22.05.1979
Neðri deild: 98. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5275 í B-deild Alþingistíðinda. (4689)
144. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Á þskj. 867 er nál. frá allshn. Nd. um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. N. hefur athugað frv. þetta til l. um veitingu ríkisborgararéttar og orðið ásátt um að leggja til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem hún flytur á sérstöku þskj. Það er þskj. 868. Undir þetta rita allir nm. í allshn. Nd. Þeir eru Vilmundur Gylfason, Friðrik Sophusson, Árni Gunnarsson, Gils Guðmundsson, Matthías Á. Mathiesen, Einar Ágústsson og Svava Jakobsdóttir.