21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (625)
334. mál, útgerð Ísafoldar
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Af því að það var getið um það í svari hæstv. iðnrh., að utanrrn. hefði átt hlut að þessu máli og ég starfaði þar á þeim tíma sem þessi ákvörðun var tekin, vil ég gjarnan gera grein fyrir því hér, að ég taldi að svo vel hefði verið að þessu máli staðið og svo tryggilega um hnúta búið, að það væri rangt að neita um leyfi til þeirra frumathugana sem hæstv. ráðh. gerði mjög vel grein fyrir í máli sínu.
Ef ég hef tekið rétt eftir, sagði hæstv. ráðh. eitthvað á þá leið, að rannsóknir væru nauðsynlegar til þess að byggja ákvarðanir á. Ég er þessu að sjálfsögðu algjörlega sammála. En ég vil þá hugsa þessa hugsun svolítið lengra og draga þá ályktun af þessum réttu fullyrðingum, að pólitískt mat þurfi líka að byggjast á einhverju raunhæfu. Ég get ekki komið auga á það, hvernig stjórnmálamenn eiga að taka ákvörðun um framhald þessara mála án þess að vita eitt eða neitt um það sem til skoðunar er. Þess vegna álit ég að rannsókn á setlögunum, sú sem nú fer fram og hefur raunar að nokkru leyti farið fram áður með leyfi þeirra stjórnvalda sem þá voru við stýrið, hljóti að vera frumforsenda þess, að Alþ. og stjórnmálamenn geti tekið ákvörðun um framhald.
Það er upplýst og viðurkennt af hæstv. iðnrh., sem sjálfur er einn þekktasti náttúruverndarmaður okkar lands, að með þeirri ákvörðun, sem tekin var og verið er að vinna að, sé engu hætt, engri hættu boðið heim, heldur aðeins lagður grunnur að framhaldsrannsóknum sem unnar verða eftir að viðkomandi stjórnvöld og þá Alþ., ef mál skipast á þann veg, hafa tekið ákvörðun á grundvelli þeirra niðurstaðna sem af þessum og öðrum slíkum athugunum fást.
Það er mjög gott að hafa Náttúruverndarráð fyrir samvisku stjórnmálamanna og þjóðarinnar í þessum málum. En ég endurtek það, að við skulum minnast þess, sem áðan var sagt, að allar framfarir byggjast á rannsóknum og könnunum, og ef við þorum ekki að hefjast handa um neitt, þá náum við heldur engum árangri.
Þessi var ástæðan fyrir því, að ég fyrir mitt leyti var því fylgjandi að það leyfi, sem hér hefur verið gert að umtalsefni, var veitt. Ég ítreka það, að skv. mínu að vísu takmarkaða viti á þessum málum var þannig um hnútana búið, að engin hætta átti að vera því samfara þótt þessi athugun færi fram. Hitt er svo sjálfsagt mál, að Alþ. og ríkisstj., hver sem hún kann að vera, skoði málið á nýjan leik í ljósi þeirra upplýsinga sem af þessum frumathugunum, þessum hættulausu frumathugunum fást.