22.05.1979
Efri deild: 115. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5268 í B-deild Alþingistíðinda. (4664)

306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum

Jón Helgason:

Herra forseti. Ég var bundinn á fundi fjh.- og viðskn. þegar skotið var á fundi í iðnn. til að afgreiða þetta mál og vil ég með örfáum orðum gera grein fyrir afstöðu minni til þess.

Ég vænti þess, að flestir séu sammála um að frv. eins og þetta sé neyðarúrræði, þar sem með lögum á að ráðstafa eignum manna. Æskilegt væri að til slíks þyrfti ekki að koma, heldur væri hægt að útkljá slík mál með samningum. Og eftir á mun a. m. k. verða hægt að benda á ýmislegt sem betur hefði mátt vinna að til þess að þetta hefði getað tekist. En auk eignarréttar viðkomandi einstaklings tel ég einkum tvær hliðar á þessu máli. Annars vegar er nauðsyn þess að nýta þá miklu auðlind sem þarna er um að ræða og lítt hefur verið notuð enn. Varðar það bæði íbúa og svæði fyrirhugaðrar hitaveitu og þjóðarhag. Hins vegar eru hagsmunir viðkornandi sveitarfélags. Ég er sammála því fyrrnefnda á meðan það gengur ekki um of á kostnað hins síðarnefnda.

Í Nd. var samþ. brtt. frá hæstv. iðnrh. sem gengur nokkuð í þessa átt, en ekki nógu langt að mínu mati. Ég tel að forgangsréttur heimaaðila að slíkum hlunnindum sem öðrum eigi að vera alveg ótvíræður. Ég tel það hættulega stefnu ef svipta á sveitarfélög, sem fárra kosta eiga völ, mikilvægum hlunnindum, enda þótt þau hafi fram að þessu ekki getað nýtt þau. Ég held að það sé óþarfi að fara þá leið, því að vitanlega hlýtur það að vera hagsmunamál þeirra sveitarfélaga, sem eru svo vel sett að hafa hlunnindi innan sinna marka, að selja afnot þeirra til annarra ef eða á meðan þau eru ópýtt af heimaaðilum. Þess vegna tel ég að þetta megi ekki verða fordæmi fyrir framtíðina.