16.11.1978
Sameinað þing: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

61. mál, atvinnumál á Þórshöfn

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. við ummæli sem voru viðhöfð hér áðan og snerta raunar aðeins hliðaratriði þessa máls. Það var, eins og ærið oft gerist hér, vikið að fréttastofum Ríkisútvarpsins, útvarps og sjónvarps, og ábyrgð þeirra á því að hafa flutt ákveðin ummæli í fréttum í gær, þar sem var kafli úr ræðu formanns Landssambands ísl. útvegsmanna. Ég vil aðeins benda á það og láta það koma fram í þessu sambandi, að í IV. kafla útvarpslaga segir svo: „Sá, sem flytur sjálfur efni í eigin nafni, ber ábyrgð á því.“ Ég tel því að fréttastofurnar hafi ekki gerst á nokkurn hátt brotlegar þarna, heldur aðeins gegnt hlutverki sínu samkvæmt eðlilegum fréttasjónarmiðum. En á sannleiksgildi þeirra ummæla, sem þarna voru viðhöfð, legg ég engan dóm. Þarna var aðeins verið að sinna, að ég hygg, eðlilegri fréttamennsku. Ég tel rétt að þetta komi fram: Sá, sem flytur sjálfur efni í eigin nafni, ber ábyrgð á því. Gildir það bæði um efni, sem útvarpað er samtímis því að það er flutt, og efni, sem er útvarpað samkvæmt áður gerðri upptöku.