21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (622)
334. mál, útgerð Ísafoldar
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Á þeim örstutta tíma, sem leyfður er til umr. um fsp., gefst ekki tími til að gera þessu umfangsmikla máli ítarleg skil. Ég vil aðeins undirstrika það, að af hálfu fyrrv. ríkisstj. var gætt fyllstu varúðar við allan undirbúning að þessu máli. Í grg. hæstv, iðnrh. kom fram mjög skýr mynd af því, sem gert hafði verið í tíð fyrrv. ríkisstj., m.a. að ákveðið var fyrir tæpum tveimur árum að kanna sem allra gleggst hvernig frændþjóð okkar, Norðmenn, hefði hagað undirbúningi við rannsókn á landgrunni, olíuleit og síðar samninga. Til þess voru fengnir þrír ágætir menn, m.a. einn frá Orkustofnun, og þeir sömdu ítarlega greinargerð sem hæstv. ráðh. minntist á. Það var eindreginn vilji og ákvörðun að ekkert yrði í þessu máli gert nema að mjög vel athuguðu máli og eftir að við höfðum kynnt okkur undirbúning, framkvæmdir og reynslu nágrannaþjóða í þessum efnum.
Hins vegar hafa þær tvær opinberu stofnanir, sem fjalla um rannsóknir auðlinda okkar skv, lögum, Orkustofnun og Rannsóknaráð ríkisins, á undanförnum árum lagt á það mikla áherslu að meira yrði unnið að rannsóknum á landgrunninu en gert hefur verið. Við töldum að ekkert væri við það að athuga að ráðist yrði í þetta fyrsta stig sem hæstv. ráðh. gerði grein fyrir, sem alls ekki er olíuleit, heldur jarðeðlisfræðilegar mælingar á landgrunninu frá yfirborði sjávar, þ.e. á setlögum fyrst og fremst. Í þessu felast auðvitað ekki nein fyrirheit eða vilyrði um olíuleit, ef svo kynni að fara að þessar rannsóknir bentu til þess, að einhvers staðar voru líkur fyrir olíu eða jarðgasi á landgrunninu.
Hæstv. ráðh. tók líka fram, að varðandi þessa leyfisveitingu, sem gerð var í samráði við Orkustofnun og Rannsóknaráð ríkisins, hefði verið vel haldið á málum, enda voru svo ítarleg skilyrði sett í þessum efnum að ég held að ekki sé grundvöllur að gagnrýna slíkt.
Þegar þetta er athugað kom mér nokkuð á óvart, að hæstv, ráðh. skyldi í lok ræðu sinnar bera fram gagnrýni á þá ákvörðun fyrrv, ríkisstj. að hafa leyft þessar jarðeðlisfræðilegu rannsóknir og mælingar á setlögum, og mér finnst vanta rök af hendi hæstv. ráðh. fyrir þeirri gagnrýni. Ég vil undirstrika það, að hin mesta gát hefur verið höfð í öllum þessum efnum. Þessar rannsóknir, sem leyfðar voru, geta á engan hátt haft nein áhrif á lífríki sjávar eða á sjávarbotninn, og þetta leyfi til vísindalegra rannsókna var veitt með fullu samþykki þeirra tveggja stofnana sem skv. lögum fjalla um þau mál, Orkustofnunar og Rannsóknaráðs ríkisins.