aðila. Ég mundi í svipinn eftir þessum aðilum: Iðnþróunarstofnun, Félag ísl. iðnrekenda, Landssamband iðnaðarmanna, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, Framkvæmdastofnun með öllum sínum miklu áætlunar- og tæknistofnunum, Iðnþróunarsjóður, Iðnlánasjóður, Iðnaðarbankinn, Rannsóknaráð, að ógleymdum öllum hagdeildum bankanna. Og það er ekki allt upp talið með þessu, því að það eru ótal nefndir, hinar og þessar nefndir á vegum iðnrn., sem allar hafa það hlutverk að fara vel ofan í kjölinn á öllum þessum iðnþróunarmálum og reyna að finna út hvernig þessum málum megi verða hagrætt sem best. Ekki skal ég fullyrða um það, hvort hv. formaður iðnrekendasambandsins hafi haft þarna í huga að hér væri kannske aðalorsakanna að leita til hins dulbúna atvinnuleysis í landinu sem er mikið í tísku að tala um. En ég er ekki í nokkrum vafa um það, að ef eitthvað væri lagt niður af þessum stofnunum og sparaður sá vinnukraftur og öll sú skriffinnska og pappírsvinna sem þar fer fram, þá væri hægt að hjálpa mörgum illa stæðum iðnfyrirtækjum, a. m. k. þeim sem eru af minni gerðinni. Og einhvern veginn leggst það þannig í mig, að fyrst og fremst væri ástæða til, eins og ég sagði áðan, að reyna að létta af einhverjum gjöldum, sem lögð hafa verið á þennan atvinnuveg, og um leið að létta af honum einhverju af allri þeirri vinnu og skriffinnsku sem honum er gert að inna af hendi til þess að fæða allar þessar stofnanir sem ég hef verið að telja upp. Þá er ég ekki í nokkrum vafa um að með þeim dugnaði, árvekni og hagsýni, sem Íslendingum er þó svo mjög í blóð borin, mundu þeir menn, sem hafa gert iðnrekstur að atvinnu sinni, áreiðanlega komast út úr vandræðunum án þess að við þurfum að fara að leggja á þá þetta gjald, sem menn þurftu nú endilega að fara að dulbúa og kalla öðru nafni en hingað til hefur verið kallað.

Ég legg svo til, herra forseti, að þetta frv. verði fellt.