15.11.1978
Neðri deild: 16. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

10. mál, þingsköp Alþingis

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta koma fram við þessa umr. nokkur atriði sem ég tel ástæðu til þess að vekja máls á.

Ég vil taka það sérstaklega fram, að ég tel að hér sé hreyft ákaflega athyglisverðu máli í þskj. því nr. 10 sem fyrir liggur, en það er að auka áhrif og aðhaldshlutverk Alþingis, það er að fjalla um stöðu löggjafarsamkomunnar í stjórnkerfinu, eins og gert er í mörgum öðrum málum sem lögð hafa verið fyrir þetta og hin síðustu þing.

Það fer ekkert á milli mála, að vald hefur mjög verið dregið úr höndum Alþ. á undanförnum árum og áratugum. Það er engin ný niðurstaða sem hinir ungu þm. hafa komist að sem kjörnir voru á Alþ. í síðustu kosningum. Ég man eftir því, að það eru ein 15 ár síðan Samband ungra jafnaðarmanna samþykkti mjög alvarlega viðvörun til Alþ. um þessi efni. Sú samþykkt kom til umr. hér á Alþ. skömmu síðar, og þáv. alþm., Þórarinn Þórarinsson, lét þess sérstaklega getið, maður með langa reynslu af þingstörfum, að þessi aths., þessi samþykkt ungra jafnaðarmanna, sem nú er orðin 15 ára gömul, væri mjög tímabær. Hafi verið tímabært fyrir 15 árum að vekja athygli á þessu, þá er það að sjálfsögðu enn tímabærara í dag.

Það er rétt út af fyrir sig, að framkvæmdavaldinu ber að styðjast við það vald sem þessi stofnun er kjörin til að fara með. Hins vegar er það líka ljóst, að öll uppbygging stjórnsýslukerfisins á undanförnum árum hefur verið í framkvæmdaþættinum, þætti framkvæmdavaldsins. Þar hafa verið byggðar upp nýjar stórvirkar stofnanir og þær stofnanir, sem fyrir voru, hafa verið mjög efldar að mannahaldi. Þannig hefur aðstaða framkvæmdavaldsins til áhrifa stöðugt farið vaxandi á sama tíma og aðstaða Alþ. hefur nánast verið sú sama og hún var fyrir hálfri öld. Hafa menn t.d. gert sér grein fyrir því, að helmingur þm. á Alþingi Íslendinga hefur enga vinnuaðstöðu hér í þinginu? Um það bil helmingur þm. verður að sætta sig við það að hafa ekki skrifstofur til þess að vinna í, hafa ekki starfsvettvang nema í félagi við aðra, og þeir þm., sem eru svo lánsamir að hafa einhverja aðstöðu fyrir sig að vinna í utan síns heimilis, eins og skrifstofu, þurfa að leggja sér til öll hjálpargögn, jafnvel ritvélar og einföldustu hjálpartæki. Þessir þm. fá naumast neina aðstoð við störf sín, þeir verða að vinna nánast allar sínar till. og frv. sjálfir, og þess eru mörg dæmi, að þm. hafi hug á því að gera breytingar á t.d. flókinni lagasmíð eins og lögum um almannatryggingar, en geti ekki komið því fram eða eigi mjög erfitt um vik með að koma því fram vegna þess að lögin sjálf eru teknískt svo flókin að þeir ráða ekki yfir þeirri sérfræðiþekkingu sem þarf til að koma vilja sínum í framkvæmd. Ég veit ekki til þess, að nokkurt þjóðþing um víða veröld bjóði upp á jafnslaka starfsaðstöðu fyrir þm. og þjóðþing Íslendinga. Auðvitað hlýtur það að koma mjög mikið niður á störfum þm. og takmarka mjög það vald sem Alþ. á að fara með.

Sé aðstaða þm. til þess að gegna störfum sínum á Alþ. slæm, þá er aðstaða þingnefnda mun verri. Ég held að allar hinar níu starfsnefndir Nd. Alþ. t.d. að taka hafi eitt skrifstofuherbergi til umráða. Þar hafa n. enga aðstöðu til þess að geyma nein gögn. Ég átti sæti s.l. kjörtímabil í einni nefnd Nd. Alþingis, sjútvn. Hún var þá að fjalla um hvernig hagnýta skyldi fiskveiðilögsögu Íslands. Fyrir sérstakt atfylgi þáv. formanns n. tókst n. að verða sér úti um sjókort, einn gráðuboga og eina reglustiku. Því miður hafa gráðuboginn og reglustikan tapast í sumar, sjókortin eru hins vegar enn þá til, og það eru einu gögnin sem þessi mikilvæga nefnd Alþ. hefur við að styðjast í störfum sínum. Það segir sig auðvitað sjálft, hvers konar aðstaða þess þjóðþings er sem verður að búa við slík starfsskilyrði, hvaða takmörk því hljóta að vera sett, að þm. og þn. geti unnið þau verk sem þeim er ætlað að vinna.

Ég hef einnig átt sæti í annarri þn., fjvn., sem hefur verið sköpuð mun betri aðstaða en öðrum þn. til starfa, og ég líki því ekki saman hvað sú n. er virkari og hvað þeir þm., sem þar sitja, geta beitt áhrifum sínum betur en þm. í öðrum nefndum.

Það mál, sem hér er lagt fram, horfir í þá átt, eins og mörg fleiri mál sem lögð hafa verið fram á Alþ. nú upp á síðkastið, að völd Alþingis, þingnefnda og þingmanna séu styrkt til þess að tryggja betur en verið hefur áhrif löglega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar. Ég tel að það sé nauðsynlegt að afgreiða sem fyrst slík mál með jákvæðum hætti. Ég held að allir þm. geri sér ljósa nauðsyn þess.

Í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er sérstaklega tekið fram, að stjórnarflokkarnir muni beita sér fyrir því, að endurskoðun fari fram á þingsköpum, m.a. í því skyni að efla völd og virðingu þingsins. Hæstv. forsrh. ritaði okkur formönnum þingflokkanna fyrir þremur vikum bréf, þar sem hann óskaði eftir því, að formenn þingflokkanna tækju þetta mál upp, og vísaði til tilvitnaðs ákvæðis í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj. Fyrir tveimur dögum áttum við formenn þingflokkanna fund með forseta Sþ. einmitt til þess að ræða um þessi mál, og niðurstaðan mun verða sú að öllum líkindum, að eitthvað verði aðhafst í þessum málum á þessu þingi. Ég tel nauðsynlegt við þá athugun, sem væntanlega mun fram fara í því sambandi í vetur, að þau frv. og þáltill. um breytingu á starfsháttum Alþingis, sem lögð hafa verið fram á þinginu nú og á fyrri þingum, verði þar sérstaklega tekin til meðferðar, til þess að auka völd og veg þingsins, til þess að tryggja það, að þm. og þn. geti framvegis gegnt hlutverki sínu betur en hingað til. Í því sambandi legg ég sérstaka áherslu á að komið verði að þeim atriðum og þau afgreidd með jákvæðum hætti sem frv, það, sem hér er til umr., gerir ráð fyrir.