20.11.1978
Sameinað þing: 23. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (576)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Gils Guðmundsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 17. nóv. 1978.
Ritari þingflokks sjálfstæðismanna hefur ritað mér á þessa leið:
„Samkvæmt beiðni Ólafs G. Einarssonar, 9. landsk. þm., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Steinþór Gestsson bóndi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Mér hefur einnig borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 17. nóv. 1978.
Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Jón Baldvin Hannibalsson skólameistari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Hér liggur fyrir annars vegar kjörbréf til handa Steinþóri Gestssyni og hins vegar símskeyti sem staðfestir að út hafi verið gefið kjörbréf til handa Jóni Baldvin Hannibalssyni. Vil ég nú biðja kjörbréfanefnd að taka þessi gögn til rannsóknar og gef 10 mín. fundarhlé meðan könnunin fer fram. — [Fundarhlé.]