21.11.1978
Sameinað þing: 25. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (650)

35. mál, bundið slitlag á vegum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það kemur kannske ekki neitt sérstaklega á óvart þótt þm. þess kjördæmis, sem hefur fengið varanlegt bundið slitlag á alla sína höfuðvegi, vilji skjóta þessu máli nokkuð á frest. En að því er málið sjálft varðar, þá finnst mér þessar umr. vera að nokkru leyti deila um keisarans skegg, því að þetta er mál sem getur ekki verið neinn ágreiningur um. Ég held að það eigi e.t.v. við hér sem Þormóður Kolbrúnarskáld sagði, held ég, þegar hann rauf föstuna í Niðarósi forðum: Ef ekki skilur meira á með okkur Kristi en eitt mörbjúga, þá held ég að við ættum að geta orðið vel ásáttir.

Annars hefur þessi umr. um varanlegt slitlag á vegi borið svolítið kynduglega að á þessu ári. Eins og vikið var að áðan var því slegið upp í Morgunblaðinu hálfum mánuði fyrir kosningar, að nú ætti að leggja varanlegt slitlag á alla landsins vegi. Það var eins og sjálfstæðismenn hefðu uppgötvað það eftir 4 ár í ríkisstj., að þetta væri mál sem e.t.v. væri rétt að athuga aðeins nánar. Hins vegar bar svo við, að á þetta mál var ekkert meira minnst síðan í kosningabaráttunni að heitið gæti, a.m.k. minnist ég þess ekki. Nú er okkur hins vegar sagt að þessi áætlun, sem var til umr. hálfum mánuði fyrir kosningar, sé væntanleg fljótlega.

Auðvitað er ekki nokkur ágreiningur um að það ber að leggja varanlegt slitlag á vegi hér. Það eru tvímælalaust einhverjar þjóðhagslega hagnýtustu framkvæmdir sem við getum lagt í. En vandinn er hins vegar að fjármagna þetta — það er ekki „hvort“ í þessu sambandi, heldur „hvernig“. Það má segja, að á vissum köflum vegakerfisins sé ástandið eins og við værum í rauninni að moka sandi í botnlausa tunnu, því að ofnaíburðurinn stendur þar ekki við og það er endalaust verk að bera ofan í þá vegi. Og um framkvæmdaröðina, þegar að þessu kemur, hlýtur auðvitað að gilda sú meginregla, að það verði umferðarmagnið sem ráði. Það á ekki að vera á einn eða neinn hátt bundið við hringveginn, hvar hafist er handa, heldur þá vegarkafla þar sem umferðin er mest og þar sem þetta er brýnast. Það hlýtur að verða sú meginregla sem unnið verður eftir. En kjarni þessa máls er að reyna að finna leið til að fjármagna þessa þjóðhagslega nýtu framkvæmd, sem enginn ágreiningur er um, og ég held að þm. ættu að einbeita sér að því fremur en einskisnýtu karpi um aðra þætti málsins.