21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (624)
334. mál, útgerð Ísafoldar
Eyjólfur K. Jónsson:
Herra forseti. Mig langar að víkja sérstaklega að síðustu orðum hæstv. iðnrh., þar sem hann fjallaði um nauðsyn þess að við skoðuðum rækilega landgrunn Íslands og sú skoðun yrði byggð á lögum frá 1969. Raunar er e.t.v. ekki meginástæða til þess einmitt nú um þessar mundir að athuga sérstaklega landgrunn Íslands innan 200 mílna, heldur miklu frekar utan 200 mílna. Sannleikurinn er sá, sem því miður hefur farið um of fram hjá okkur Íslendingum, að baráttan á hafréttarráðstefnunni snýst nú um víðáttumikið hafsvæði utan 200 mílnanna, um yfirráðin á því svæði. Þar koma inn í setlög m.a. skv. t.d. írskri kenningu um það, hvernig ákvarða skuli ytri mörk landgrunnsins. Þess vegna tel ég ekkí ástæðu til að fárast yfir því, að setlög á íslenska landgrunninu séu rannsökuð. Þvert á móti er nauðsynlegt að gera það. Hitt er svo allt annað mál, að auðvitað er ástæðulaust að fara að leita að olíu hér beinlínis á næstu árum. Undir það tek ég með hæstv. iðnrh.
En meginatriðið er það, að fyrir þinginu liggur till. um rannsókn landgrunns Íslands sem tekur einmitt mið af því, hvað hagsmunir landsins á þessu sviði eru mikilvægir einmitt á næstu mánuðum og kannske 1–2 árum á hafréttarráðstefnunni, einmitt utan 200 mílnanna, langt suður í höfum og kannske langt norður í höfum líka. Þessari till. var eðli málsins skv. vísað til utanrmn. og er þar til umr. Ég skal þess vegna ekki fara að ræða málíð mikið efnislega á þessu stigi, vegna þess að væntanlega verða ekki margir dagar, a.m.k. ekki margar vikur þangað til alþm. snúa bökum saman um það að marka þá stefnu sem hæstv. ráðh. nefndi. A.m.k. treysti ég því, að það verði gert áður en Alþingi fer í jólaleyfi, því vissulega má engan tíma missa. Þetta eru miklu mikilvægari hagsmunir en menn hafa fram að þessu gert sér grein fyrir. Aðrar þjóðir verja nú miklum fjármunum og nota mikið vinnuafl til að kynna sér sína hagsmuni og rannsaka þessi mál öll. Nefni ég þar Íra t.d., Breta auðvitað, jafnvel Færeyingar eru langt á undan okkur í því, vegna þess að þeir hafa gert sér grein fyrir því, að þeir hafa þarna mikilla hagsmuna að gæta. Við gætum hagsmuna okkar því miður ekki í nægilega ríkum mæli. Og þegar talað er um einar 10 millj. til þess að efla Orkustofnun á þessu sviði, þá er það auðvitað svo sjálfsagt mál að afgreiða, að ég trúi ekki öðru en að hver einasti alþm. styðji það, og þó þær væru 20, 30, 40 eða 50, milljónirnar sem til þessara athugana þyrfti að verja.