21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

89. mál, Vesturlína

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Það var rætt áðan um hvort í bréfi rafmagnsveitustjóra hefði verið talað um að endanleg ákvörðun þyrfti að liggja fyrir í ágústlok eða septemberlok. Ég ætla að hæstv. ráðh. hafi mismælt sig í fyrri ræðu — hann talaði um septemberlok, en hv. 3. þm. Vestf., Kjartan Ólafsson, fullyrti að það væri talað um ágústlok í þessu bréfi. Eitthvert bréf var það sem hæstv. ráðh. las upp þar sem ágústlok eru nefnd. Mér þætti vænt um að heyra hvenær það bréf er dagsett. (Iðnrh.: 10. ágúst.) 10. ágúst, já. Það bréf, sem við höfum verið að ræða um, er frá 6. október. 6. okt. skrifaði hann núv. hæstv. ráðh. Þar segir rafmagnsveitustjóri að nú sé orðið of seint að panta efni í línuna, því að til þess að hægt væri að gera viðeigandi ráðstafanir hefði ákvörðun þurft að liggja fyrir strax upp úr mánaðamótum ágúst–sept. Það segir rafmagnsveitustjóri í bréfi 6. okt. 1978. Út frá þessu verður auðvitað að leiða þá ályktun, að það hefði verið nægilegt að panta efni eftir mánaðamótin, þ.e.a.s. eftir 1. sept., þegar núv. ríkisstj. tók við. Hins vegar er öllum ljóst að þetta er ekki nákvæmlega upp á dag, 1. eða 2. einhvers mánaðar. Það er auðvitað öllum sem eitthvað eru kunnugir þessum málum, ljóst að t.d. ef í septembermánuði hefði verið tekin ákvörðun um að panta þetta nauðsynlega efni, þá var það nægilegt. Það er því ljóst að það var í lófa lagið fyrir núv. ríkisstj. að gera þessar ráðstafanir til þess að hægt væri tæknilega séð að framkvæma þessi verk.

Í öðru lagi vil ég leiðrétta þann misskilning sem kemur fram hvað eftir annað, að fyrrv. ríkisstj. hafi fyrst tekið ákvörðun um að veita fé til að ljúka Vesturlínunni 1979 á kvöldfundi síðasta dag sem hún lifði. Ég veit ekki hvaða skáldskapur þetta er. Það er í ágústmánuði 1977 sem Orkubú Vestfjarða er stofnað, og ég gef þá yfirlýsingu um að ég muni beita mér fyrir því, að fé fáist til þess að ljúka línunni á árinu 1979. Síðan er þessi samningur og þessi yfirlýsing samþ. í ríkisstj. þá um haustið, skömmu eftir stofnun Orkubúsins. Við meðferð fjárlagafrv. fyrir árið 1978 er þetta margrætt, og ákveðið er að lækka fjárveitinguna fyrir árið 1978 eftir að fyrir lá yfirlýsing rafmagnsveitustjóra um að engu að síður væri framkvæmanlegt tæknilega að ljúka línunni á árinu 1979. Þá er ákveðið af ríkisstj. að þeirri upphæð, sem fjárveitingin 1978 er skorin niður um, verði bætt við fjárveitinguna 1979. Það liggur því fyrir frá upphafi að ríkisstj. hafi ákveðið að vinna að því, að línunni verði lokið á árunum 1978 og 1979, en ekki ákveðið á einhverjum kvöldfundi síðasta dag ævi hennar.

Að lokum vil ég út af ummælum hæstv. iðnrh. um fjárskort Orkusjóðs og þær byrðar, sem hann hafi orðið að taka á sig vegna Orkubús Vestfjarða, benda hæstv. ráðh. á það, að ég veit ekki betur en ríkissjóður skuldi Orkusjóði allmikið fé. Svo er mál með vexti, eins og menn muna, að á sínum tíma, þegar olíuhækkunin mikla varð, var ákveðið að leggja 1% söluskatt sérstaklega á til að afla fjár til að greiða niður hitunarkostnað með olíu. Síðar var ákveðið að sá afgangur, sem yrði af þessari söluskattsprósentu skyldi renna í Orkusjóð. Þessu var svo breytt þannig í fyrra með lögum eftir kröfu fjmrn., eða ríkisendurskoðunar eða ríkisbókhalds, að þessi söluskattsprósenta skyldi ganga í gegnum ríkissjóð. Það hefur lengi verið stefna fjmrn. og ríkisbókhalds að fá allt slíkt í gegnum ríkissjóð, en halda ekki mörkuðum tekjustofnum þar fyrir utan. En því var lýst yfir og ákveðið að þetta væri aðeins formbreyting og annað ekki. Nú hefur söluskatturinn farið töluvert fram úr áætlun fjárl., og að sjálfsögðu á það sama að gilda og áður, að það, sem er fram yfir, á að renna í Orkusjóð. Það, sem söluskattsstigið, olíuprósentan eða söluskattsprósentan, gefur meira en fjárlög gerðu ráð fyrir, á að renna í Orkusjóð. Ég beini því til hæstv. iðnrh., að hann gangi eftir því, að ríkissjóður standi skil á þessum skuldum.