21.11.1978
Sameinað þing: 25. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

35. mál, bundið slitlag á vegum

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það er alltaf gaman og líka nauðsyn að velta fyrir sér vegamálunum. Hér er komin til umr. 10 ára áætlun um bundið slitlag á vegum. Í tillgr. sjálfri segir að miðað skuli við að vinna verkið á 10 árum, en dreifa kostnaði á lengri tíma með lántöku. Ég geng út frá því að átt sé við það, að þessi 10 ár verði næstu 10 árin eftir að áætlunin hefur verið gerð. Ég get ekki annað en verið stoltur af stórhug flokksbræðra minna sem lögðu þessa till. fram. Og ég vil taka það fram, bæði vegna hv. þm. Gunnlaugs Stefánssonar og eins hv. þm. Sverris Hermannssonar, að það er aldeilis vonlaust að þeir geti yfirboðið þetta, nema þá fara alveg á fremstu nöf eða jafnvel út í spaug.

Ég sakna af þskj. og hefði þótt prýði á því, ef upplýsingar væru um hvað þessi útfærði hringvegur er langur, þ.e.a.s. hringvegurinn ásamt með vegi um Snæfellsnes og um Vestfirði. Þetta get ég sjálfsagt fundið einhvers staðar í plöggum mínum, en það hefði verið prýði á þskj., og eins ef upplýsingar hefðu legið fyrir um hvað hver km kostaði í sumar af því bundna slitlagi sem lagt var t.d. hjá Kiðafelli.

Það er margt reglulega vel sagt í grg. sem fylgir till., t.d.: „Nú hefur geisað verðbólga og er því þörf aðhaldssamrar stefnu í efnahagsmálum.“ Þessu er ég hjartanlega sammála, líka því að „ófullkomin uppbygging vega í snjóahéruðum og takmarkað burðarþol eldri vega og hrjúft yfirborð malarvega tálmar greiðri umferð.“ Þetta er allt saman hverju orði sannara — líka þessi setning: „Við höfum um hríð notað mikið erlent lánsfé og er þörf aðgæslu á þeim pósti.“ Ég er þessu öllu saman hjartanlega sammála. Hins vegar þykir mér ekki nægilega skýrt til orða tekið þar sem segir: „Vöntun bundins slitlags veldur miklum viðhaldskostnaði á vegunum sjálfum.“ Það hefur komið fram hér hjá a.m.k. sumum ræðumönnum, að þeir hafa verið að tala um varanlegt slitlag og látið eins og bundið slitlag þyrfti ekki á neinu viðhaldi að halda. En því miður er ekki svo „billega“ sloppið. Við erum ekki lausir við viðhaldskostnað á vegum þótt við leggjum á þá bundið slitlag. Að vísu kemur þetta viðhaldsfé, sem til þeirra þarf, í ofurlítið öðruvísi skömmtum en í malarvegina, en samkv. upplýsingum vegamálastjóra er viðhaldsféð einkennilega lítið minna, þegar til lengri tíma er litið, sem þarf á hvern km með bundnu slitlagi en á malarvegi.

Það komu margar réttmætar ábendingar fram í ræðu hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Ég vil benda á að ég held að það sé vafasamur fengur að bundnu slitlagi á suma fjallvegi landsins þar sem ísingarhætta er mikil, því að þá verða vegirnir beinlínis stórhættulegir þegar illa viðrar. Ég bendi á hörmuleg dæmi af vegi vestur á fjörðum — veginum milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Þar er mikill slysakafli á vegi með bundnu slitlagi, en allt gekk sæmilega meðan hið hrjúfa yfirborð malarinnar var á veginum.

Ég undirstrika það sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði um mikilvægi aukaveganna og vegakafla sem ekki eru endilega á hringveginum. Þeir geta verið lífæðar héraðanna.

Ég vil leyfa mér að mótmæla því, sem hv. þm. Gunnlaugur Stefánsson sagði, að megináherslan hafi verið í Vesturlandskjördæmi á s.l. árabili. Að vísu hefur verið unnið þar að miklu stórvirki í brúargerð, en það hefur verið unnið að miklum verkum víða um land og það á ekki að vera að vanþakka þau. Hins vegar er það alveg rétt, að Borgarfjarðarbrú hefur tekið til sín verulega mikinn hluta af því vegafé sem til ráðstöfunar hefur verið á hverju ári, enda sjálfsagt metin nauðsynleg og góð framkvæmd.

Ég vil benda á að það er hægt að gera vegaframkvæmdir sem eru mikilvægar, aðrar en leggja bundið slitlag. Ég vil nefna af handahófi nokkrar vegaframkvæmdir sem unnar hafa verið í sumar á veginum norður í land, veginum milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það hefur verið byggð brú á Öxnadalsheiði og vegakafli við hana. Það hefur verið byggð brú á Víðidalsá. Það hefur verið lagður vegur á Hrútafjarðarhálsi. Það hefur verið lagður vegur um Holtavörðuheiði. Og svo var sett bundið slitlag á dálítinn kafla hjá Kiðafelli. Þessi verk vil ég meta. (VH: Var ekki sett slitlag í Húnavatnssýslu líka?) Tilraunaslitlag var lagt hjá Blönduósi og tilraunaslitlag undir Hafnarfjalli. Ég nefni þetta bara af handahófi. Allt eru þetta miklar samgöngubætur og mikilvægar, en ég held að fjórar þær fyrst töldu séu enn þá mikilvægari en nokkurn tíma þetta bundna slitlag hjá Kiðafelli, sem ég er þó ekki að gera lítið úr að sé þýðingarmikið.

Hér hefur verið rætt um mismunandi gerðir slitlags. Ég held að við séum e.t.v. með úrelta gerð af slitlagi. Ég held að sú nýbreytni með þetta tilraunaslitlag, sem nokkuð var sinnt í sumar, gefi manni það góðar vonir eftir þá stuttu reynslu sem af því hefur orðið, að ástæða sé til að binda við hana miklar vonir.

Ég vil undirstrika mikilvægi greiðra samgangna. En ég óttast að ef af framkvæmd þessarar till. yrði, að festa sig við 10 ár í svo stór verkefni, mundi það óhjákvæmilega í efnahagsástandi, sem alltaf ríkir hér á Ístandi, verða til þess að slíkt mundi taka býsna mikinn hluta af tiltæku vegafé landsmanna — kannske of stóran hluta — og það er að sjálfsögðu ekki heppilegt. Ég hygg að greiðar samgöngur byggist ekki einasta á bundnu slitlagi.