21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (613)

331. mál, útbreiðsla sjónvarps

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þegar þeirri hugmynd var hreyft m.a. hér á Alþ. fyrir nokkrum árum að hefjast handa um litvæðingu sjónvarps var rekið upp mikið ramakvein, bæði hér á þingi og utan þess og m.a. frá ýmsum sem báru hag dreifbýlisins fyrir brjósti, þar sem þeir töldu að litvæðingin kæmi einvörðungu þeim, sem búa í þéttbýtinu, til góða og yki enn á mismuninn á milli hinna einstöku landshluta. Engu að síður náði þetta mál fram að ganga, enda var ein meginröksemdin með flutningi þáltill., sem ég og þáv. hv. þm. Þórarinn Þórarinsson leyfðum okkur að bera fram, að tekjur af innflutningi litsjónvarpstækja yrðu það miklar að hægt væri að verja því fjármagni til uppbyggingar dreifikerfisins um allt land. Þetta hefur og komið á daginn, eins og m.a. kemur fram í svari hæstv. ráðh., þar sem hann upplýsir að tekjur á þessu ári muni fara yfir 1 milljarð kr., en áætlanir, sem þó voru byggðar á nokkurri bjartsýni, gerðu ráð fyrir að tekjur yrðu um 340 millj. Af þessu sést hversu giftudrjúgt spor hefur verið stigið þarna og hversu miklar tekjur hafa skapast sem hafa að miklum hluta runnið til þess að byggja upp frekari litvæðingarbúnað í sjónvarpi og dreifikerfi um allt land. En því miður hafa þessar tekjur ekki að öllu leyti og ekki nándar nærri farið einmitt í það verkefni sem n., sem hv, fyrirspyrjandi gat um, gerði till. um og eins og efni stóðu til. Á þessu ári hafa af þessum 1 milljarði kr. aðeins runnið til þessara verkefna, sem við höfum getið, um 550 millj. kr. Hitt hefur farið beint í ríkissjóð.

Nú liggja fyrir áætlanir af hálfu Ríkisútvarpsins um að tekjur verði a.m.k. 800 millj. á næsta ári af innflutningi litsjónvarpstækja og annarra slíkra hliðstæðra tækja, en samkv. fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs af þessum tekjum verði einvörðungu 340 millj. Þannig sýnist manni að hæstv. ríkisstj. stefni að því að draga þessar tekjur inn í ríkishítina í stað þess að verja þeim til frekari uppbyggingar á dreifikerfinu og til þess að gera sjónvarpinu og Ríkisútvarpinu ennþá betur kleift að fullnægja þeim verkefnum sem fyrir hendi eru. Ég vil eindregið hvetja til þess, að þessi fjárveiting, sem fram kemur í frv., verði endurskoðuð og það fé, sem fæst af aðflutningsgjöldunum, renni einvörðungu til Ríkisútvarpsins, vegna þess að það eru margvísleg verkefni sem þar bíða. Vinna þarf að dreifikerfinu, afla frekari litvæðingarbúnaðar og enn skortir á allan aðbúnað hjá hljóðvarpinu sjálfu að ganga til þess eðlilega verkefnis að stofna hér aðrar bylgjulengdir, setja á fót stereo útvarp og setja á fót staðbundnar útvarpsstöðvar um allt land.

Ég trúi því, að menn hafi skilning á þörfum Ríkisútvarpsins og telji eðlilegt að þessar tekjur, sem þarna hafa óvænt fengist og munu fást, renni til Ríkisútvarpsins. Samkv. lögum er þarna ekki um að ræða markaðan tekjustofn, en gert er ráð fyrir því í lögunum. Tilgangur þeirra er augljóslega sá, að þessar tekjur renni til stofnunarinnar sjálfrar, og mér sýnist að ef svo heldur áfram sem horfir sé orðið nauðsynlegt að binda það beinlínis í lögum, að þessar tekjur renni beint og óskiptar til Ríkisútvarpsins og það njóti góðs af innflutningi sjónvarpstækja.