21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

334. mál, útgerð Ísafoldar

Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):

Herra forseti. Ekki þarf ég í sambandi við þessa fsp. að eyða löngum tíma til grg. Svo sem þm. má vera í fersku minni veitti Alþ. fyrir rösku ári skipi undir dönsku flaggi, menntu að langmestu leyti Íslendingum og með íslenskan eignarhlut að verulegu leyti, heimild til þess að veiða loðnu í íslenskri landhelgi. Leyfið var veitt með ákveðnum skilyrðum sem lutu að löndum aflans, þ.e.a.s. útgerð skipsins var réttlætt m.a. með því, að eigendur skipsins skuldbundu sig til þess að haga löndum aflans eftir því sem þörf verksmiðjanna fyrir hráefni krefði og jafnvel með þeim hætti, að skipið yrði ekki fyrir íslenskum skipum við löndun afla í verksmiðjur. Að öðru leyti lýtur fsp. að því þegar í ljós er komið að dómi sérfræðinga að við megum gæta okkar að ganga ekki of nærri loðnustofninum, hvort þá muni enn að dómi hæstv. núv. sjútvrh. vera ástæða til þess að leyfa erlendu skipi, sem þarna er raunar nefnt skip á Efnahagsbandalagssvæðinu, heimild til þess að veiða loðnu innan 200 sjómílnanna við Ísland.