15.11.1978
Neðri deild: 16. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

46. mál, félagsheimili

Flm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Á þskj. 49 flytjum við hv. þm. Ingvar Gíslason frv. til l. um breyt. á l. um félagsheimili, nr. 107 frá 1970. Þetta frv. til l. var flutt á síðasta löggjafarþingi og voru flm. þá Gunnar Sveinsson, Þórarinn Sigurjónsson og Gunnlaugur Finnsson. Frv. náði þá ekki fram að ganga og er því endurflutt nú í sömu mynd.

Breytingar þær, sem við leggjum til að gerðar verði á lögum um félagsheimili, eru þessar:

„1. gr.: Upphaf 3. mgr. 2. gr. laganna orðist svo: Af tekjum félagsheimilasjóðs skulu 10% renna í menningardeild félagsheimilasjóðs. Skal því fé varið til að stuðla að menningarstarfsemi á vegum almennra félagssamtaka, svo sem ungmenna- og æskulýðsfélaga, kvenfélaga og annarra menningarsamtaka. Eigi skal styrkveiting bundin því skilyrði, að sú menningarstarfsemi, sem styrkt er, fari fram í félagsheimili, þó slíkt sé æskilegt. Styrkveitingu til menningarstarfsemi o.s.frv.“ eins og heldur áfram í greininni.

En í núgildandi lögum frá 1970 er málsgr. orðuð þannig:

„Af tekjum félagsheimilasjóðs skulu 10% renna í menningarsjóð félagsheimila. Skal því fé varið til að stuðla að menningarstarfsemi í félagsheimilunum o.s.frv.“ „2. gr.: Í stað 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna komi:

Stjórn félagsheimilasjóðs er í höndum menntmrh. Veitir hann byggingarstyrki úr sjóðnum samkv. tillögum íþróttanefndar, íþróttafulltrúa og deildarstjóra byggingadeildar menntmrn.

Menntmrh. skipar þriggja manna n. til þriggja ára, er geri till. um styrki úr menningardeild félagsheimilasjóðs.

Skal sú n. skipuð tveimur mönnum samkv. tilnefningu: einum frá Ungmennafétagi Íslands og Kvenfélagasambandi Íslands, einum frá Bandalagi ísl. listamanna og Bandalagi ísl. leikfélaga. Formann skipar ráðh. án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. N. er ólaunuð. Framkvæmdastjóri n. skal vera æskulýðsfulltrúi ríkisins.

Umsóknir um styrki skal senda menntmrn. Ef um er að ræða byggingarstyrk, skal fylgja nákvæm lýsing á húsi því, sem fyrirhugað er að byggja ásamt grg. fyrir þörfinni á félagsheimili á viðkomandi stað og um fyrirhugaða notkun þess. Sé sótt um styrk úr menningardeild félagsheimilasjóðs, skal gerð nákvæm grein fyrir, hvernig fyrirhugað er að verja styrknum.“

Í núgildandi lögum hljóða þessar málsgr. svo: „Stjórn félagsheimilasjóðs er í höndum menntmrh. Veitir hann styrki úr sjóðnum samkv. 2. gr. að fengnum tilmælum fræðslumálastjóra og íþróttanefndar“ — og áframhaldandi er hér um svipaða aðferð að ræða og í þeim ákvæðum sem við leggjum til. „3. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Þær breytingar, sem lagt er til að gerðar verði á lögum um félagsheimili, eru aðallega á ákvæðunum um menningarsjóð félagsheimila og fela í sér þrjár meginbreytingar. Í fyrsta lagi er lagt til að sá hluti sjóðsins, sem veitir fé til menningarmála, sé kallaður menningardeild félagsheimilasjóðs og til að úthluta styrkjum úr menningardeild sjóðsins skipi ráðh. þriggja manna nefnd. Í öðru lagi sé það ekki bundið í lögum, að styrkveitingar gangi til ákveðinna húsa, heldur sé styrkurinn veittur til félagasamtaka. Í þriðja lagi er lagt til að æskulýðsfulltrúi ríkisins verði framkvæmdastjóri og starfsmaður þeirrar n. sem sér um úthlutun úr menningardeild sjóðsins.

Með þessum breytingum er stefnt að því, að sjóðurinn komi betur að þeim notum er honum var ætlað í byrjun, en í reglugerð um menningarsjóð félagsheimila frá 1. mars 1970 segir m.a., að sjóðurinn skuli stuðla að flutningi á leikhúsverkum, þ.e. leikritum, söngleikjum, blönduðum leikdagskrám, leikdanssýningum, tónleikahaldi, bókmenntakynningu og annarri menningarstarfsemi. Hér er því um margþætt og stórt verkefni að ræða, sem víða um land hefur verið tekið mjög myndarlega á.

Aðalgallinn við það fyrirkomulag, sem verið hefur á rekstri sjóðsins, er að hann hefur ekki verið í góðum tengslum við þá aðila sem njóta áttu styrks úr honum. Á ég þar við almenna félagsstarfsemi í landinu. Þá hafa einnig háð starfsemi sjóðsins þau ákvæði í lögum að miða styrkveitingar við hús, en ekki félagasamtök. Einnig hefur mikið verið um það rætt, að starfsemi, sem fram fer í félagsheimilum, sé ekki alltaf mikil menningarstarfsemi, og er þá átt við dansleiki sem sumir hverjir séu ekki til fyrirmyndar, og mun vera hægt að benda á slíkt. En ég veit að meginhluti af þeirri starfsemi, sem fram fer í félagsheimilunum, er til fyrirmyndar og í flestum tilvikum almenn menningarstarfsemi, félagsstarfsemi sem er undirstaða menningarlífs í þeim byggðarlögum þar sem félagsheimilin eru.

Um langan aldur hafa ýmis félagssamtök haldið uppi miklu menningarlífi í hinum dreifðu byggðum þessa lands. Má þar til nefna kvenfélög, ungmennafélög og íþróttafélög ásamt leikfélögum. Hafa þau öll tagt fram mikil sjálfboðastörf og í mörgum tilfellum mikla fjármuni svo að unnt væri að halda uppi margþættu og oft á tíðum öflugu félagsmálastarfi. Með því að koma betra skipulagi á menningarsjóðinn ætti hann að verða enn meira afl til aukinna menningarstarfa víða um landið.

Við flm, þessa frv. teljum að enda þótt starfið í félagsheimilunum víða um land sé mikið, þá ætti sú breyting, sem við leggjum til, að hafa þau áhrif að enn fleiri tækju þátt í margvíslegu uppbyggingarstarfi sem gefur lífinu aukið gildi á flestum sviðum. Og náist það markmið, að enn fleiri taki þátt í þeirri blómlegu félagsstarfsemi sem áhugafólk víða um land stendur að í menningarlegu tillíti, er vel farið.

Við flm. teljum líka að nái þessi breyting fram að ganga sé það stórt atriði, að hætt sé að miða styrki við hús, heldur verði miðað við fólk og félög. Sjóðstjórn, sem væri skipuð á þann hátt sem hér er lagt til að verði: af Bandalagi ísl. leikfélaga, Bandalagi ísl. listamanna, Kvenfélagasambandinu og Ungmennafélagi Íslands, vonum við að muni hafa gott samband við þessi félög, og æskulýðsfulltrúi ríkisins, sem er í beinu sambandi við öll þessi félagasamtök í landinu, verður starfsmaður sjóðsins. Þarna er að okkar dómi reynt, eins og telja verður eðlilegt, að tengja þessa stjórn við fólkið í landinu og ætti ekki með þessu móti að vera nein hætta á sambandsleysi við hinar dreifðu byggðir. Ég tel líka fullkomlega eðlilegt, að ungmennafélagshreyfingin, íþróttahreyfingin, kvenfélagahreyfingin, leikfélögin og öll þessi frjálsa félagastarfsemi úti um land, sem leggur fram mikla vinnu til þess, að halda uppi menningarstarfsemi vítt og breytt um landið, fái raunverulega að stjórna þessum sjóði sem á að vera til styrktar því margþætta starfi sem þar er unnið. Með því að almenn félagasamtök fái aðild að starfsemi sjóðsins á þann hátt, sem hér er lagt til, og æskulýðsfulltrúi verði starfsmaður hans, er það von okkar flm., að starfsemi sjóðsins muni aukast og komast í það horf sem ætlast var til í byrjun, og nánara samband skapist milli ráðamanna sjóðsins og félagasamtaka í landinu.

Ég legg svo til að málinu verði vísað til menntmn. að lokinni þessari umr.