22.05.1979
Neðri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5273 í B-deild Alþingistíðinda. (4681)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég get ekki stillt mig um að hafa hér nokkur orð um þessa atkvgr. Sú aðferð, sem er viðhöfð við þessa atkvgr., er tvímælalaust óþingræðisleg. Ég held að hér hafi verið höfð í frammi bolabrögð sem ekki hafa sést hér á þingi um margra ára skeið. Ég mótmæli harðlega þeirri aðferð, sem hér er viðhöfð, og tel hana ekki í anda þess þings sem við störfum í. Ég segi nei.