14.11.1978
Sameinað þing: 19. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (476)
54. mál, fjárlög 1979
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Fyrsta frv. nýrrar ríkisstjórnar mun ýmsum þykja forvitnilegt plagg. Það, sem af er þessari 1. umr. um þetta fjárlagafrv., er einnig að ýmsu leyti nýstárlegt og fróðlegt. Í umr. hafa þegar komið fram megineinkenni þessa fjárlagafrv. og ekki ástæða til að ítreka mjög það sem þegar hefur verið sagt af hálfu okkar stjórnarandstæðinga. E.t.v. má þó draga saman í nokkra þætti megineinkenni þessa frv.
Þetta frv. er frv. margra lausra enda. Þetta er frv. vantalinna útgjaldaliða. Þetta er frv. aukinnar skattheimtu. Þetta er frv. niðurskurðar á opinberum framkvæmdum. Þetta er frv. rekstrarhækkana hjá stofnunum ríkisins. Þetta er frv. fráhvarfs í byggðastefnu. Þetta er frv. launaskriðs í þjóðfélaginu. Þetta er frv. er speglar verðbólguástand sem enn hefur ekki verið snúist gegn. Þetta er frv. óteljandi fyrirvara. Þetta er frv. er afhjúpar sundurþykkju og misvísandi stefnu þeirra flokka sem mynda núv. hæstv. ríkisstj. Allt hefur þetta komið fram í þeim umr. sem hér hafa staðið.
Það er ekki ástæða til þess, að ég fari að rekja alla þá þætti sem ég hef hér nefnt og marka það frv. sem hér liggur fyrir til umr. Aðeins þykir mér þó rétt að undirstrika nokkra þeirra.
Hæstv. fjmrh. sagði margt vel og réttilega í ræðu sinni í upphafi þessarar umr. Hæstv. ráðh. varð það þó á í ýmsum veigamiklum atriðum að tala í verulegu ósamræmi við það frv. sem hér liggur fyrir til umr. Hæstv. ráðh. lagði mikinn þunga í ræðu sinni á það alvarlega ástand sem við væri að etja í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hann talaði um neyðarástand sem væri sprottið af 50% verðbólgu. Hann talaði um að það væri hættuástand fram undan, sá grundvöllur, sem þjóðfélagið byggði á, gæti brostið ef óvænt skakkaföll yrðu, t.d. í sambandi við viðskiptakjör þjóðarinnar. Hann talaði um það réttilega, að snúast þyrfti gegn þessum voða á mörgum vígstöðvum, þ. á m. í fjármálum ríkisins. Allt er þetta rétt að mínum dómi og ekki ástæða til að draga úr því.
En hvernig kemur þetta þá fram í því frv. sem hér er til umr.? Er þar gætt aðhalds í hvívetna? Er þar dregið úr rekstrarkostnaði ríkisstofnana, eins og ætla mætti af orðum hæstv. ráðh.? Ég tel rétt til þess að varpa nokkru ljósi á það, hvernig þetta kemur út í frv., að rekja hvernig helstu liðir fjárlagafrv. skiptast.
Þá er það fyrst, að laun eru 54.2 milljarðar og hækka samkv. aths. frv. um 25.3%. Sú tala er mjög óraunhæf vegna þess að við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár var bætt við launaliðinn 11.4 milljörðum kr. til þess að mæta þeim hækkunum á launum, sem þegar var vitað um og spár voru til fyrir um út allt þetta ár. Ef þetta frv. væri fært á sambærilegan grundvöll mætti slá því föstu, að hækkun launaliðar þyrfti að vera miklu meiri en hér er gert ráð fyrir, sem kom raunar fram í ræðu hv. 1. þm. Reykn.
Í fjárlagafrv. kemur fram, að kauptaxtar eru taldir hafa hækkað á milli ára um 67.5%. Ef þetta frv. væri fært á sama grundvöll og fjárlagafrv. í fyrra mætti ætla að launaliður mundi hækka um allt að 70%.
Annan lið vil ég nefna, rekstrargjöld og viðhald á vegum ríkisins, sem eru 19.4 milljarðar og hækka samtals um 42.6%. Þar af hækka önnur rekstrargjöld um 53%, en liðurinn hækkar eigi meira en raun er á vegna þess að viðhaldsliðurinn er skorinn mjög niður. Fjármagnstilfærslur í þjóðfélaginu eru 81.5 milljarðar og hækka um 73.3%. Undir fjármagnstilfærslu má flokka tryggingagjöld, niðurgreiðslur o.s.frv. Hreinar ríkisframkvæmdir eru 11.4 milljarðar og hækka um 25%. Framkvæmdir, sem kostaðar eru ef ríki ásamt fleiri aðilum, og fjárfestingarstyrkir eru 8.6 milljarðar og hækka um 17.8%. Útgjöld til fjárfestingarlánasjóða eru 11.6 milljarðar og hækka um 27.5%. Afborganir og vextir eru 12.1 milljarður og hækka um 105.1%. Er þá upp talið.
Þarna kemur fram, að langmest hækkun er á fjármagnstilfærslum og launalið, ef launaliður er settur á réttan grundvöll. Enn fremur, sem þó er enn hærra, vextir og afborganir, sem hækka gífurlega, m.a. vegna þeirra ráðstafana í efnahagsmátum sem núv. ríkisstj. greip til í sept. s.l.
Í þessu yfirliti kemur fram, að fjárlagafrv. stefnir ekki í þá átt, sem hæstv. ráðh. vildi stefna í samkv. ræðu sinni, að draga úr rekstrarútgjöldum, að gæta mikils aðhalds í ríkisrekstrinum, en á hinn bóginn er gætt mikils aðhalds í sambandi við framlög til verklegra framkvæmda, sem eru skorin niður, eins og hér hefur komið fram, um 16% að magni til. Nærri lætur að ætla, að ef framhald yrði á þeirri þróun, sem þetta yfirlit ber með sér, og stefnt væri áfram með svipuðum hætti, yrði fjárl. ríkisins á komandi árum ekki lengur nein fjárlög, heldur einungis lauslegt rekstraryfirlit ríkissjóðs — (Gripið fram í.) — og kannske aðeins rekstrarspá ríkissjóðs fyrir næsta ár. Ég tel að það verði ekki gengið öllu lengra í því að skera niður framlög til verklegra framkvæmda en gert hefur verið og hér sé raunar of langt gengið, eins og þegar hefur komið fram hjá sumum ræðumönnum úr liði stjórnarsinna.
Í sambandi við þær fullyrðingar mínar, að hér sé ekki gætt sérlega mikils aðhalds á rekstrarliðum fjárlagafrv., vil ég aðeins vitna til eins þáttar, en það eru aðalskrifstofur rn. sjálfra. Það eru sem sé þær skrifstofur, sem hæstv. ráðh. stjórna sjálfir, þar sem þeir hafa sín daglegu umsvif og eiga hægast með að koma við sparnaði, ef það væri vilji þeirra. Ef litið er á það, hvernig aðalskrifstofur rn. koma út, þá sést að útgjöld þeirra vegna eru 1 milljarður 781 millj. 663 þús. kr. og hafa hækkað um 735.2 millj. frá fjárl. yfirstandandi árs eða um 70.3%, á meðan heildarútgjöld fjárlagafrv. hækka um 43.3% frá fjárlögum yfirstandandi ár. Ef það væri vilji hæstv. ríkisstj. að spara útgjöld í rekstri ríkisins, mundi hún tæplega hækka svo mjög umfram heildarhækkun fjárlaga rekstur eigin skrifstofa. Þess vegna harma ég að svo mikil misvísun skyldi vera á milli ræðu hæstv. fjmrh. og þess er fram kemur í fjárlagafrv. sjálfu.
Skylt er að geta þess, að í þessum efnum eiga hæstv. ráðh. ekki allir jafnan hlut. Minnst er hækkun á aðalskrifstofu menntmrn. eða 50.7%. Hún er þó drjúgum hærri en heildarhækkun fjárlagafrv. greinir, sem var 43.3%.
E.t.v. er það við hæfi hjá þessari hæstv. ríkisstj., að sjálfur húsbóndinn á heimilinu, hæstv. forsrh., ber langt af kollegum sínum hvað þetta snertir, þar sem útgjöld vegna aðalskrifstofu forsrn. hækka um eigi minna en 116% eða úr 62.6 millj. kr. í 135.4 millj. Frá fjárl. síðasta árs hækkar kostnaður við þessa einu skrifstofu stjórnarráðsins um meira en helming. Það var e.t.v. í samræmi við þetta sem hæstv. forsrh. lét sér sæma að beina því til okkar í fjvn. úr þessum ræðustóli í gær, að við skyldum ekki vera að telja eftir smámunalegar hækkanir á útgjöldum fjárlaga og það mundi verða erfitt að ganga gegnum hinar þröngu dyr fjvn. þegar kæmi til stærri útgjaldaliða sem hann vildi fá hækkanir á. Ég fæ ekki séð — því miður — að þetta sé í samræmi við þá ræðu, sem hæstv. fjmrh. flutti í dag.
Í framhaldi af þessu er vert að geta þess, að útgjöld á vegum tveggja rn. eru í heild um helmingur af ríkisútgjöldunum. Þetta eru menntmrn. annars vegar og heilbr.- og trmrn. hins vegar. Samtals eru útgjöld á vegum þessara tveggja rn. 98 milljarðar 121 millj. 269 þús. kr., eða 49.4% af heildarútgjöldum fjárlagafrv.
Ég vil taka undir það, sem hér hefur komið fram, að það þarf að stemma stigu við rekstrarútgjöldum ríkisins. Ég tel að þetta ætti að vera hægt, ef athafnir fylgdu orðum, því hér hafa forustumenn stjórnarliðsins hver á fætur öðrum komið í þennan ræðustól og sagst vilja skerða rekstrarútgjöld ríkisins, koma í veg fyrir útþenslu ríkisbáknsins. Það verður ekki gert að mínum dómi með því að höggva endalaust í þann sama knérunn, sem gert er þó freklegast nú á seinni árum með þessu frv., að skerða útgjöld til verklegra framkvæmda og skerða útgjöld til byggðamála, sem ég kem nokkuð að síðar, en þenja í sífellu út rekstrarútgjöld ríkisins og þá hvað helst á skrifstofum hæstv. ráðh. sjálfra.
Í fjárlagafrv. kemur fram sérstakt einkennilegt ráðslag í sambandi við Byggðasjóð. Það hefur verið rakið að nokkru, en samkv. frv. virðist sem skerða eigi ráðstöfunarfé Byggðasjóðs um 1130 millj. kr. Þessar 1130 millj. kr. á sjóðurinn að taka að láni og verja því fé til þess að standa straum af fjármagnsgreiðslum vegna byggðalína. Með því að reikna sjóðnum þessar 1130 millj. kr. er talið að staðið sé við lög um sjóðinn, þ.e. að ráðstöfunarfé hans eigi að vera sem svarar 2% af útgjöldum fjárlagafrv. Ef þetta væri svo, þá mundi það þýða að það lán, sem sjóðurinn tæki, 1130 millj. kr., og þau vaxtakjör, sem á því mundu hvíla, yrðu að leggjast á lántakendur sjóðsins, en ekki verða borin af þeim greiðslum, sem færu til þess að standa straum af útgjöldum vegna byggðalína. Nú kom hæstv. fjmrh. hér í dag og talaði nokkuð á annan veg. Væri fróðlegt að vita hvað verður hið rétta í þessu máli, því hann talaði á þá lund að Byggðasjóður ætti að taka að láni 1130 millj. kr. og lána þær Orkusjóði, sem síðan tæki að sér að standa undir útgjöldum vegna byggðalína. Ef þetta á að vera á þessa lund, þá er auðvitað enn berar en áður að hvergi nærri er staðið við fyrirmæli laga um að ráðstöfunarfé Byggðasjóðs skuli vera sem svarar 2% af útgjöldum fjárlagafrv.
Það hefur oft verið sagt af talsmönnum Framsfl., að þeir væru hinir einu og sönnu — ekki einasta höfundar byggðastefnu, heldur hefðu engar framkvæmdir í byggðamálum orðið ef þeirra hefði eigi notið við. Nú er hæstv. fjmrh. nýlega staðinn upp úr stól „kommissars“ í Framkvæmdastofnuninni, framkvæmdastjóra Byggðasjóðs — (Gripið fram í.) — og sestur í hið virðulega embætti fjmrh. Hann hafði því næg tækifæri til þess að halda því, sem lög gera ráð fyrir í sambandi við starfsemi þessa sjóðs, og halda þeirri stefnu, sem mörkuð var af síðustu ríkisstj. um aðstoð hans til uppbyggingar atvinnulífs á landsbyggðinni. Því miður virðist hér eitthvað hafa skolast til um stefnuna frá því sem var í tíð fyrri hæstv. ríkisstj.
Þetta er auðvitað fjarri því eina dæmið um það, að horfið er frá byggðastefnu í þessu frv. Hér hefur verið minnt á olíustyrkinn, sem ekki einu sinni er látinn halda sömu krónutölu, eins og sumir aðrir styrkir til fjárfestingarlánasjóða eða annarra mála, heldur er hann beinlínis skorinn niður um 176 millj. kr.
Það hefur verið minnt á vegamál. Enda þótt ráðstöfunarfé Vegasjóðs eigi að aukast nokkuð, er það gert með því að taka það af umferðinni, en ríkissjóður fellir niður framlög til Vegasjóðs, sem nema á annan milljarð kr.
Þannig má grípa á þessu víðs vegar. Það hefur verið minnt hér á fjárfestingarlánasjóðina, sem ég ætla ekki að tíunda frekar, en ýmsir þeirra, svo sem Bjargráðasjóður, hafa verið stofnaðir til þess að veita fólki á landsbyggðinni stuðning. Ég hlýt að harma að hæstv. ráðh. Framsfl. skuli hverfa svo frá byggðastefnu eftir að þeir eru hættir samstarfi við Sjálfstfl.
Hér hefur aðeins verið komið inn á orkumál og er kannske rétt að ég fjalli um þau í nokkrum orðum. Mér er um það kunnugt, að hæstv. iðnrh. er að vinna að því innan ríkisstj. að fá fram breytingar á þeim liðum er snerta orkumál. Það blasir enda við, að í fjárlagafrv. er fyrirvari um þennan þátt mála. Þess vegna hef ég beðið þess að sjá, hvað út úr slíkum tilraunum hæstv. ráðh. kemur, áður en horfið væri að því að krefjast ákveðinna svara í sambandi við þau mál — svara um hvort breytingar verða frá því sem uppkast að lánsfjáráætlun og fjárlagafrv. greinir.
Í þessum þáttum eru nokkur atriði sem naumast fá staðist ef halda á uppi eðlilegri þjónustu. Ég skal þó ekki, með tilliti til þess sem verið er að vinna að í þessum málum, gera einstaka liði að umtalsefni eins og sakir standa. Hins vegar þykir mér rétt að ítreka það og undirstrika sérstaklega, að nú er mikil nauðsyn að fáist fram stefnubreyting að því er varðar fjármögnum á framkvæmdum Rafmagnsveitna ríkisins — stefnubreyting sem á rætur að rekja til þess, að margháttaðar félagslegar framkvæmdir hafa lagst með það miklum þunga á þetta fyrirtæki, að engin von og engin sanngirni er til þess, að undir því verði staðið einvörðungu eða nær einvörðungu með tekjum af orkusölu.
Forráðamenn Rafmagnsveitna ríkisins hófu í byrjun þessa árs að móta þá stefnu sem felur það í sér að til þess að mæta vissum hluta af fjármagnsútgjöldum vegna félagslegra framkvæmda verði að fást fjárframlög úr ríkissjóði. Ef þetta næst ekki fram nú, blasir það við, að enn heldur áfram að vaxa bilið á milli orkuverðs frá Rafmagnsveitum ríkisins annars vegar og ýmsum sveitarfélagarafveitum hins vegar. Hér er um mjög mikið stórmál að tefla og skal ekki fara langt út í það að sinni, en starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins ásamt starfsmönnum iðnrn. hafa unnið að því að móta fastar og skýrar tillögur um þetta efni, sem væntanlega eru til umfjöllunar hjá hæstv, ríkisstj. Ég mun bíða eftir því, hver niðurstaða verður í sambandi við lánsfjáráætlun og afgreiðslu fjárlaga í þessu efni eins og sumum öðrum. En verði þessu í engu sinnt, þá er það mjög alvarlegt mál, eins og ég hef þegar drepið á, og hefur í för með sér að á notendur Rafmagnsveitna ríkisins leggjast þvílíkir baggar vegna taxtahækkana að ekki er nokkur sanngirni í að þeir verði látnir einir rísa undir þeim.
Þetta vil ég taka fram sérstaklega og undirstrika og vænti þess fastlega, að hæstv. ríkisstj. komi til móts við þá nýju stefnu sem forráðamenn Rafmagnsveitna ríkisins hafa mótað í þessu efni. Þessi stefna á sér forvera, sem eru lögin um Orkubú Vestfjarða, þar sem Orkusjóður fyrir hönd ríkissjóðs var látinn taka á sig um 75% þess fjármagnskostnaðar sem á Vestfjarðaþætti raforkukerfisins hvíldi. Í sjálfu sér er því ekki um algjörlega nýtt mál að tefla. En með tilliti til þess, að mér er kunnugt um tilraunir hæstv. iðnrh., sem gerðar eru í samráði við forráðamenn Rarik, mun ég ekki hafa um þetta fleiri orð að sinni.
Í þessum umr. hefur komið fram veigamikill ágreiningur á milli þeirra stjórnarflokka sem mynda núv. hæstv. ríkisstj. Þessi ágreiningur hefur í raun legið í loftinu og verið að birtast af og til síðan ríkisstj. var mynduð, en þó e.t.v. sjaldan eins skýrt og í dag. Þar kemur fram, að talsmenn Alþb. vilja auka útgjöld til ýmissa framkvæmdaþátta, til ýmissa mála sem þeir telja að séu vinsæl. Hæstv. menntmrh. var naumast spurður svo um fjárlagalið á „beinni línu“ að hann svaraði ekki því til að hann mundi beita sér mjög hart fyrir því að fá hann hækkaðan.
Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson talaði snarplega á móti tveimur þáttum í stefnu núv. hæstv. ríkisstj., þ.e. skattastefnu hennar og stefnu í landbúnaðarmálum. Við höfum oft heyrt þennan hv. þm. flytja ræður um landbúnaðarmál. Ég ætla ekki að gera ræður hans um þau efni að umtalsefni hér. Einnig hafa þeir talsmenn Alþfl. iðulega rætt hér skattamál. En samt var það svo, að mér kom þessi ræða eiginlega á óvart. Það var vegna þess að einn af hinum ungu alþm. Alþfl., hv. 2. landsk. þm., hv. þm. Finnur Torfi Stefánsson, flutti ræðu í Nd. Alþingis hinn 30. okt. s.l. Í ræðu hv. þm. Finns Torfa Stefánssonar kom fram, að hann væri mjög svo sammála öllum þeim aðgerðum, sem gerðar hefðu verið í efnahagsmálum í sept. s.l. og síðan, og hann leiddi rök að því, að allar þessar aðgerðir væru byggðar á stefnu Alþfl. um kjarasáttmála, sem eins og allir muna var aðalatriðið í stefnu Alþfl. fyrir kosningar. Til þess að sanna þetta má e.t.v. lesa eina setningu eða tvær úr ræðu hv. þm. Finns Torfa Stefánssonar. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Þannig voru allar þessar efnahagsráðstafanir, sem gerðar voru í haust. Þær voru mótaðar í anda kjarasáttmálans.“
Ef allar aðgerðir hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum til þessa, eða a.m.k. þær aðgerðir, sem gerðar voru í haust og mótað hafa stefnu hennar, a.m.k. að öðru leyti en því sem fram kemur í þessu fjárlagafrv., og raunar í mjög veigamiklum atriðum mótað þetta fjárlagafrv., — ef það er svo, að allar þessar aðgerðir eru gerðar beinlínis í anda kjarasáttmálans, hvers vegna er þá formaður þingflokks Alþfl. á móti þessu? Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson er því miður ekki viðstaddur, en ég hélt, eftir að hv. þm. Finnur Torfi Stefánsson flutti þessa ræðu, að þarna væri um alveg nýja stefnu að ræða hjá Alþfl. og þeir hefðu allt í einu sannfærst um að aðgerðir í skattamálum, aðgerðir í landbúnaðarmálum, aðgerðir í fjármagnstilfærslum, sem gerðar voru í haust, væru allar í anda þess kjarasáttmála sem þeir gerðu að aðalatriði í máli sínu fyrir kosningar s.l. vor. Nú hefur þarna eitthvað brenglast og svo virðist sem þeir hv. þm. Alþfl. séu ekki á einu máli í þessum efnum. Er það kannske enn eitt dæmið um það ósamkomulag sem ríkir innan þessa ríkisstjórnarliðs.
Ég skal ekki, herra forseti, tíunda hér frekar eða rekja dæmi um það ósamkomulag sem ríkir á milli þeirra flokka sem myndað hafa þessa ríkisstj. og styðja hana til misgóðra verka, eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson orðar það. Ég skal, með tilliti til þess sem talsmenn Sjálfstfl. hafa sagt á undan mér, ekki fara að endurtaka það, sem fram kom í ræðum þeirra, og því mjög stytta mál mitt.
Ég vil, áður en ég lýk máli mínu, samt leggja á það áherslu, að við eigum í miklum vanda. Efnahagsmálin eru í ólestri, verðbólgan æðir áfram. Ég get enn tekið undir þann þátt í ræðu hæstv. fjmrh. En hvernig eigum við þá að snúast við þessum vanda? Við verðum auðvitað að gera það með markvissum aðgerðum. Við verðum að snúast gegn honum á mörgum vígstöðvum, öllum vígstöðvum efnahagsmála þjóðarinnar, þ. á m. í ríkisfjármálum. Og það er mikið vandaverk að afgreiða fjárlög að þessu sinni, ég skal ekki draga fjöður yfir það. En það verður ekki gert með því einvörðungu að ráðast alltaf á framkvæmdaframlögin, sem nú eru aðeins 5.5% af útgjöldum fjárlagafrv., þ.e. bein framkvæmdaframlög ríkisins þar sem er um hreinar ríkisfjármagnaðar framkvæmdir að ræða. Það verður ekki endalaust gert með því að skera niður þessi framlög. Það verður að ráðast gegn sjálfu kerfinu, rekstrarliðum ríkisins og e.t.v. ýmsum þjónustuliðum ríkisins.
Ég sagði áðan, að tvö rn. eyddu um 50% af útgjöldum ríkisins, þ.e. menntmrn. og heilbr.- og trmrn. Ég tel að ekki verði komið við miklum sparnaði í rekstri ríkiskerfisins nema fram komi sparnaður á þessum stóru liðum, e.t.v. uppskurður á skólabákninu, á menntakerfinu og tryggingakerfinu, eins og hæstv. ráðh. ýjaði að. Ég tel sem sagt, að það sé ekkert vit í því að skylda unglinga frá 6 til 15 ára aldurs að vera níu mánuði á ári hverju í skóla, það sé ekkert vit í því og megi gjarnan stytta skólatímann. Og það má víða koma við sparnaði í skólakerfinu. Það er einnig ekkert vit í því að gera tryggingakerfið að ríkisframfærslukerfi þar sem er búið að hafna tryggingahlutverkinu í veigamiklum atriðum og gera það, eins og ég sagði, að ríkisframfærslukerfi, sem er jafnt fyrir þá, sem betur mega sín, og hina, sem þurfa á aðstoð að halda, og eyða til þess ómældum fjármunum, tugum og aftur tugum milljarða kr. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að eftir því sem við eyðum meira af ráðstöfunartekjum þjóðarinnar til þjónustugreina, til þess að þenja út ríkisbáknið, til þess að borga fleira fólki laun í ríkiskerfinu, þeim mun minna er eftir til þess að standa að uppbyggingu og byggja traustan grundvöll fyrir atvinnuvegina og þeim mun minna er eftir til þess að borga verkamönnum og öðrum launamönnum sem að atvinnurekstri starfa. Við getum sem sé ekki greitt sömu krónurnar margsinnis. Ef við höldum áfram að auka svo ríkiskerfið sem við höfum gert að undanförnu — og þar er ég ekki að draga fjöður yfir þau ár sem eru nú nýlega liðin og Sjálfstfl. hefur átt hlut að ríkisstj., — þá kann svo að fara að við getum ekki lengur staðið undir eðlilegri uppbyggingu atvinnulífs í landinu og ekki borgað laun því fólki, sem vinnur störf að atvinnuvegunum, eins og vera þyrfti, ekki verkamönnum, ekki sjómönnum, sem vinna að því að draga björg í bú. Að þessu verður að gæta. Niðurskurður og aðhald í ríkiskerfinu kemur ekki að haldi nema dyggilega verði að því unnið að spara í hinum ýmsu þjónustugreinum ríkisins og draga saman stofnanir ríkisins.
Eins og ég sagði áðan, ætti þetta að verða létt verk, því að yfirlýsingar forustumanna ríkisstjórnarflokkanna benda allar í þá átt, að þeir vilji fara þessa slóð. En reynslan verður að skera úr um það, hvernig efndirnar verða.
Þessi umr., sem hér hefur staðið í kvöld og í dag, er 1. umr. um fjárlagafrv. Eins og ég sagði er hún um margt nýstárleg og óvenjuleg, vegna þess hversu skoðanir talsmanna flokkanna, sem mynda þessa ríkisstj., virðast fara á mis, óteljandi fyrirvarar eru um afgreiðslu mála og jafnvel formaður þingflokks eins stjórnarflokksins talar um að flokkur hans muni greiða atkv, gegn vissum þáttum frv. verði þeim ekki breytt. Það verður því forvitnilegt að sjá framhaldið. Ég ætla ekki að lengja þessa umr. meira. Við bíðum eftir að sjá hvernig verður staðið að því að afgreiða þetta frv., hverjar breytingar verða gerðar. Það skulum við síðan ræða við 2. og 3. umr.