23.11.1978
Sameinað þing: 26. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (692)
18. mál, gjald á veiðileyfi útlendinga sem veiða í íslenskum ám
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Við höfum nú hlýtt á mjög uppbyggilegar umr. um þessa till. Hv. frsm. fyrir þessari þáltill., hv. þm. Árni Gunnarsson, gat þess í lok framsöguræðu sinnar, að hann væri að ganga frá frv. um sama efni og felst í þessari till., sem hann var þá að tala fyrir og er nú hér til umr., og mundi leggja það fram á Alþ. einhvern næstu daga. Þessi þáltill. er um að fela hæstv. ríkisstj. að láta semja frv. um tiltekin, afmörkuð efnisatriði. En um leið og hv. þm. talar fyrir þessari tillögu getur hann þess, að hann sé búinn að vinna þetta verkefni. Hver er þá tilgangurinn með flutningi tillögunnar?
Ég hef átt sæti á Alþ. í rúman áratug, en ég minnist þess ekki á þeim tíma að í framnú hafi verið hafður slíkur málatilbúnaður. Ég hygg að lengi megi leita til að finna dæmi þess. Hv. alþm. hafa tvo möguleika á að flytja mál á hinu háa Alþ. — þeir geta flutt þau í ályktunarformi eða frv.-formi. Sé málið flókið og vandasamt, viss atriði sem þarf að rannsaka, álitamál um hvernig að málinu skuli standa til þess að ná þeim markmiðum sem flutningsmaður eða flutningsmenn stefna að, þá er að jafnaði ályktunarleiðin valin. Sé málið á hinn bóginn einfalt er rökrétt að setja málið fram í frv.-formi. En að flytja sama mál eftir báðum þessum leiðum og það næstum samtímis hygg ég að sé einsdæmi, enda sé ég ekki annan tilgang með því en þann að reyna að vera sem mest í sviðsljósinu.
En er það alveg einhlítt, að í öllum tilfellum sé ávinningur að því — eða hafa mál nú að undanförnu þróast á þann veg? A.m.k. sumir hv. þm. eru farnir að trúa því, að það, sem skipti máli í stjórnmálabaráttu, sé að flytja nógu mörg mál, tala og skrifa nógu mikið, hvað sem innihaldinu líður. Er þetta hinn nýi, ferski þytur sem fer um þjóðlífið og á að sögn sumra að þeyta í burtu öllum óheilindum út í hafsauga?
Þessi þáltill. gefur ekki tilefni til mikilla umr. Hún er um það eitt, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf um að leggja sérstakt gjald á veiðileyfi sem séu seld útlendingum til veiða í íslenskum laxveiðiám og að gjaldið renni í ríkissjóð. Skal fjármununum sem þannig aflast, varið til tilrauna með fiskrækt í sjó og vötnum. Till. er sem sagt um það eitt, að gjald skuli lagt á veiðileyfi þegar erlendir menn eiga í hlut. En því ekki sömu reglur um silunginn í ám og vötnum? Hvers á hann að gjalda að dæmast til að verða bráð erlendra manna?
Ekki leyndi sér hvað fyrir hv. flm. vakir með þessari till., ef marka má framsöguræðu þá sem hv. 1. flm. flutti fyrir henni. Það var ekki af umhyggju fyrir landeigendum sem hún er flutt, það kom berlega í ljós hjá hv. flm., og hefur e.t.v. engum komið á óvart. Umhyggjan var fyrir þeim Íslendingum sem þessa íþrótt stunda. Veiðileyfin eru orðin of dýr fyrir þá. Það verður að dómi þessa hv. þm. að gera veiðileyfin svo ódýr að Íslendingar geti, hver sem er, veitt sér þann munað að veiða lax. Framboð og eftirspurn eiga ekki að ráða verðinu á veiðileyfunum t.d. eins og á fjármagninu.
Hv. frsm. talaði um slæm gjaldeyrisskil vegna seldra veiðileyfa og nefndi tölur í því sambandi. Hann ræddi um að þörf væri að láta koma á betri gjaldeyrisskilum. Ég veit ekki betur en það sé hlutverk Seðlabankans að fylgjast með öllum gjaldeyrisskilum. Ég held að hv. þm. ætti að benda Seðlabankanum á þessar grunsemdir, sem hann ber í brjósti, og óska eftir betra eftirliti í þessum efnum.
En mér er mikil forvitni á að vita, hvernig hv. flm. hyggst tryggja að erlendir laxveiðimenn verði látnir borga hinn fyrirbugaða skatt. Mér skilst að það sé hugsað þannig, að ef Íslendingur kaupir veiðileyfi, þá eigi hann að fá það fyrir verulega lægra verð en ef erlendur maður á í hlut. Þessi verðmunur hlýtur að eiga að vera verulegur, þar sem hann á að sögn hv. frsm. að verða til þess að ásókn erlendra manna í laxár okkar minnki til muna frá því sem verið hefur. Og hver á að hafa á hendi sölu á veiðileyfum hér í framtíðinni svo að það verði öruggt að enginn erlendur maður komist í íslenska laxveiðiá nema hafa borgað skattinn hans Árna? Á e.t.v. að setja upp nýja stofnun, sem hefði með að gera sölu á öllum laxveiðileyfum í allar ár á landinu, sem einhver von er að lax gangi í? Og halda hv. flm., að þó að slík skipan kæmist á yrði öruggt að enginn erlendur maður kæmist í lax án þess að borga skattinn? Það er e.t.v. verið að semja nýtt frv. um að setja á stofn nýja sveit lögreglumanna, sem mundi e.t.v. ganga undir nafninu „Laxveiðilögregla ríkisins“ og ætti þá að hafa það verkefni að fylgjast með því að enginn erlendur maður renndi fyrir lax nema hafa áður borgað skattinn, — nema þá von sé á einni þáltill. enn þess efnis, að öllum erlendum mönnum sé bannað að koma til Íslands yfir laxveiðitímann nema þeir sýni við komuna til landsins að þeir séu búnir að kaupa laxveiðileyfi með sérstökum skattstimpli, — á laxveiðitímanum komist sem sagt enginn erlendur maður inn í landið nema hann sýni laxveiðivegabréf.
Ég sé ekki aðrar leiðir færar, ef þessi bráðsnjalla hugmynd á að komast til framkvæmda: annaðhvort fjölmenna !axveiðilögreglu eða banna erlendum mönnum aðgang að landinu nema þeim sem hafa laxveiðivegabréf.
Auðvitað eru báðar þessar leiðir áhugaverðar í meira lagi, því að engum getur dottið í hug, og síst hv. frsm., að leiða landa sína í þvílíka freistni að skapa hverjum sem er möguleika á að kaupa veiðileyfi að nafninu til fyrir erlenda laxveiðimenn — vini sína — og bjóða þeim í laxveiði, geta þannig verið í laxveiði sjálfur nokkra daga, fá síðan erlendan gjaldeyri fyrir ómakið, sem engin leið er að gera grein fyrir og því ekki hægt að skila í banka. E.t.v. er sú stund ekki langt undan, að ýmsir landar okkar hafi möguleika á að eyða sumarfríi sínu í laxveiðar án þess að það kosti mikið fyrir þá í krónum talið. Væri það ekki snjallt og göfugt verkefni að koma því í framkvæmd?
Væri það undarlegt, þótt sú spurning væri farin að gerast nokkuð áleitin, hvort hv. alþm. — a.m.k. flestir þeirra — beri ekki meiri virðingu fyrir starfi sínu, sjálfum sér og ekki síst þessari stofnun, Alþingi Íslendinga, en svo að eyða tíma þingsins í umr. um mál af þessu tagi?