16.11.1978
Sameinað þing: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (534)
25. mál, samstarf Norðurlanda á sviði sjónvarpsmála
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. þm. Eiður Guðnason spyr hver sé stefna íslenskra stjórnvalda gagnvart aðild að fyrirhuguðu samstarfi Norðurlanda um fjarskiptahnött fyrir sjónvarp. Þessari spurningu er fljótsvarað. Engin stefna hefur verið mörkuð, hvorki af fyrrv. né núv. ríkisstj., varðandi samnorrænan gervihnött eða hnetti til dreifingar og viðtöku sjónvarps, önnur en sú stefna að taka þátt í athugun málsins og sameiginlegum umr. um það. Málið er enn ekki á því stigi, að ákvörðun sé unnt að taka, þar sem skýrir valkostir liggja alls ekki fyrir. En þó að þessari fsp. sé þannig fljótsvarað tel ég rétt að nota þetta tækifæri til að draga fram ýmsar upplýsingar um þetta mál og greina frá meðferð þess.
Um langt skeið hefur Norðurlandaráð lýst áhuga á auknu samstarfi á sviði útvarps- og sjónvarpsmála, og var gerð ítarleg skýrsla um málið er nefndist „TV“ över gränserna og kom út árið 1974. Að því er tekur til hljóðvarps hefur mjög lengi verið náið samstarf milli útvarpsstjóra Norðurlanda og ýmissa starfsmanna á þessu sviði, og einnig hefur nokkuð verið um skipti á sjónvarpsefni. En fyrst þegar tekið var að ræða um sjónvarpsdagskrá, er næði til allra Norðurlandaríkja, var Ísland vegna legu sinnar utan við þann tæknilega möguleika að geta notið sjónvarps frá hinum löndunum eða sent þangað. Eftir að gervihnettir komu til sögunnar opnuðust nýir möguleikar fyrir Ísland til þess að taka þátt í sendingu og viðtöku sjónvarpsefnis í félagi við hin Norðurlandaríkin. Í des. 1975 komu menntmrh. Norðurlanda á fót n. til þess að athuga möguleika á dreifingu og móttöku sjónvarps- og útvarpsefnis í Norðurlandaríkjunum um gervihnött eða gervihnetti. Skyldi í þessu sambandi kanna tæknihlið málsins, dagskrárgerð og lögfræði- og fjárhagsatriði. Mál þetta hafði áður borið á góma, en nú var talið að notkun gervihnatta í þessu sambandi væri ekki eins fjarlæg framtíð og áður var haldið.
Nefnd, sem gekk undir nafninu ráðuneytisstjóranefndin, kom saman til fyrsta fundar 16. jan. 1976. Álitsgerð hennar var lögð fyrir menntmrh.-fund Norðurlanda á Húsavík 14. júní 1977. Undirnefndir höfðu fjallað um ýmsa þætti, svo sem höfundaréttarmál, sem geta orðið flókin í þessu sambandi, um norræna stefnu í dagskrármálum og ýmis fjárhagsatriði. Sænsk stofnun hafði athugað tæknihlið málsins og var athugunin kostuð að hluta af Norræna iðnþróunarsjóðnum. Á ráðherrafundinum á Húsavík var ákveðið að senda skýrslu ráðuneytisstjóranefndarinnar mörgum aðilum til umsagnar, þ. á m. hafa símamálastjórnir Norðurlanda fjallað um málið. Í skýrslunni var áætlað að sameiginlegur stofnkostnaður dreifikerfis fyrir öll Norðurlandaríkin yrði um það bil 575 millj. sænskra kr. og árlegur rekstrarkostnaður um 113 millj. sænskar kr. Endingartími gervihnattar er áætlaður um það bil sjö ár.
Hinn 10. jan. til 15. febr. 1977 hélt Alþjóðafjarskiptamálasambandið ráðstefnu í Genf til þess að skipuleggja útvarps- og sjónvarpssendingar frá gervihnöttum til aðildarríkja sambandsins. Gert er ráð fyrir að gervihnöttum fyrir þessa þjónustu verði raðað á baug í um það bil 36 þús. km hæð yfir miðbaug. Verkefni ráðstefnunnar var að úthluta aðildarríkjunum stað og rásum fyrir gervihnetti á ofangreindum baugi og ákveða umfang þeirra geisla sem hverju ríki er leyfilegt að senda út frá gervihnetti sínum. Er miðað við að geislinn nái sem skemmst út fyrir umráðasvæði hvers ríkis, en í fáeinum tilfellum var gerð undantekning frá þessu atriði með samþykki þeirra ríkja sem hlut áttu að máli. Nefna má að Norðurlandaríkin vildu hvert um sig senda út auk eigin geisla geisla sem næði yfir þau öll. Vegna fjarlægðar Íslands frá öðrum Norðurlandaríkjum var ekki hagkvæmt að láta Norðurlandageislann ná hingað. Hins vegar þótti rétt að fara fram á handa Íslandi sömu staðsetningu fyrir gervihnött með hliðsjón af æskilegu samstarfi um smíði og rekstur gervihnatta. Er þá haft í huga að sérstökum geisla yrði beint til Íslands frá gervihnetti á þessum stað. En með hliðsjón af þeim möguleika, að ekki yrði af einhverjum ástæðum af slíku samstarfi við önnur Norðurlandaríki, var einnig sótt um aðra og vestlægari staðsetningu gervihnattar fyrir Ísland sem mundi vera heppilegri með tilliti til þarfa Íslands eins.
Niðurstaða Genfarráðstefnunnar 1977 varð sú að því er Ísland varðar, að úthlutað var 5 rásum frá gervihnetti staðsettum yfir miðbaug á 31 v. l. og 3 rásum frá 5 á. l. Í seinna tilvikinu er um að ræða geisla sem nær yfir Ísland og Færeyjar og hluta af Grænlandi, en í sama geisla fá Danir til umráða tvær rásir. Hverju ríki var yfirleitt aðeins úthlutað 4–5 rásum, og er þessi niðurstaða því talin hagfelld fyrir Ísland.
Ráðstefnan í Genf ákvað grundvöllinn fyrir gervihnattanotkun aðildarríkja varðandi sjónvarp og útvarp og var því mjög þýðingarmikil. Ákvarðanir ráðstefnunnar taka gildi 1. jan. 1979 og munu gilda í a.m.k. 15 ár. Menntmrn. lagði á sínum tíma áherslu á þátttöku í þessari ráðstefnu og kostaði þátttöku annars íslenska fulltrúans, en Ríkisútvarpið greiddi kostnað vegna hins fulltrúans. Innan þeirra marka sem Genfarráðstefnan setti um gervihnetti, staðsetningu þeirra og geislanotkun, hefur svo hvert ríki eða ríkjasamsteypa frjálsar hendur um framkvæmdir. Norðurlandaríkin standa nú frammi fyrir því, hvort og þá að hve miklu leyti þau ætla að hafa samstarf um gervihnött eða hnetti til dreifingar á móttöku sjónvarps- og útvarpsefnis. Við mat á því kemur mjög margt til greina, en ekki síst fjárhagshlið málsins og hvaða menningarstefnu ber að fylgja í þessu sambandi.
Eins og áður segir er gert ráð fyrir að stofnkostnaður gervihnattar verði um 575 millj. sænskra kr. en endingartími líklega um eða innan við sjö ár og árlegur rekstrarkostnaður um 113 millj sænskra kr. Þessar tölur er þó talið að kunni að fara lækkandi vegna sífelldra tækniframfara. Þá er og gert ráð fyrir tiltölulega ódýrum búnaði við viðtökutæki notenda. Kostnaðarskipting í norrænni samvinnu um þetta efni hefur ekki verið rædd sérstaklega enn þá, en gengið hefur verið út frá hinni almennu skiptireglu í norrænu samstarfi, þ.e. að Ísland greiði 0.9%.
Umsagnir hafa verið að berast til Menningarmálaskrifstofunnar í Kaupmannahöfn um ráðuneytisstjóraskýrsluna, sem lögð var fram á Húsavíkurfundinum. Nefndarálitið var sent fjölmörgum aðilum á Norðurlöndum til umsagnar, m.a. eftirgreindum aðilum á Íslandi: Ríkisútvarpi, Póst- og símamálastofnun, STEF, Rithöfundasambandi Íslands, Bandalagi ísl. listamanna, Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, Blaðamannafélagi Íslands, Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Alþýðusambandi Íslands, Búnaðarfélagi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Kvenfélagasambandi Íslands, Kvenréttindafélagi Íslands, Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, Fræðsludeild Sambands ísl. samvinnufélaga, Fræðslumyndasafni ríkisins, Ríkisútgáfu námsbóka, Sambandi ísl. sveitarfélaga, Norræna félaginu, Félagi kvikmyndagerðarmanna, Menntamálaráði Íslands, höfundarréttarnefnd, stjórn Norræna hússins í Reykjavík, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Landssambandi iðnaðarmanna.
Umsagnir hafa borist frá 10 aðilum. Umsagnir 6 þessara aðila virðast í höfuðatriðum jákvæðar, þ.e. frá Ríkisútvarpi, Kvenfélagasambandi Íslands, STEF, Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, Höfundarréttarnefnd og Norræna húsinu. Einn aðili er neikvæður, Rithöfundasamband Íslands, en það skilaði sameiginlegri umsögn með Félagi ísl. leikritahöfunda. Tveir aðilar tóku enga afstöðu til álitsgerðarinnar, þ.e. Menntamálaráð og Kennaraháskóli Íslands. Póst- og símamálastjórar Norðurlanda skiluðu auk þess sameiginlegri umsögn. Þá mun öllum ráðh., rn. og formönnum stjórnmálaflokka hafa verið send álitsgerðin til fróðleiks.
Símamálastjórnir Norðurlandaríkja hafa yfirleitt verið fremur vantrúaðar á skjótan framgang málsins og hafa sitthvað við tæknilega hlið könnunar þess að athuga og fjárhags- og framkvæmdaáætlanir. Kann mönnum að virðast að athuganir hafi verið of einhliða sænskar og kunni sænsk stefna í iðnaðarmálum og áhugi á því að verða á undan öðrum í harðri samkeppni á heimsmarkaði að móta nokkuð viðhorfin.
Flestir munu sammála um að gervihnettir verði teknir til þessara nota fyrr eða síðar. En ágreiningur er m.a. um, hvort ástæða er fyrir þjóðir Norðurlanda að hraða sér í þessu máli. Menningarhlið þessa máls verður vafalaust umdeilanleg fyrir þjóðir Skandinavíu. Kemur hvort tveggja til greina, að um verði að ræða sameiginlega norræna dagskrá, úrval úr sjónvarpsdagskrám Norðurlanda og eins hitt, að frá upphafi geti áhorfendur valið á milli a.m.k. fjögurra eða fimm útsendinga frá norrænum sjónvarpsstöðvum þannig að áhorfendur geti sjálfir stillt tæki sín á þá dagskrá sem þeir kjósa, en síðar gætu þeir hugsanlega valið um einar 8 stöðvar.
Fyrir okkur Íslendinga er aftur á móti líklegast að valið standi um það fyrst í stað og a.m.k. fyrsta hálfa áratuginn, hvort við óskum eftir að fá senda yfir landið eina samnorræna dagskrá auk eigin dagskrár, sem ætti þá greiða leið í hvern afdal og um alla útkjálka landsins án dreifingarvandkvæða, eða þá hitt, hvort við viljum standa algerlega utan við þetta samstarf, því að rétt er að sjálfsögðu að búast við að verðum við þátttakendur á annað borð, þá bjóðist okkur sjálfstæðar sjónvarpssendingar frá öllum Norðurlöndum samtímis á síðara stigi, þ.e. á áratugnum milli 1990 og 2000, og kann þá einhverjum að þykja nóg um.
Á hitt er einnig að líta, að nú eru taldar vaxandi líkur á að um miðjan þennan áratug verði Vestur-Þjóðverjar komnir með sjónvarpshnött á loft og munu sendingar hans ná yfir stóran hluta Skandinavíu, m.a. til höfuðborga fjögurra Norðurlandaríkja. Áform Vestur-Þjóðverja munu vafalaust hafa mikil áhrif á gang þessara mála á hinum Norðurlöndunum. Ekki er ljóst enn hvort gervihnettir verða á lofti á næsta áratug er nái með sendingum til Íslands auk hugsanlegra Norðurlandahnatta, en einkum gæti það komið til greina við útsendingar frá gervihnöttum yfir Bretlandseyjum.
Vandkvæði hafa komið í ljós vegna mismunandi reglna varðandi auglýsingar í sjónvarpi. Einungis Ísland og Finnland leyfa auglýsingar í sjónvarpi, hin Norðurlandaríkin ekki.
Að því er Ísland varðar mundi notkun gervihnatta væntanlega hjálpa til að leysa þá erfiðleika sem nú eru á því að koma sjónvarps- og útvarpsefni til áhorfenda og hlustenda þannig að til allra staða á landinu berist sjónvarps- og útvarpsefni með sömu mynd og tóngæðum.
Þess er rétt að geta sérstaklega, að samstarf Norðurlanda um gervihnött mundi alls engin áhrif hafa á sjálfstæði og sérstöðu íslensks sjónvarps og útvarps. Hér er einungis um að ræða hvort og í hve ríkum mæli menn vilja notfæra sér möguleika á viðtöku norræns efnis og þá jafnframt að auka flutning íslensks efnis í öðrum Norðurlandaríkjum frá því sem nú er.
Rétt er og að hafa í huga, að afar mörg vandamál eru óleyst í sambandi við þetta mál. T.d. bárust í sambandi við ráðherrafundinn á Húsavík mótmæli frá fundi Samtaka norrænna rithöfunda gegn fyrirhuguðu samstarfi. Símamálastjórnir Norðurlanda hafa verið mjög varfærnar í málinu. Þá hafa útvarpsstöðvar á Norðurlöndum lengi haft samstarf með sér, og er ekki víst að þeim þyki framtak eða afskipti menntm.ráðherra tímabær.
Herra forseti. Ég lengi ekki frekar svar mitt við þessari fsp., en ítreka að lokum, að meðan málið liggur ekki skýrar fyrir er útilokað að stefnumótun eigi sér stað í þessu máli, hvað þá að ákvarðanir verði teknar.